Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 80
fyrir verslun. Við slógúm okk-
ur saman og keyptum þetta hús
af dánarbúi Tómasar Björns-
sonar og fluttum verslanirnar
hingað. Að auki eru svo hérna
viðgerðaþjónusta Skrifstofuvéla
hf., Tölvuþjónustan hf., skrif-
stofa Krossanesverksmiðjunn-
ar, skrifstofur Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri og verslun
og verkstæði glerslípara.
ÞRJÁR VERSLANIR MEÐ
BÓKSÖLULEYFI
Á Akureyri eru 3 verslanir
sem hafa bóksöluleyfi og eru
þær allar staðsettar í miðbæn-
um. — Samkeppnin er alltaf
nokkuð hörð, sagði Aðalsteinn,
— en samstarfið er líka mjög
ánægjulegt. Samkeppnin hefur
orðið til þess að verslanirnar
hafa sérhæft sig. Bókabúð Jón-
asar hefur farið í bækumar,
Huld er í minjagripum, en ég
hef einbeitt mér að þjónustu
við skrifstofur og reyni að hafa
allar vörur sem þarf til skrif-
stofuhalds. Ég hef líka verið
eins konar umboðsmaður fyrir
Skrifstofuvélar hf. hér og hef
haft allar stærri vélar frá þeim
í umboðssölu, en selt þær
smærri alveg sjálfur. Svo er
mikill hluti af minni veltu í
vörum sem þarf fyrir þessar
vélar. Það er ekki svo lítið sem
þarf af ljósritunarpappír og
litaböndum o.s.frv. hér í bæn-
um. í fyrra var svo sett upp
verkstæði frá Skrifstofuvélum
hérna í húsinu og þeir senda
hingað menn sem veita alla við-
gerðaþjónustu fyrir þessar vél-
ar sem ég sel. Vélarnar, sem
eru af ýmsu tagi, hafa smám
saman orðið langstærsti hlut-
inn í versluninni hjá mér.
Næst á eftir koma pappírsvörur
og ritföng. Ég reyni þó að slá
ekki alveg slöku við bækurnar
og þessa dagana er ég með vísi
að bókamarkaði í búðinni hjá
mér.
—Það var líka tilviljun að
ég fór út í þessa grein, sagði
Aðalsteinn. — Það var fyrir-
tæki hér í bæ, sem óskaði eftir
því að ég útvegaði litabönd í
IBM ritvélar. Ég rakst því inn
hjá Skrifstofuvélum og þar var
mér boðið umboð, sem ég tók
við með hálfum huga.
UMBOÐ FYRIR ÚTSÝN
Meðan spjallað var við Aðal-
stein var sífellt verið að hringja
til að spyrja um sólarlandaferð-
ir. Þá kom í ljós að hann er
með umboð fyrir Útsýn á Ak-
ureyri. — Það hef ég haft síðan
ég byrjaði að versla hér, sagði
Aðalsteinn. Það hefur orðið svo
mikil aukning í því starfi, að
ég hef orðið manneskju í hálfu
starfi til að taka á móti pönt-
unum. Mars og apríl eru þó
aðal annamánuðimir, en þá er
fólk að panta sumarleyfisferð-
irnar.
Bókval stendur á nokkuð
miklu umferðarhorni og ósjálf-
rátt dettur manni í hug að það
sé út úr aðal straumnum um
miðbæinn. — Ég óttaðist þetta
líka í fyrstu, sagði Aðalsteinn,
— en það hefur komið í ljós að
ég hef ekki misst neina við-
skiptavini, fremur bætt við
mig. Svo eru ýmsar endurbæt-
ur á döfinni hér í nágrenninu,
sem eiga eftir að gera þetta að
ennþá betri stað. Hér fyrir neð-
an eru t.d. gamlar vöruskemm-
ur, sem eiga að hverfa og þar
koma mikil bílastæði í staðinn.
Sjálft húsnæðið er líka 100%
stærra en það gamla var og ég
hef ennþá stækkunarmöguleika
þegar glerslípunarverkstæðið
verður flutt, sem á að gerast á
næstunni.
Þar sem Aðalsteinn hefur
stundað verslun bæði á Akur-
eyri og í Reykjavík verður hon-
um ósjálfrátt á að bera þetta
saman. — Það eru vissulega
margir ókostir við að versla hér
á Akureyri, sagið hann. Flutn-
ingskostnaðurinn er mikill og
allir flutningar erfiðir. Þá er
símakostnaðurinn gífurlegur.
En það er skemmtilegra að vera
hér. Hér þekkir maður flesta
viðskiptavinina. Flest alla
stjórnendur fyrirtækja sem
kaupa vélar hér þekki ég per-
sónulega. Þó það sé dýrara að
versla hér, þá vil ég það ólíkt
frekar.
íbúðin:
Hefur sér-
hæft sig
* • • B
I solu
gólfteppa
Á Akureyri eru starfandi
nokkuð margar byggingarvöru-
verslanir. Sú þeirra sem er
einna nýjust heitir Ibúðin hf.
og er við Tryggvabraut 22. í
búðinni hitti Frjáls verslun
fyrir Ingvar G. Ingvarsson.
— Þetta byrjaði allt með því
að ég fór að selja teppi í um-
boðssölu heima í kjallara, sagði
Ingvar, — en svo fór þetta að
vaxa smám saman hjá mér og
varð að mínu aðalstarfi. Þá fékk
ég leigt húsnæði við Strand-
Ingvar G. Ingvarsson.
götuna, mjög lítið og ófullkom-
ið að vísu, en þar var ég í 2 ár.
Fyrst var bara opið frá 5—7.
Svo fór konan mín að vera
þarna meira og minna og svo
endaði þetta með því að ég var
kominn í þetta allur. í nóvem-
ber 1975 flutti ég svo í annað
80
FV 4 1978