Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 67

Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 67
SINCE 10*36 DeskSets því að koma fram við sam- starfsaðila eins og þú vildir að þinn yfirmaður kæmi fram gagnvart þér. • Losaðu þig úr viðjum van- ans. Þegar þú þarft að ræða við fólk augliti til auglitis, forðastu gömiu hlutverkaskip- anina: þú öðru megin við skrif- borðið, hinn hinu megin. Sestu þess í stað niður við hlið við- ræðuaðilans á sófa eða við ann- að borð; ef slík húsgögn eru ekki við hendina, hafðu þá stól við hliðina á skrifborðinu, þannig að þið horfið í sömu átt þegar þið ræðist við. • Á fundum skaltu reyna að stilla þig eftir megni og venj- ast því að hlusta á fólk. Sittu ekki fast við fundarborðið með olnbogana á borðplötunni og höfuðið hengt á milli herðanna. Hlustaðu þegar þú situr í stól talsvert frá borðinu, beinn í baki, jafnvel með krosslagða handleggi. Umfram allt skaltu ekki láta í ljós merki um óþol- inmæði á meðan þú hlustar á aðra, það eru veikleikamerki stjórnanda. MÁLFARIÐ SKIPTIR SKÖPUM Vísindamenn, sem fást við rannsóknir á stjórnun við John’s Hopkins háskólann í Bandaríkjunum hafa komist að þeirri athyglisverðu niðurstöðu, að einstaklingur sé yfirleitt um 48% lengur að skilja samheng; máls þar sem gagnrökum eða úrtölu sé beitt í stað meðmæltra atriða, jafnvel þótt þau séu snöggtum færri. Á lélegri, en ef til vill skilj- anlegri íslenzku þýðir þetta að ^éu málefni skýrð út fyrir ein- staklingi með því að draga fram það neikvæða í stað þess já kvæða, tekur það einstakling- inn um 48% lengri tíma að skilja kjarna málsins. Hafðu ávallt að leiðarljósi að reyna að draga fram og varpa ljósi á kosti hvers máls á undan göllum þess, jafnvel þótt gall- arnir séu yfirgnæfandi. Á þann hátt er fólk næstum helmingi fljótara að skilja hvað snýr upp og hvað snýr niður í málinu. Þú vinnur verðmætan tíma, og Þetta er Evrópumaður, einn af toppmönnum hjá EBE. Ameríkanar fussa og sveia yfir svona bréfastafla á forstjóraborðinu. traust á þér sem virkum stjórn- anda eykst. Svo dæmi sé tekið til að skýra enn frekar við hvað er átt: í stað þess að segja: „Þetta er ekki hægt að fara að frarr.- leiða fyrr en markaðskönnun hefur farið fram“, væri tekið til orða á þennan hátt: „Við skulum láta söludeildina kanna markaðinn fyrir þessa vöru og sjá hvort við ættum ekki að fara út í þessa framleiðslu." Með því að byrja á því að draga fram kostina í stað gall- anna, þá er hægt að girða fyr- ir, að samstarfsfólk missi áhug- ann fyrir því að kanna nýjar leiðir og kynna nýjar hugmynd- ir, en það rýrir sköpunarmáit stjórnunarinnar sem skipulags- heildar i fyrirtækinu. Enginn kann við að hrópað sé að honum eða æpt á hann. Ef þú þarft að tala við ein- hvern undir fjögur augu eða fleiri, haltu þá raddstyrk þín- um jöfnum, án þess að sleppa áherzlum, og án þess að fara að hvísla eða muldra. Þegar þú hiustar á einhvern skýra sitt mál og þú telur, að hann hafi ekki rétt fyrir sér í ákveðnu atriði, segðu ekki: Virðulegt pennastatíf er nauð- synlegur hlutur á borði for- stjórans að mati bandarískra. .in Solid American Walnut, Black Crystal. Green and White önyx Antique Brass. Burgundy Color-Crest and Macassar Ebony. From Forty-Fjye Dollars * At Better Stores Worl(|wide. í;*' FV 4 1978 67

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.