Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 35
ferðir til Costa del Sol, ferðir til Júgóslavíu og
írlandsferðir. Eysteinn sagði að mest væri
spurt eftir ferðum til Costa del Sol, enda er
þar um að ræða hefðbundinn ferðamannastað. I
fyrra var byrjað á írlandsferðum og tókust þær
mjög vel, enda er þar upp á ýmislegt nýtt að
bjóða, svo sem mikla afþreyingarmöguleika.
Margir golfáhugamenn færu þangað í frí, einn-
ig þeir sem hefðu áhuga á siglingum og fleiri
og fleiri.
Evrópiukort, sem sýnir stöðu Portoroz í Júgó-
slavíu.
JÚGÓSLAVÍUFERÐIR VINSÆLAR
Sölustjóri Samvinnuferða er Sigurður Haralds-
son, en sölustjóri Landsýnar er Ellen Ingvadótt-
ir. Hún sagði að Júgóslavíuferðir Samvinnu-
ferða og Landsýnar nytu vaxandi vinsælda enda
væri þar náttúrufegurð með eindæmum.
— Það er eitthvað við Júgóslavíu sem ekki
er að finna annars staðar, sagði hún. — Natt-
úrufegurð er þar óvenjuleg, en hér er um að
ræða stærsta ríkið á Eialkanskaga. Það liggur
frá suðaustri norður frá Adríahafinu og til norð-
vesturs allt frá landamærum Albaniu til landa-
mæra Ítalíu. Að austan liggja Búlgaría og Rúm-
enia en að norðan Ungverjaland og Austurríki
og vestan Ítalía. Lega landsins gerir það að
verkum að auðvelt er að ferðast til nágranna-
landanna og njóta gæða þeirra samhliða.
Ellen sagði að Samvinnuferðir og Landsýn
hefðu til ráðstöfunar gistirými í Portoroz, sem
væri þekktasti baðstrandarstaður Slóveníu.
Þetta er ævagamall heilsu- og hressingarbær,
með ljósa strönd og mikla náttúrufegurð.
— Ef þessi staður er borinn saman við Costa
del Sol þá er verð fyrir sömu þjónustu mjög
áþekkt. Fyrir þá sem eru að leita að fjörugu
næturlífi er Costa del Sol heppilegri, en þeir
sem leita náttúrufegurðar, sjávarbaða og frið-
sældar ættu heldur að fara til Júgóslavíu,
sagði Ellen.
IV'orræna félagið:
Tengslin við
Færeyjar og
Grænland aukin
Á undanförnum árum hefur Norræna félagið
gengist fyrir Norðurlandaferðum fyrir félags-
menn sina. Þessi þjónusta hefur notið vinsælda
og hefur þátttaka í ferðir þessar aukist frá ári
til árs. Síðustu árin hefur Útsýn annast skipu-
lagningu ferða þessara, en i sumar verður sú
breyting á að skrifstofa Norræna félagsins mun
sjálf skrá alla sína farþega og taka á móti
greiðslum fyrir fargjöld án milligöngu nokkurr-
ar ferðaskrifstofu. Með þessu hyggst félagið
halda fargjöldum eins lágum og unnt er. Telja
forsvarsmenn félagsins að þetta verði til þess að
það geti nú boðið upp á ódýrustu Norðurlanda-
ferð sem völ er á, eða 42% ódýrari en almenn
fargjöld. Samhliða þessu er ætlunin að fjölga
ferðum frá því sem verið hefur og leggja á-
herslu á að auka tengslin við Færeyjar og
Grænland með ferðum þangað. — Farseðlar í
ferðum Norræna félagsins gilda í þrjá mánuði
í sumar í stað mánaðar áður, nema Færeyja-
ferðirnar. Þar gilda farseðlar í 14 daga.
f fyrra var haldin hér á landi Nordkalotten-
ráðstefna og þar var ákveðið að reynt skyldi að
greiða fyrir ferðum milli íslands og annarra
norðlægra svæða. Því verður farið í tvær ferðir
til Umeá í Norður-Svíþjóð og þaðan skipulagðar
ferðir um Norður-Svíþjóð og Finnland. Auk
þess verður farið í ferð til Þrándheims í Noregi
og þaðan skipulagðar ferðir um Norður-Noreg.
SAS:
Ahugi á Asíu- og
Afríkulöndum
Scandinavian Airlines System, sem betúr cr
þekkt undir nafninu SAS er skandinaviskt fyr-
irtæki, en engu að síður er rekið á Laugavegi
FV 2 1978
35