Frjáls verslun - 01.11.1981, Síða 6
nTDGCL^sia) ^ eT©P3QJ:
Hagur
verzlunarinnar
batnaði ekki
1980
Áætlanir um hag verzl-
unar á árinu 1980 benda
ekki til þess að afkoman hati
batnað frá árinu áður.
Meðalálagning, bæði í smá-
sölu og heildsölu hefur þó
farið hækkandi og er árið
1980 svipuð og hún var að
meðaltali árið 1978.
Hreinn hagnaður sem
hlutfall af tekjum er í áætl-
unum Þjóðhagsstofnunar
svipaður í heildsölu og
smásölu, sem er ólíkt því
sem hefur verið undanfarin
ár. Hagnaður heildverzlunar
hefur yfirleitt verið hærri en
hagnaður í smásöluverzlun.
I skýrslu Þjóðhagsstofnunar
um verzlun segir, að á það
beri að líta, að áætlanir fyrir
árið 1980 séu um margt
óvissar vegna mikilla verð-
hækkana frá árinu 1978 og
samanburður við fyrri ár því
torveldur m.a. vegna nýrra
reglna um tekju- eða gjald-
færslu á verðbreytingum
peningalegra eigna og
skulda.
Athugun á veltitölum
samkvæmt söluskattsfram-
tölum árin 1979 og 1980, og
sem m.a. hefur verið höfð til
hliðsjónar við gerð áætlunar
1980, leiðir í Ijós að velta
smásöluverzlunar hafi í
heild aukizt um 55,3% á ár-
inu 1980. Á sama tíma jókst
velta heildverzlunar án olíu-
verzlunar um 59%. Veltu-
breytingar þessar benda
ekki til þess aö selt magn í
verzlunum í heild hafi aukizt
á árinu 1980 en þó nokkur
munur er á veltubreytingum
eftir greinum. Þannig virðist
vera meiri veltuaukning í
byggingavöruverzlun en í
annarri heildverzlun og i
smásölu er mest veltuaukn-
ing í rekstri söluturna, í fisk-
verzlun, blómaverzlun,
bóka- og ritfangaverzlun og
lyfjaverzlun. Hins vegar hef-
ur velta i fataverzlun og í
verzlunum er selja búsáhöld
og heimilistæki aukizt
minna en að meðaltali í
smásölunni.
Sígur enn á
ógæfuhliðina
í húsgagna-
iðnaði
STARFSMÖNNUM í hús-
gagnaiðnaði fækkaði um
15% á milli áranna 1978 og
1979 og þá jókst innflutn-
ingur húsgagna og innrétt-
inga um 42% frá árinu 1979
til 1980. Þessar upplýsingar
koma m.a. fram í fréttabréfi
Landssambands iðnaðar-
manna, 4. tölublaði.
,,Nú sígur enn á ógæfu-
hliðina hjá okkur, ástandið
versnar enn," sagði Sigurð-
ur Kristinsson forseti
Landssambands iðnaðar-
manna í samtali við blaðið.
,,Bæði eykst innflutningur
hlutfallslega á húsgögnum
og hlutdeild íslenskra fram-
leiðenda á markaðinum
minnkar að sama skapi. Út-
litið er afar svart. Margir
framleiðendur hafa þegar
lagt niður reksturinn vegna
þessa," sagði Sigurður.
Sigurður sagði ennfremur
að starfsmönnum hefði
fækkað enn frekar í hús-
gagnaiðnaði, en þó væri
ekki um atvinnuleysi að
ræða hjá smiðum, því þeir
gengju í önnur störf í þess-
um iðnaði.
„Til úrbóta núna duga
engar smáskammtalækn-
ingar og þær aðgerðir sem
við og Félag íslenskra iðn-
rekenda lögðum til um ára-
mót, duga ekki lengur í dag,
það hefur sáralítið eða ekk-
ert verið aðhafst í þeim mál-
um. Það vantar ekki skilning
iðnaðarráðuneytisins á
þessu og það reyndi að
beita sér fyrir þeim aðgerð-
um sem við lögðum til, en
það náðist ekki samstaða í
ríkisstjórninni um þær. Á
meðan svo er og áfram
heldur að síga á ógæfuhlið,
þá þarf meiri, ákveðnari og
sértækari aðgerðir til að
bæta úr þessu ástandi.
Þetta er sú iðngrein sem við
höfum einbeitt okkur að,
miðað við það sem er í
EFTA-samkomulaginu, en
það er til verulegra vand-
ræða. í samkomulaginu
segir að ef til verulegra
vandræða kemur í ákveðn-
um iðngreinum, þá skuli
bætt úr því. En hvort þær
þurfi að leggjast algerlega
niður svo að til úrbóta sé
gripið, það getur maður ekki
skilið," sagði Sigurður
Kristinsson.
Léttvæg
sérfræðiálit
að dómi
meirihlutans
Meirihluti borgarstjórnar
Reykjavíkur samþykkti fyrir
nokkru að heimila KRON og
Sambandinu að reka stór-
markað í Holtagörðum, á
hafnarsvæði Reykjavíkur
viö Elliðavog. Er þetta at-
hyglisverð samþykkt í Ijósi
þeirra umsagna, sem sér-
fræðingar hafnarinnar og
skipulagsyfirvalda borgar-
innar höfðu látið frá sér fara
áður en málið kom til end-
anlegrar afgreiðslu. Munu fá
dæmi þess að meirihluti í
borgarstjórn hafi jafnein-
dregið virt að vettugi sér-
fræðiálit af því tagi, sem
viðkomandi verkfræðingar
borgarstofnana létu frá sér
fara varðandi þessa um-
sókn.
í minnisblaði Hannesar
Valdemarssonar, verkfræð-
ings Reykjavíkurhafnar, til
hafnarstjórans, segir svo:
„Rekstur stórmarkaðs á
hafnarsvæði Sundahafnar
gengur þvert á samþykkta
landnotkun svæðisins og
þrengir að hafnsækinni
starfsemi, sem þar er ætlað
athafnarými.
Námskeið
fyrir konur
í stjórnunar-
störfum
Stjórnunarfélag (slands er
nú að undirbúa námskeið
um tölvufræðslu, sem haldið
verður eftir áramótin. Mikil
vinna hefur verið lögð í það,
að gera þetta námskeið sem
best úr garði. Markmiðið er
að þátttakendur fái tækifæri
til að kynna sér þessa tækni
sem best. Ýmis tækjabún-
aður verður til staðar, sem
þátttakendur vinna við og
læra að fara með.
Þá hefur einnig verið
ákveðið að halda námskeið í
byrjun febrúar, sem sér-
staklega er ætlað konum. Á
námskeiðinu verður fjallað
um þau margvíslegu vanda-
mál, sem konur í stjórn-
6