Frjáls verslun - 01.04.1983, Blaðsíða 24
unum breytt þannig að þau
yrðu til lengri tíma og maður
var svo mikill asni að trúa því
að fyrr eða síðar hitti maður
á þankastjóra með bein í
nefinu, — við vorum að reka
iðnfyrirtæki en ekki að fjár-
magna einhverja óhóflega
einkaneyslu.
Þeir birtust síðan einn
daginn og tóku báöa bílana,
stóran amerískan jeppa sem
ég notaði og lítinn japansk-
an sem ég hafði fyrir kon-
una, það var löngu áður en
uppboóið átti aó fara fram.“
— Hvað gerist svo?
,,Nú þetta þasl hélt áfram,
maður var eins og útspýtt
hundskinn í að ná inn pen-
ingum og slá. Það sem ég
held að hafi riðið bagga-
muninn var að þeir hús-
byggjendur sem viö unnum
fyrir voru flestir á hausnum
líka og við sátum uppi með
ógreidda reikninga og fallna
víxla sem engin leið var að
koma í pening. Það hafði að
sjálfsögðu ekki farið framhjá
mörgum að viö áttum í
erfiðleikum. Auglýsingar um
nauðungaruppboö sáu til
þess og það hafði strax áhrif
á söluna, hún minnkaði.
Síðan varaöi maöur sig ekki
á því að húsið var komið á
uppboð líka og maður
reyndi að bjarga því fyrst og
fremst. Það var því ekkert
aflögu til að setja uppí kröf-
urnar á .jílunui og einn
daginn er komið að upp-
boðinu. Ég átti ekki krónu
með gati og því var ekki um
neitt að semja. Ég var líka
farinn að þreytast á þessu
öllu saman og farinn að
hugleiða aó gefa hreinlega
skít í þetta alltsaman. Á
uppboðinu fóru báðir bíl-
arnir, sá japanski á hálfvirði
miðað við gangverð og þó
var þetta nýr og lítió ekinn
bíll, en jeppinn fór á verði
sem var um einn þriðji
gangverðs. Það vildi þó til
að það var síðar haft sam-
band við mig og mér boðinn
bíllinn aftur gegn ákveðnum
samningum um greiðslu
skuldarinnar sem ég gat
ráóið við. Þarna hafði lög-
maðurinn látið slá sér bílinn
sjálfur og var, án þess aó
honum bæri skylda til, að
forða mér frá enn meira tapi.
Því miður eru svona lög-
menn of sjaldséðir en ég er
viss um aó þeir ná mestum
árangri þegar upp er staðið.
Þarna tapaði ég miklum
peningum þótt betur færi en
á horfðist, en það eru ekki
allir jafn heppnir á þessum
vettvangi.
— Hvað með fyrirtækið,
hélduð þið áfram rekstr-
inum?
,,Nei við vorum búnir aöfá
nóg. Iðnaðarhúsið, sem við
höfðum byggt sjálfir, seldum
við og fór það slétt uppí
skuldir sem hvíldu á því auk
kostnaðar, dráttarvexti
o.s.frv., en þaö skrýtna erað
sá sem keypti húsið gat
fengið mun lengra lán en við
og breytt stystu lánunum í
eitt til lengri tíma og það í
sama bankanum og við
höfóum skipt við. Það er
nefnilega ekki sama hver á í
hlut þegar leitað er til bank-
anna. Trésmíðavélarnar
seldum við út á land en þær
fóru á gangverði sem var
langt undir verði nýrra eða
nýlegra véla. Og það er nú
einnig saga að segja frá því,
— sá sem keypti vélarnar
greiddi þær með víxlum sem
voru fyrirfram keyptir af
banka, víxlum sem okkur
hafði verið sagt hvað eftir
annaó í bönkum að engin
leið væri að selja þar sem
bankar væru hættir að
kaupa víxla nema í undan-
tekningartilfellum.
— Og hvernig er staðan í
dag?
,,Hún er ekkert glæsileg,
ég og félagi minn sitjum
uppi með skuldir vegna
fyrirtækisins, sem var sam-
eignarfélag með ótakmark-
aðri ábyrgð. Þriggja ára
streö gaf okkur nánast ekk-
ert í aðra hönd nema tap og
auknar skuldir. Ef maður er
heppinn með vinnu þá tekst
manni sennilega að halda
húsinu en ég er farinn að
efast um að það sé á sig
leggjandi, ég er ekki orðinn
fertugur en samt finnst mér
ég vera orðinn eldgamall.
Þegar ég lít til baka finnst
mér síðustu tuttugu árin
hafa verió eitt brjálæðis
veðhlaup, maður hefur
aldrei notið þess að vera til,
kann það einfaldlega ekki
og þetta hefur bitnað á okk-
ur hjónunum þannig að ég
held við séum orðin þreytt á
lífinu langt um aldur fram,
krakkarnir okkar eru komin
á táningaaldurinn án þess
maður hafi orðið þess var,
— man einfaldlega ekki eftir
því að hafa haft tíma til að
fylgjast með sínum eigin
börnum vaxa upp, — ég er
búinn að sjá það núna, al-
veg sama hvað allri þjóð-
rembu og monti líóur og öllu
því kjaftæði um að við fs-
lendingar hefðum það best
allra þjóða, að þetta er
skítaþjóðfélag og maöur á
að pilla sig burt á meðan tök
eru á því.“
— Eru þetta ekki bara
eðlileg viðbrögð þess sem
hefur mistekist, þú ert
vondur út í allt og alla vegna
þess að þér gekk ekki allt í
haginn?
„Það er klárt mál, ég er
Framhald á bls. 68
24