Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 32

Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 32
Scrcfni: Hvert á að fara í sumarleyfinu? Frjáls verzlun kynnir framboð ferðaskrifstofa og félaga á utanlandsferðum í sumar Veturinn á íslandi er langur og dimmur. Á þeim tíma ársins er gott að gct'a gælt við hugsunina um sól og Siumar. Vegna Iegu landsins gerist það hins vegar stundum að sumarið langþráða Iætur á sér sitanda og á það jafnvel til, að koma alls ekki í veðurfarslegu tilliti. Meðal annars þetta hef- ur orðið til bess að íslendingar hafa í æ ríkara mæli ieitað út fyrir landsteinana í fríum sínunt til þess að tryggja sér sólríkt sumarfrí. Straumurinn hefur einkum beinst til sólarlandanna svo- kölluðu og er þar skemmst að minnast Spánar. Ef dæma má af þróuninni tvö síðustu árin virðist fjöldi íslendinga sem leggja land undir fót erlendis vaxa stöðugt, en jafnframt er fjöldi þeirra ferðamanna sem hingað koma til þess að kynnast landi cg þjóð mikill. Árið 1976 var fjöldi erlendra ferðamanna, sem hingað komu lið- lega 79 þúsund, en í fyrra var talan komin upp í rúm 80 þúsund. Hvað íslendingum, sem fóru utan viðkemur, þá var fjöldi þeirra árið 1976 tæplega 60 þúsund, en i fyrra var talan komin upp í 71 þúsund. Af þessu sést þó, að þeir eru fleiri sem koma til landsins en þeir, sem fara frá því. Samkvæmt upplýsingum, sem fengust hjá Ferðamálaráði voru tekjur fslendinga af ferða- mönnum sem hingað komu 1976 liðlega 5 millj- arðar. Er það drjúgur hluti af gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Þegar litið er yfir skýrslur lögreglustjóraemb- ættisins í Reykjavík má sjá, að hingað til lands koma gestir alls staðar að úr heiminum. Flest- ir gestanna koma frá Bandaríkjunum, næst koma Norðurlöndin, og síðan önnur Norður-Evr- ópulönd. í skýrslunni má einnig sjá að hingað rekst fólk frá mörgum fjarlægum stöðum. Þar má nefna Mongólíu, Nicaragua, Salvador, Burundi, Hong Kong og fleira og fleira mætti tína hér til. Hér á landi eru starfandi fjölmargar ferða- skrifstofur til þess að vera landanum innan hand- ar við skipulagningu ferða. Til skamms tíma voru tilboð þeirra mun ein- hæfari en þau eru nú, enda er nú svo komið að vegir íslendinga virðast liggja til allra átta í sumarfríum þeirra. Hinu er þó ekki að neita að enn eru ákveðnir staðir í heiminum, sem virðast hafa meira aðdráttarafl sem sumarleyfisstaðir en aðrir. Frjáls verzlun ræddi við forsvarsmenn all- margra af þeim ferðaskrifstofum, sem starfa í Reykjavík til þess að fá hugmynd um hvað er á boðstólum fyrir íslendinga á komandi sumri. Svör þeirra fylgja hér á eftir. Atlantik: Jersey, blómaeyjan á Ermasundi Um áramótin var opnuð enn ein ferðaskrxf- stofan í Reykjavík og án efa hafa margir orðið þá til að spyrja sjálfa sig hvort ekki væri nóg komið af svo góðu. Hin nýja ferðaskrifstofa heit- ir Atlantik og þeir sem eru þar í forsvari sögð- ust vissulega vera samþykkir bví að nóg væri um ferðaskrifstofur hér, en bó væri enn gloppa í ferðamálunum, sem þeir ætluðu sér að reyna að bæta úr og því hefði verið farið út í stofn- un fyrirtækisins. Atlantik er til húsa í nýja Iðnaðarmannahús- inu við Hallveigarstíg og er Böðvar Valgeirsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Frá því um áramótin hefur tíminn verið notaður til þess að skipuleggja sumarferðirnar »g liggur áætlunin nú fyrir. Ber hún það greinilega með sér að þarna er um nokkuð ólíka áætlun að ræða borið saman við ferðaáætlun annarra ferðaskrifstofa. Atlantik mun ekki skipuleggja neinar sólar- ferðir, eins og þær eru oft kallaðar, heldur mun beina ferðum sínum á nokkuð aðrar brautir. JERSEY — NÚMER EITT Númer eitt á blaði ferðaskrifstofunnar eru ferðir til eyjarinnar Jersey, sem liggur s.yðst í Ermarsundi, rétt úti fyrir strönd Norður-Frakk- lands, en á síðustu árum hafa Ermarsundseyj- arnar orðið vinsælar, sem sumarleyfisstaður. 32 FV 2 1978
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.