Frjáls verslun - 01.08.1978, Blaðsíða 33
viö sjó sem eftir er, er í Austur—
Scheldt. Áætlað hafði veriö að
Ijúka henni á þessu ári, en fram-
kvæmdir munu standa yfir til árs-
ins 1985. ( fyrstu var áformað að
endurbyggja flóðgarðana með-
fram ám og vogum og þræða
þannig 700 km strönd, en í staðinn
var ákveðiö að byggja stíflurnar
sem eru um 50 km samanlagt. (
Austur-Scheldt hafa verið gerðar
nokkrar smáeyjar úr grjóti og
steinsteypu, en á milli þeirra verða
síðan stíflurnar með opnanlegum
lokum úr stáli.
Umdeildar aðgerðir
Enn eru uppi miklar deilur um
þessar framkvæmdir í Hollandi og
leggja bændur áherzlu á að sjón-
um sé algjörlega haldið utan við
stíflurnar, en umhverfisverndar-
menn segja að nauðsynlegt sé að
hleypa honum inn fyrir. Bændurnir
eru að hugsa um jarðveginn í
ræktunarskyni og vilja vernda
hann gegn salti úr sjónum, en um-
hverfissinnar líta á fjölskrúðugt
fuglalífið, sem nú þrífst á þessum
slóðum og byggist á því að vað-
fuglar fái æti úr sjó. Því yrði stefnt í
hættu, ef áhrifa flóðs og fjöru gætti
ekki lengur innan við stíflurnar.
Einnig er þess að gæta, að flóða-
hætta getur skapazt af fljótunum
ef þau fá ekki frárennsli í sjó og
eins er það mikil mengun í þeim
aö hún gæti orðið sízt betri fyrir
gróðurfarið en saltið í sjónum. Því
hafa hollenzkir tæknimenn gert
stíflurnar opnanlegar með geysi-
stórum lokum, sem opnaðar eru
eftir þörfum til að hleypa út frá-
rennsli ánna og sjónum inn fyrir, ef
þörf þykir vegna lífríkis óshólm-
anna eða til aö tryggja nægilega
hátt vatnsyfirborö þannig að sigl-
ingar geti óhindrað farið fram á
skipaskurðunum inni í landi.
Frá Öshólmasvæðinu. Þessi tækjabúnaður
er notaður til að flytja grjót
og önnur fyllingarefni í stífluna.
StíflUgarðurinn við Ysselvatn, sem er 30 kílómetra langur.
'i'wrfíd