Frjáls verslun - 01.08.1978, Blaðsíða 44
Verðbólguvandinn
Grein eftir Halldór
Guðjónsson, dósent
Þetta er fyrri grein af tveim,
þar sem Halldór gerir at-
hugasemdir við skýrslu
verðbólgunefndarinnar
svonefndu, sem birt var fyrr
á árinu.
í febrúar síðastliðnum kom út bókin Verð-
bólguvandinn, álit nefndar, sem ríkisstjórnin
skipaði 21. október 1976 til að kanna horfur í
verðlagsmálum og gera tillögur um ráðstaf-
anir til að draga úr verðbólgu. Þessi skýrsla
hefur síðan verið notuð til að rökstyðja ýmsar
stjórnaraðgerðir auk þess sem frambjóð-
endur við nýafstaðnar kosningar hafa oft
vitnað til skýrslunnar. Ef að líkum lætur
verður skýrslan grunnur að efnahagsráð-
stöfunum ríkisstjórnar landsins. Vegna
þessa mikilvægis skýrslunnar væri mjög
eðlilegt að skýrslan sjálf væri athuguð og
rædd gaumgæfilega. En þetta hefur ekki
verið gert. Allir þeir sem á einhvern hátt hafa
vísað til skýrslunnar virðast gera það nánast
án þess að hafa lesið hana nema að litlum
hluta. Helst mætti ætla að menn mætu
skýrsluna eftir blaðsíðufjölda eða þyngd.
Trúlega er þaó svo um flesta sem fá
skýrsluna í hendur að þeir telja sig ekki hafa
nægilegt tæknilegt vit til að lesa hana af
gagnrýni og leiðast því vegna brýnnar nauð-
synjar á ákvörðunartöku til að taka skýrsluna
sem samstæða heild, fullunnið og traust verk
sem ekki sé ástæða til að lima sundur heldur
beri að ganga út frá því sem gefnu og beita
því. Þetta er mjög miður farið þar sem skýrsl-
an er alls ekki svo flókin eða tæknileg, að
almenningur fái ekki skilið hana.
Hættulegt andvaraleysi
Það andvaraleysi sem menn hafa þannig
sýnt gagnvart skýrslunni er reyndar mjög
hættulegt þar sem í henni eru mjög margar og
alvarlegar villur.
Hér á eftir veróa raktar þrjár villur sem í
skýrslunni er að finna. Það væri auðvelt að
rekja mun fleiri villur og vegna mikilvægis
málefnisins væri full ástæöa til að gera það,
en til þess þyrfti nær eins mikla vinnu og fariö
hefur í skýrsluna sjálfa. Því verða þessar þrjár
athugasemdir að nægja enda eru þær
dæmigerðar um það annað sem er athuga-
vert viö skýrsluna.
Áður en vikið er að gagnrýninni er rétt aö
geta þess að engin sérstök ástæða virðist til
að gagnrýna þær tölulegu upplýsingar sem
fram koma í skýrslunni. Þessar upplýsingar
eru í sjálfu sér gagnlegar og þakkarvert að
þeim skuli öllum safnað saman á einn stað.
Þegar horft er til villanna sem hér verða raktar
á eftir læöist þó að efi um að þessar upplýs-
ingar séu í raun marktækar hversu nákvæmar
og réttar sem þær kunna að vera. Villurnar
gefa fullt tilefni til að efast um að sá hug-
myndarammi sem ræður upplýsingasöfnun-
inni taki nokkuð miö af þeim fræðum sem
líklegust eru til árangurs í viðureign við verk-
efni nefndarinnar.
44