Frjáls verslun - 01.08.1978, Blaðsíða 39
Af fjarritanum...
Frá: Moskuu • Kaupmannahöfn • Brussel • Stokkhólmi • Oslð
Moskvu: Tölur yfir framleiöslu á fyrsta þriðjungi þessa árs
sýna, aö Sovátmenn munu ekki ná tveimur af þremur helztu mark-
miöum, sem sett voru fyrir þetta ár á sviði hráefnavinnslu til
orkuframleiðslu. Af þremur þáttum þessa framleiðslusviös gengur
jarðgasvinnslan ein samkvæmt áætlun, en hún skiptir þö minnstu
máli. Framleiðsla á olíu oq kolum, sem var langt frá þvl að
ganga samkvæmt úpphaflegum áætlunum árið 1977, virðist ætla að
verða talsvert undir þeim markmiðum, sem sett voru fyrir árið
1978, en reiknað hafði verið með 575 milljón tonnum af ollu og
746 milljðn tonnum af kolum.
Skortur á olíu h.i'á Sovátmönnum, sem bandaríska leyniþjónustan
var búin að spá I fyrra, gæti haft veruleg áhrif á útflutnings-
tekjur Sovétmanna. I fyrra seldu þeir olíu fyrir 13,3 mill.jarða
dollara, sem var 30% aukning frá 1976, en aðeins 7,5 milljarðar
af þessari upphæð voru I hörðum qjaldeyri.
Kaupmannahöfn: Uiðræður hafa farið fram milli tveqqja af
minni fluqfálöqunum á Norðurlöndum um samstarf á sviði tækni-
mála og flugrekstrar. Fálöqin,Mærsk I Danmörku oq Braathens
SAFE 1 Noreqi, hafa fundið samstarfsgrundvöll þar eö bæöi nota
þotur af geröinni Boeinq 737 oq taka virkan þátt I leiquflutn-
ingum. Ekki er ljóst I hverju samstarf félaganna verður fólgið,
en ljóst er, aö viðhald á þotuhreyflum sem er mjög kostnaðar-
samt, er þar efst á blaði. Félögin hafa hingað til unnið nokkuð
saman, að því leyti, aö bæði hafa tekið að sér flutning fyrir
Atlas-ferðaskrifstofuna 1 Svlþjóð, sem reyndar er I eigu Braathens
SAFE. Braathen er stærri aðilinn I þessum samningum og á nú
átta Boeing 737, sem senn verða ellefu, en Mærsk á þrjár válar og
tvær I pöntun. Félagiö á ennfremur fimm Boeinq 707.
Brussel: Forráðamenn samgöngumála I löndum Efnahagsbandalags
Evrópu hafa látið I ljós vaxandi áhyqqjur veqna umsvifa rlkis-
rekinna skipafálaqa I Sovátrlkjunum oq öðrum austantjaldslöndum,
sem sótt hafa fram á flutninqamarkaði Westur-Evrópulanda að undan-
förnu. Sovétmenn hafa tekiö vænan bita frá EBE-löndum I flutninqum
frá höfnum I Evrópu. Hafa EBE-rlkin þvl haft I hyggju að fylgjast
rækilega með allri starfsemi hinna sovézku skipafélaga og hugs-
anlega qrlpa til kvótreqlna á flutninga Sovétmanna ef þrýstingur
af þeirra hálfu á enn eftir að aukast. Sovétmenn hafa með undir-
boðum slnum um 40^b frá fröktum W-Evrópufélaga náð 25-35/£ allra
vöruflutninga frá höfnum I EBE-löndum á undanförnum mánuöum.
39