Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 44

Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 44
Verðbólguvandinn Grein eftir Halldór Guðjónsson, dósent Þetta er fyrri grein af tveim, þar sem Halldór gerir at- hugasemdir við skýrslu verðbólgunefndarinnar svonefndu, sem birt var fyrr á árinu. í febrúar síðastliðnum kom út bókin Verð- bólguvandinn, álit nefndar, sem ríkisstjórnin skipaði 21. október 1976 til að kanna horfur í verðlagsmálum og gera tillögur um ráðstaf- anir til að draga úr verðbólgu. Þessi skýrsla hefur síðan verið notuð til að rökstyðja ýmsar stjórnaraðgerðir auk þess sem frambjóð- endur við nýafstaðnar kosningar hafa oft vitnað til skýrslunnar. Ef að líkum lætur verður skýrslan grunnur að efnahagsráð- stöfunum ríkisstjórnar landsins. Vegna þessa mikilvægis skýrslunnar væri mjög eðlilegt að skýrslan sjálf væri athuguð og rædd gaumgæfilega. En þetta hefur ekki verið gert. Allir þeir sem á einhvern hátt hafa vísað til skýrslunnar virðast gera það nánast án þess að hafa lesið hana nema að litlum hluta. Helst mætti ætla að menn mætu skýrsluna eftir blaðsíðufjölda eða þyngd. Trúlega er þaó svo um flesta sem fá skýrsluna í hendur að þeir telja sig ekki hafa nægilegt tæknilegt vit til að lesa hana af gagnrýni og leiðast því vegna brýnnar nauð- synjar á ákvörðunartöku til að taka skýrsluna sem samstæða heild, fullunnið og traust verk sem ekki sé ástæða til að lima sundur heldur beri að ganga út frá því sem gefnu og beita því. Þetta er mjög miður farið þar sem skýrsl- an er alls ekki svo flókin eða tæknileg, að almenningur fái ekki skilið hana. Hættulegt andvaraleysi Það andvaraleysi sem menn hafa þannig sýnt gagnvart skýrslunni er reyndar mjög hættulegt þar sem í henni eru mjög margar og alvarlegar villur. Hér á eftir veróa raktar þrjár villur sem í skýrslunni er að finna. Það væri auðvelt að rekja mun fleiri villur og vegna mikilvægis málefnisins væri full ástæöa til að gera það, en til þess þyrfti nær eins mikla vinnu og fariö hefur í skýrsluna sjálfa. Því verða þessar þrjár athugasemdir að nægja enda eru þær dæmigerðar um það annað sem er athuga- vert viö skýrsluna. Áður en vikið er að gagnrýninni er rétt aö geta þess að engin sérstök ástæða virðist til að gagnrýna þær tölulegu upplýsingar sem fram koma í skýrslunni. Þessar upplýsingar eru í sjálfu sér gagnlegar og þakkarvert að þeim skuli öllum safnað saman á einn stað. Þegar horft er til villanna sem hér verða raktar á eftir læöist þó að efi um að þessar upplýs- ingar séu í raun marktækar hversu nákvæmar og réttar sem þær kunna að vera. Villurnar gefa fullt tilefni til að efast um að sá hug- myndarammi sem ræður upplýsingasöfnun- inni taki nokkuð miö af þeim fræðum sem líklegust eru til árangurs í viðureign við verk- efni nefndarinnar. 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.