Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 73
Morgunsvæfir
eiga að vakna
fyrir allar aldir
og notfæra sér
þannig ákjósan-
legustu starfs-
tíma en ekki bíða
fram á kvöld.
ur o. þ. h. Snertu ekki sterkt
áfengi nema að þú hafir efni á
að ljúka vinnudegi á þann hátt.
• Ef þú ert þreyttur og illa
upplagður þegar líður á seinni
hluta vinnudags skaltu ekki
hika við að taka þér hvíld.
Læstu hurðinni, láttu símann
bíða og leggstu á sófann. Hænu-
blundur er virkasta aðferðin til
þess að hvílast við þessar að-
stæður. Eftir 15 mínútna blund
ertu aftur í góðu jafnvægi.
• Sértu morgunhani þá skaltu
vakna fyrir allar aldir og not-
færa þér þannig þinn ákjósan-
legasta starfstíma. Sértu hins
vegar morgunsvæfur og vinnur
bezt þegar degi tekur að halla,
þá skaltu ekki djöflast á fætur
mjög snemma: Farðu seint á
fætur og starfaðu fram á rauða
nótt.
• Ein aðferð hefur reynst
mörgum notadrjúg. Hún er sú
að skipta vikunni í tvennt og
vinna heima hjá sér t. d. á mið-
vikudögum. Þeir, sem hafa
reynt þetta, telja flestir að sá
dagur verði fyrir bragðið
drýgstur, — mestu komið í
verk.
• Notaðu einn ákveðinn dag
vikunnar til þess að ljúka alls
konar smærri verkefnum, jafn-
vel pirrandi aukaatriðum, ó-
loknum formsatriðum frá fyrri
starfsdögum vikunnar o. s. frv.
• Gerðu aldrei neitt, sem þú
þarft ekki að framkvæma,
farðu aldrei inn á verksvið
annarra. Eitt af þínum hlut-
verkum er að sjá öðrum fyrir
nægilegum verkefnum. Verk-
efnaleysi er oftar ástæðan fyr-
ir óánægju meðal starfsfólks
heldur en annir. Deildu ábyrgð-
inni með samstarfsfólki til hins
ýtrasta og treystu því fullkom-
lega um leið.
• Settu hverju verkefni
ákveðin tímamörk, sérstaklega
þeim, sem krefjast sérstakrar
einbeitni.
• Gerðu ávallt skarpan
greinarmun á venjubundnum
verkefnum og þeim, sem krefj-
ast einbeitni og umhugsunar.
Eyddu ekki tíma í verkefni,
sem áður hafa verið leyst með
einföldum aðgerðum og reynst
hafa vel. Byrjaðu hvern dag
á því að vinza úr þau verkefni,
sem krefjast sérstakrar athug-
unar og ekki flokkast undir
venjubundin framkvæmdarat-
riði. Skiptu þessurii verkefnum
i tvo flokka og ýttu þeim venju-
bundnu og lítilvægari frá þér
og geymdu þau þar til þú hef-
ur tíma til að sinna þeim.
Flokkaðu síðan mikilvægari
verkefnin eftir forgangsröð og
taktu til við að leysa þau í
þeirri röð.
• Afmarkaðu ákveðinn tíma
dags, t. d. 1-2 klst., fyrir verk-
efni, sem krefjast sérstakrar
umhugsunar og tryggðu þér
næði á meðan.
• Hafðu ávallt við hendina
pappír og penna eða segulband
þegar þú vinnur að flóknari
viðfangsefnum, skráðu eða tal-
aðu inn á band þær athuga-
semdir, sem máli skipía. Að
öðrum kosti gleymast mörg
mikilvæg atriði málsins jafn-
óðum, en það rýrir óneitanlega
gildi niðurstöðunnar.
• Margar aðferðir hafa ver-
ið kenndar til þess að vinna
skipulega að lausn stjórnunar-
vandamála. Ein þeirra sem
skilar árangri er þessi: Lestu
lauslega og hratt yfir það sem
er handbært af upplýsingum
um málið þannig að aðalatriði
þess séu þér ljós. Næst skaltu
lesa með athygli í gegn um allt
málið og sirika undir þau at-
riði, sem eru mikilvæg. Að lok-
um skaltu hugleiða hvert at-
riði, draga þau saman í aðah
atriðum og skrá á blað. Þa fyrst
er hægt að fara að velta fyrir
sér mismunandi lausnum; Hug-
leiddu hvern valkost fyrir sig
t. d. með því að spyrja: Hvaða
ókosti hefur þessi lausn, hverj-
ir eru kostir hennar og hvaða
afleiðingar gæti hún hugsan-
lega haft. Sú lausn, sem hefur
flesta kosti og fæstar slæmar
afleiðingar, er sú rétta.
FV 4 1978
73