Frjáls verslun - 01.02.1978, Side 82
Garðyrkjubuskapur í Hveragerði
Eftirspurn eftir grænmeti
—— er alltaf að aukast
— meiri sveiflur í blomaframleiðslunni
Garðyrkjubændur í Hvera-
gerði hafa með sér sérstakt fé-
lag. Formaður þess heitir Þórð-
,ur Snæbjörnsson og þegar
Frjáls verslun var í Hveragerði
fyrir skömmu var hann heim-
sóttur og beðinn að segja frá
starfsemi félagsins og garð-
yrkjubúskapnum í Hveragerði
almennt.
— Yfirleitt eru nú ekki svo
mikil umsvif hjá þessu félagi,
sagði Þórður. — Félagsmenn
eru þó að áætla þátttöku í
landbúnaðarsýningu sem hald-
in verður á Selfossi í haust.
Það er ekki beint félagið sem
tekur þátt í sýningunni, heldur
munu menn setja upp sjálf-
stæða bása, en í nokkuð sam-
felldri heild. Það er nokkuð
frjálst hvernig þessu er fyrir
komið, en oft eru fengnir
blómaskreytingamenn eða
starfsmenn blómaverslana til
að setja þetta upp.
BLÓMAFRAMLEIÐSLA
YFIRGNÆFANDI
— Framleiðsla garðyrkju-
bænda í Hveragerði er marg-
vísleg, sagði Þórður. — Blóma-
framleiðsla er þó yfirgnæfandi.
Grænmetisframleiðsla hefur
verið að minnka hérna undan-
farið meðan hún hefur aukist
í uppsveitum Árnessýslu og
Borgarfirði. Hjá æði mörgum
er starfsemin samfelld allt ár-
ið. Við getum verið með eigin
ræktun frá byrjun mars og
fram til jóla og sumir brúa
bilið þar á milli með innflutt-
um laukblómum. Það er núna
verið að vinna að gervilýsing-
artilraunum á Reykjum í Ölf-
usi og er ætlunin að auka af-
köst og lengja ræktunartímann
með lýsingunni. Ég veit ekki
hvernig þetta hefur komið út,
en ég veit að menn hafa í mörg
ár notað gervilýsingu á tómata-
og gúrkuplöntur á byrjunar-
stigi.
— Það má geta þess, sagði
Þórður, — að hér er verið að
úthluta nýju svæði undir gróð-
urhús og verður hægt að hefja
framkvæmdir á því næsta sum-
ar. Þar veit ég að nokkrir að-
ilar hafa sótt um lóðir og eru
því nýjir menn. Samkvæmt að-
alskipulagi er stefnt að því að
hafa gróðurhúsin sem mest á
einu svæði og verða þá smám
saman lögð niður lítil hús sem
eru víða um bæinn. Annars
virðist þróunin víðast hvar
hafa orðið sú, að garðyrkjan
skapar þéttbýli, en verður svo
að hörfa undan þéttbýlinu.
Þegar landið verður verðmæt-
ara vegna lóðaverðs, þá er garð-
yrkjan ekki samkeppnisfær. Ein
stöð þarf jafn mikið pláss og
þarf undir 3—4 venjuleg iðn-
fyrirtæki.
MARKAÐSKÖNNUN
— Markaðsmál garðyrkjunn-
ar hafa mikið verið til umræðu,
sagði Þórður, — og nú ætlar
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins að fara að gera markaðs-
könnun fyrir garðyrkjuafurð-
ir í heild á landinu. Eftirspurn
eftir grænmeti er alltaf að auk-
ast en í blómaframleiðslunni
eru meiri sveiflur. Vegna skipu-
lagsleysis hafa oft komið stórir
skellir í þessari framleiðslu-
grein. Markaðskönnunin á að
leiða í ljós hvort ekki megi
hagræða framleiðslunni betur
og fá betra lag á dreifingar-
málin. Vafalaust er margt sem
bæta má á þessu sviði án þess
að ég geti nokkuð um það sagt
núna.
— Það er ekki mikil sala á
garðyrkjuafurðum sem fram
fer hér, sagði Þórður. — Það
er helst í Eden og hjá Michel-
sen. Dreifingunni hjá okkur er
þannig háttað, að grænmeti fer
gegnum Sölufélag garðyrkju-
manna, en blómin eru seld af
þremur umboðsaðilum sem
dreifa þeim í búðir um land
allt. Það hafa verið uppi hug-
myndir hjá okkur um að koma
upp markaði fyrir garðyrkju-
og gróðurhúsaafurðir, en það
mál er aðeins á umræðustigi.
Á svona markaði fengi neytand-
inn vöruna beint frá framleið-
anda, e.t.v. í stærri einingum
og minni þjónustu í kring um
þetta, en í staðinn á lágmarks-
verði og allar vörur á sama
stað. Ég tel að þetta gæti orðið
hagur bæði fyrir okkur og neyt-
endurna.
ÓHEILLAÞRÓUN í
LÁNAMÁLUM
— Það eru ýmis áhyggjuefni
sem upp koma hjá okkur, sagði
Þórður. — Eitt af þeim stærstu
er ástand hitaveitunnar hérna.
Útfelling úr vatninu er svo mik-
il, að pípurnar einangrast smám
saman að innan og gefa þá frá
sér minni hita. Svo stíflast þær
jafnvel á endanum. Eina að-
ferðin sem hægt hefur verið að
nota til að hreinsa pípurnar er
að frostsprengja innan úr þeim,
en sú aðferð er erfið og sein-
leg. Það hefur gefist betur að
hafa bara gufu í rörunum og
nýjar stöðvar eru eingöngu með
gufuveitu. Annað áhyggjumál
okar er sú óheillaþróun sem
orðið hefur í lána- og fjár-
magnsþjónustu við garðyrkj-
una. Framlögum sem ríkið veit-
ir öðrum greinum landbúnaðar-
in.s yfirleitt kippt burtu þegar
að garðyrkjunni kemur, sagði
Þórður Snæbjörnsson að lok-
um.
82
FV 2 1978