Frjáls verslun - 01.08.1978, Side 11
þróun
Húsnæðismálastjórn ríkisins hefur frá 1. janúar til 1.
oktðber ueitt fyrsta hluta lán út á 1314 nýjar Ibúðir samtals
1,4 milljarð. A sama tímabili hafa verið veitt uiðbótarlán,
þ.e. annar og þriðji hluti, samtals 2,3 milljaröar.
Heildarlán fyrir nýjar íbúðir er nú 3,6 milljónir, en voru
á síðasta ári 2,7 milljónir. Allt síöasta ár voru veitt frum-
lán út á 1823 nýjar Ibúðir, samtals 1,6 milljarður og viðbót-
arlán að upphæð 2,3 milljarðar.
Hámarkslán til kaupa á eldra húsnæði verður 1. október
hækkað I eina milljón kr., en var I maí s.l. 800 þúsund. Meðal-
lánveiting er 725 þúsund kr. Frá áramótum til 1. október hafa
veriö veitt 1224 lán út á eldri íbúðir, samtals 756 milljónir.
85% þessara lána eru veitt vegna kaupa á eldra húsnæði I Reyk-
javík og Reykjaneskjördæmi.
Erlendir rlkisborgarar búsettir á Islandi voru 3.147 1. des.
1977. Flestir eru danskir, bandarlskir og brezkir. Danskir
rlkisborgarar búsettir hér 1. des. '77 voru 958, bandarlskir
581 og brezkir 311.
Slðasta ár flutti til Islands 491 erlendur ríkisborgari,
þ.e. átti lögheimili hér 1. des 1977, en erlendis 1. des 1976.
Fólk frá Astrallu og Nýja-Sjálandi hefur mikið sótt hingað
I fiskvinnslustörf, aðallega á Vestfirði og Austfirði. A síð-
asta ári störfuðu hér 70 Astrallumenn og 51 Ný-Sjálendingur.
Ymis skilyrði þarf að uppfylla til þess, aö erlendir ríkis-
borgarar geti komiö hingað til lengri eða skemmri dvalar. Þar
á meðal þar atvinnuleyfi, farmiða til baka frá landinu og Isl-
enzkt læknisvottorð fyrir alla nema Norðurlandabúa.
41 karlmaður og 12 konur voru skráö atvinnulaus hjá ráðn-
ingarskrifstofu Reykjavíkurborgar um miðjan september. 25
karlmannanna eru vörubllstjórar, en flestar konurnar hafa
verið I verzlunar- eöa verkastörfum.
I september er einna mest framboð á atvinnu, eftir að skól-
ar hefjast, en mesta eftirspurnin I mal og júnl, þegar skólum
lýkur. Tekizt hafði að útvega flestöllu þvl skólafólki atvinnu
I sumar, sem leitaði til ráðningarskrifstofunnar, og nú eru
töluverðar fyrirspurnir frá atvinnurekendum eftir fólki,sam-
kvæmt upplýsingum ráðningarskrifstofunnar.
Tala þeirra, sem verið hafa skráðir hjá ráðningarskrifstofu
Reykjavíkurborgar hefur verið svipuð undanfarin ár, og hlut-
fall milli karla og kvenna nokkuð jafnt.
Einna mest framboö hefur verið undanfarið á ýmsum verka-
störfum, þ.á.m. I byggingavinnu.
11