Frjáls verslun - 01.11.1981, Side 56
=bygg*
meðan stórmarkaðamennirnir
ráða Kaupmannasamtökunum,
eins og þau orða það. Segja þau
það þó ekki ofmælt að hverfa-
verslanirnar fái slík leyfi með hlið-
sjón af því að mikið er um það að
fólk verslar í brýnustu nauðsynjar í
hverfaverslununum alla vikuna,
jafnvei út í reikning, en gerir svo
stórinnkap í mörkuðunum fyrir
helgarnar.
Hvað sem þessu líður ætla þau
að halda áfram rekstri sínum. ,,Við
höfum áhuga á þessu, það ereins
og það sé eitthvert þjónustueðli í
okkur, ætli við höfum ekki verið
þjónar einhvers fyrirfólks í fyrra
lífi", er það síðasta sem þremenn-
ingarnir láta frá sér fara í þessu
stutta raþþi.
Veltan margfaldaðist við
auglýsingaherferðina
— auðveldara að versla með húsgögn en matvöru
„Það er mikill munur á að versla með matvöru eða rúm“ segir Finnur, ánægður
með nýja hlutverkið.
„Ég tel mig hafa fundið mig í
þessari grein verslunarinnar þótt
ég hafi unnið við matvöruverslun
allt frá fermingu og nú síðast átt
Finnsbúð að Bergstaðastræti,“
sagði Finnur Magnússon, eigandi
húsgagnaverslunarinnar Hreiðrið
að Smiðjuvegi 10, er FV leit inn til
hans nýlega á eins árs verslunar-
afmæli hans í húsgögnum. Fyrir-
tækið er hinsvegar orðið tveggja
ára. Þegar Finnur keypti það, var
veltan fremur lítil, enda vissu fáir
um verslunina. Greip hann þá til
þess ráðs að auglýsa hana vel upp
og bar það þann árangur að veltan
hefur stóraukist og hafa auglýs-
ingarnar staðist vonir hans um
árangur.
Hreiðrið er sérverslun með rúm
og hillusamstæður þótt þar séu
fáeinir aðrir hlutir á boðstólnum,
enda telur Finnur vænlegast að
sérhæfa sig á sviði húsgagnasölu
til að geta boðið sem fjölbreyttast
vöruúrval í viðkomandi vöruflokki.
Finnur var ekki lengi búinn að
versla þegar hann stækkaði versl-
unarplássið og nú er í bígerð að
stækka það enn.
Rúm eru rúmfrek vara þannig að
ekki veitir af 360 fermetra húsnæði
sem fyrirtækið er nú (. Öll húsgögn
í Hreiðrinu eru innflutt svosem frá
Danmörku og Ítalíu og eráberandi
hvað unga fólkið er hrifið af furu
þessa dagana en eldra fólkiö af
dekkri viðartegundum.
í austurhluta Kópavogs eru
samtals sjö húsgagnaverslanir svo
Finnur er spurður hvort sam-
keppnin sé ekki óbærilega hörð:
,,Nei, ég held þvert á móti að þessi
fjöldi sé öllum til góöa því fólk vill
gjarnan geta borið saman áður en
það tekur endanlega ákvörðum
um kaup og þá hentar vel að það
geti skoðað mikið úrval á litlu
svæði,“ sagði hann.
Þegar Finnur er í stuttu máli
beðinn að bera saman verslunar-
hætti i matvöru og húsgögnum,
segir hann að matvörukaup-
mennskan sé talsvert erfiðari. All-
an daginn sé verið að afgreiða
smáhluti þar, en ein sala í hús-
gagnaversluninni geri ef til vill
sömu útkomuna. Þó taldi hann
matvöruverslunina tryggari þar
sem fólk héldi áfram að boröa þótt
eitthvað þrengdi að fjárhagnum,
en það sparaði fremur við sig hluti
eins og húsgögn, þegar þannig
stæði á.
Að lokum var hann spurður
hvort hann hyggði ef til vill á
breytta verslunarhætti: ,,Nei, eina
breytingin gæti orðið frekari
stækkun á verslunarplássinu.“
56