Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 33
Baðströnd á Ermarsundseyjunni Jersey.
Veðurfar er milt vegna Golfstraumsins, og sum-
ar sólríkt. Eyjarnar tilheyra bresku krúnunni,
en hafa eigin ríkisstjórn og eigið þing. Ferðirn-
ar sem Atlantik skipuleggur til Jersey eru
tveggja vikna ferðir og verður flogið utan með
viðkomu i London. Einnig gefst kostur á viku-
dvöl í London að Jersey-heimsókninni lokinni.
Þá verða skipulagðar skoðunarferðir frá Jersey
til Normandie og Bretagne í Frakklandi.
En það verður ekki aðeins farið til Jersey í
sumar. Auk þeirra verða skipulagðar Þýska-
land.sferðir, og sömuleiðis ferðir til Þýskalands,
Austurríkis og Sviss. í upphafi þessara ferða er
flogið til Luxemborgar og þaðan ekið um í lang-
ferðabilum. Forráðamenn Atlantik sögðu að mik-
ið væri búið að panta i þessar ferðir og virtust
þær vera vinsælar sem fermingargjafir.
Þá má heldur ekki gleyma ferð til Florida i
Bandaríkjunum og hópferðum til skosku há-
landanna, sem nú er verið að undirbúa.
— Þarna erum við að endurvekja ferðamáta,
sem var mjög vinsæll ekki alls fyrir löngu.,
þ.e.a.s. að fljúga á einhvern stað og ferðast síðan
um i áætlunarbílum. Við höfum nær ekkert aug-
lýst, enn sem komið er, en þrátt fyrir það hafa
fjölmargar pantanir borist nú þegar. Bendir það
til þess að það sé langt frá því að íslendingar vilji
bara fara til sólarlanda í sumarleyfum sínum,
sögðu forráðamenn Atlantik að lokurh.
Flugleiðir:
Flórída og
Bahamaeyjar
En hvernig koma Flugleiðir inn í myndina
licgar hópferðir Islendinga eru annars vegar?
I vetur hefur verið um að ræða orlofsferðir til
Kanaríeyja á vegum Flugleiða, Landsýnar, Al-
þýðuorlofs, Utsýnar og Urvals. Er þetta átt-
undi veturinn, sem slíkar sólarferðir í skamm-
deginu eru skipulagðar.
Aðsókn hefur verið góð í ferðir þessar og er
þaö í ósamræmi við spár sem gerðar voru fyrir
þennan vetur. Þar var því meðal annars haldið
fram að vegna sprengjuhótana myndi túristum
til Kanaríeyja fækka verulega. Reyndin varo
allt önnur, og mun verða um að ræða mikla
aukningu í ferðamannaaðstreymi til eyjanna.
Nú eru í undirbúningi á vegum Flugleiða ferð-
ir til Bandaríkjanna og Bahamaeyja. Verður flog-
ið beint frá íslandi til Nassau, og þar skiptist
hópurinn. Fer helmingurinn til Miami, en hinn
til Paradísareyju. Seinna í sumar er ráðgerð
önnur ferð til Bahamaeyja, en þá verður flogið
til New York eftir dvölina suðurfrá og dvalið
■þar í þrjá daga. Flugleiðir eru einnig með svo-
kallaðar pakkaferðir til Florida. Þá er flo-gið
til Miami með viðkomu í New York og Chicago.
Samkvæmt upplýsingum Sveins Sæmundsson-
ar hjá Flugleiðum er allt útlit fyrir að ferðir
til Spánar og spönsku eyjanna verði með svip-
uðu móti í sumar og undanfarin ár. Hins vegar
má búast við allmikilli aukningu á ferðum til
Grikklands, Ítalíu og Júgóslavíu. Þotur Flug-
leiða munu til dæmis fara 14 leiguferðir til
Grikklands og koma þær allar við á Ítalíu og
Júgóslavíu. Ennfremur eru ráðgerðar fjórar
leiguferðir til ítaliu án viðkomu annars staðar
í sumar.
Landsýn — SamvinnuFerðir:
Vaxandi vinsældir
Júgóslavíuferða
Án efa hafa margir þeir, sem hafa verið að
athuga sólarferðir veitt því athygli að Landsýn
og Samvimiiuferðir auglýsa nú saman sínar ferð-
ir. Ástæðan fyrir því er sú að sl. liaust liófu
þessi tvö fyrirtæki samvinnu á ákveðnum svið-
um, m.a. er auglýsingastarfsemin sameiginleg,
yfirstjórnin og fleira. Hins vggar eru fyrirtækin
rckin á tveimur stöðum í borginni. Landsýn er
til húsa að Skólavörðusit'íg 16, en Samvinnuferð-
ir i Austurstræti 12. Yfirstjóm bessara tveggja
fyrirtækja er í höndum Eysteins Helgasonar.
Eysteinn sagði í samtali við Frjálsa verzlun,
að hann væri sannfærður um að þessi sameining
myndi geta leitt til þess að þessir tveir aðilar
gætu boðið viðskiptavinum sinum upp á betri
kjör en ella og því væri ekki til lítils að vinna.
Eysteinn sagði að útlitið væri gott hvað við-
kemur komandi sumri og væri þegar farið að
berast mikið af pöntunum. Það sem ferðaskrif-
stofurnar tvær hafa upp á að bjóða eru m.a.
FV 2 1978
33