Frjáls verslun - 01.08.1978, Blaðsíða 36
Pepsi skákar Coke
Markaðshlutdeild
Pepsi í Bandaríkjun-
um hefur farið úr 15%
í 22% á fimm árum
I hálfa öld hefur Coca-Cola Co.
verið svo til einrátt á gosdrykkja-
markaði um víða veröld og hefur
ekki þurft að hafa neinar áhyggjur
af keppinautum sínum. Nafnið
Coce varð samheiti fyrir alla á-
þekka drykki. Svo ráðandi varð
Coce á markaðnum að eitt helzta
vandamál fyrirtækisins hefur ver-
ið að vernda nafnið gegn því að
útjaskast af slíkum almennum
notum.
Nú örlar loks á verulegri ógnun.
Pepsi-Cola, sem líka er gamal-
kunnugt merki á þessum markaöi,
stefnir að því að fara upp fyrir
Coce á heimamarkaði í Bandaríkj-
unum og einnig á mörkuðum er-
lendis.
,,Við ætlum ekki að bola Coce út
úr viðskiptum", sagði John Scully,
38 ára gamall forstjóri Pepsi-Cola
Div. íblaðaviðtali nýlega. „Samttel
ég að við getum tekið forystuna og
það verði rúm fyrir bæði fyrirtæk-
in“.
Aukið sjálfsálit
Bilið milli þessara tveggja gos-
drykkjaframleiðenda er að sönnu
breytt. Coce ræður um 34% af öll-
um gosdrykkjamarkaði vestan
hafs og 55% af alþjóðlega mark-
aðnum. En þeir hjá Pepsi hafa
ástæðu til að vera bjartsýnir og
Coce-mennirnir mega gæta að
sér. I fyrra varð magnaukning hjá
Pepsi um 11 % en 7,3% hjá Coce. Á
síðustu fimm árum hefur mark-
aðshlutdeild Pepsi á Bandaríkja-
markaði vaxiö úr 15% í 22%. Þetta
Barizt í návígi.
hefur aðallega gerzt á kostnað lít-
illa gosdrykkjaframleiðenda.
Sjálfsálit Pepsi-manna jókst líka til
muna viö það að sala fyrirtækja-
samsteypu Pepsi fór fram úr Coce.
Þó að Pepsi-Cola vegni vel um
þessar mundir, hefur ferill fyrir-
tækisins ekki verið einn samfelldur
dans á rósum. Á fimmta áratugn-
um, þegar matvælafyrirtæki á
neytendamarkaði spjöruðu sig yf-
irleitt mjög vel, var Pepsi hættu-
lega nærri því að fara á hausinn. Á
sjötta áratugnum bauö Pepsi að-
eins upp á eina vörutegund í
Bandaríkjunum einum saman
meðan Coce haslaði sér völl á er-
lendum mörkuðum og styrkti sig
heima fyrir með nýjum gos-
drykkjategundum. Á þar næsta
áratug hóf Pepsi að kaupa upp
ýmis konar fyrirtæki og hefur nú
nýlega fest kaup á veitingastaða-
keðjum. Rekstur veitingastaðanna
er meðal þeirra atriða, sem for-
ráðamenn Pepsi leggja nú höfuð-
áherzlu á í samkeppninni við
Coce. Fyrst og fremst er þó ætl-
unin að bæta markaðsstöðu
Pepsi-Cola gosdrykkja í Banda-
ríkjunum. Talsmenn Pepsi segjast
hafa náð forystu fram yfir Coce í
sölu gosdrykkja í matvöruverzlun-
um og nú liggi fyrir áætlanir um að
keppa við Coce, þar sem það fyr-
irtæki stendur traustustum fótum,
þ.e.a.s. í sölu úr gosdrykkjavélum
á veitingastöðum og í sjálfsölum.
Stór stund í Sovét
Hjá Pepsi tala menn um að
söluaukning utan Bandaríkjanna
verði 20 til 25% á þessu ári.
Coca-Cola hefur lengi haft tang-
arhald á markaðnum í N/estur-
Evrópu. Umsvif þess þar hófust á
fjórða áratugnum og jukust mikið í
seinni heimsstyrjöldinni. Pepsi átti
36