Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 16

Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 16
Nautakjötsframleiðsla lim 40% af nautakjöti dreift utan kerfis samvinnufélaga? Heimaslátrun æ algengari. Meytendur ánægðir Undarlegt ástand hefur skap- ast með neyslu nautakjöts í landinu. Vitað er að hún hefur vaxið mjög, en enginn virðist geta svarað því með vissu, að minnsta kosti ekki af opinber- um aðilum, hvaðan l>etta við- bótarkjöt kemur. Augljós ályktun var í fyrstu að telja þessa auknu neyslu stafa af niðurgreiðslum, sem nú eru á nautakjöti, en sú skýring stenst ekki þar sem engu meira nautakjöt fer nú um dreifing- arkerfi landbúnaðarins en fyrr. Fátt annað er vitað, en hvað miklu er slátrað í sláturhúsum, sem taka kjötið til dreifingar, en ekki er einu sinni vitað með vissu hversu mörgum naut- gripum er slátrað í sláturhús- um og síðan afhentir bændum. RÆTT AÐ HÚSABAKI Ákaflega erfitt er að komast til botns í því hvernig þessum málum er háttað. Jafnvel bestu kunningjar verða flóttalegir og vilja ekki ræða málið nema 1 hálfum hljóðum að húsabaki. Þetta á jafnt við um bændur, sem kaupmenn og veitinga- menn. Einna helst er hægt að ræða málið við einstaklinga, sem í sívaxandi mæli kaupa hálfa og heila nautgripi beint frá bændum, fá þá unna af kjötiðnaðarmönnum, fylla frystikistuna og borða síðan gott nautakjöt fyrir brot af búðarverði. Auk þess vita þeir nákvæmlega hvað þeir keyptu. Nautakjöt er hefðbundin aukaafurð mjólkurframleiðslu og tiltölulega stutt síðan bænd- ur, almennt, fóru að veita nautakjötsframleiðslu athygli sem búgrein, þó að alltaf hafi einhverjir gert það. íslenski nautgripastofninn hefur þróast í gegn um aldirnar og er í raun hvorki kjötframleiðslustofn né mjólkurframleiðslustofn, held- ur er hann nautgripastofn, sem hefur þolað það harðbýli og fóður, sem íslensk náttúra og búskaparhættir hafa upp á að bjóða. Stofninn er því fremur holda- lítill og því óhentugur til kjöt- framleiðslu. NAUTAKJÖT Á KOSTNAÐ KINDAKJÖTS Þrátt fyrir þetta hefur neysla nautakjöts aukist mjög að und- anförnu, á kostnað kindakjöts. Vafalaust má þar um kenna, að æ fleiri íslendingar ferðast til útlanda og kynnast nauta- kjöti, en einnig því að lamba- kjöt á íslandi er nú orðið svo feitt, að fjöldi fólks getur ekki sætt sig við það. Þetta er skilj- anleg þróun, þar sem kjötið er beinlínis metið eftir fitu, en ekki kjötmagni. Nú er svo komið að nálægt helmingur af kindakjötsframleiðslu okkar er offramleiðsla, sem seld er til útlanda á undirverði. SVINDL Á FLOKKUM En hvaðan kemur nautakjöt- ið? Kunnugir menn telja að nálægt 40% af þvíi berist neyt- endum framhjá hinu opinbera dreifingarkerfi landbúnaðarins. Þá bætist við að í öllu kerfinu, bæði því opinbera og því leyni- lega, veður allt upp í svindli og telur hvor aðili hinn verri. Svindlað er á gæðaflokkum, þegar kjöt er selt. Beljur verða að nautum í verslunum, belju- kjöt verður nær undantekn- ingalaust að nautahakki. Hef- ur nokkur fengið keypt kýr- kjöt nýlega eða kýrhakk? Ali- kálfar verða að ungnautum og folöld að trippum. Það er athyglisvert, að út- flutningur á nautgripahúðum hefur farið vaxandi ár frá ári, Sigurður Jóhannsson stjórnar stórgripaslátrun hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi. Hér lítur hann eftir svínaskrokkum. 16 FV 4 1978

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.