Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 83
möstur og ýmislegt fleira og
þessa hluti húðum við alla
sjálfir. Þá er mikið af verk-
efnum sem koma frá ýmsum
aðilum. Til dæmis vinnum við
mikið fyrir Slippstöðina, enda
næstu nágrannar hennar.
— Hvað sandblásturinn
snertir, sagði Jóhann, — þá fer
hann þannig fram, að stálsvarfi
er blásið með 110 kílóa þrýst-
ingi á flötinn sem á að hreinsa.
Þetta er mjög mikilvirk aðferð,
sem alveg hvíthreinsar járn.
Það er eins með sandblásturinn
og húðunina. Við erum bæði að
blása okkar eigin framleiðslu
og hluti fyrir aðra. Við sand-
blásum mikið af því járni sem
Slippstöðin notar í skip sín og
svo allt það sem við kaldhúð-
um. Hins vegar kaldhúðum við
ekki annað en það sem við ekki
komumst yfir að heithúða.
FRAMLEIDDU STAURA
FYRIR ALLT LANDIÐ
— Reksturinn hjá okkur hef-
ur aukist mjög á síðustu árum,
sagði Jóhann. — Sérstaklega er
aukningin mikil í okkar eigin
framleiðslu. I rauninni þyrftum
við að stækka við okkur hús-
næðið, en við vitum ekki enn
hvenær hægt verður að ráðast
í svoleiðis stórvirki. Eins og er
erum við mest að framleiða
ljósastaura, en sú framleiðsla
er mest eftir pöntunum. Við
höfum til skamms tíma fram-
leitt ljósastaura fyrir allt land-
ið, en núna er komið annað fyr-
irtæki, sem framleiðir staura.
— Það er náttúrulega margt
fleira sem framleitt er hér,
saeði Jóhann. — Sem dæmi
má nefna sorpílát, sem mikið
hafa verið notuð hér á Akur-
eyri og frystiramma fyrir
frystihús. En ég tek það fram
að við erum eingöngu með ný-
smíði, en engar viðgerðir.
— Starfsmenn fyrirtækisins
eru 14, en yfir sumarið erum
við þó oftast fleiri, sagði Jó-
hann, — og fyrir hefur komið
að það hefur verið unnið á
vöktum hér. Þetta kemur af
því, að mikið af verkefnum raf-
magnsveitna fer fram á sumrin,
t.d. línulagnir og uppsetning
ljósastaura. Þó við reynum að
framleiða eitthvað á lager yfir
veturinn, þá dugar það ekki til.
AKUREVRI
ER BÆR FRAMFARANNA.
Þar bíða tækiftæri þeirra, sem kunna að nota þau.
Komið —
sjaið —
kynnist
AKUREYRI
framtíðarbær
FV 4 1978
83