Frjáls verslun - 01.04.1983, Síða 33
Samstarfið við SAS
Eins og kunnugt er hefur
samstarf milli Flugleiða og SAS
aukist verulega. Þeir Knut og
Skarphéðinn voru spurðir hvað
fælist aðallega í þessu aukna
samstarfi.
Aö sögn Knut var þaó í stór-
um dráttum þannig:
1. SAS hætti í bili flugi til (s-
lands.
2. Flugleiðir fljúga tvisvar í
viku undir sameiginlegu flug-
númeri Flugleiða og SAS, einu
sinni í viku til Kaupmanna-
hafnar og einu sinni í viku til
Oslo og Stokkhólms.
3. Flugleiðir veita SAS aðgang
aö Alex bókunarkerfi sínu og
SAS leyfir Flugleiðum aðgang
að sínu bókunarkerfi.
Þeir Knut og Skarphéóinn
töldu að þetta samstarf væri
mjög mikilvægt. Baráttan í
flugrekstri væri hörð og sam-
starf væri óhjákvæmilegt til að
dreifa ekki um of kröftunum í
baráttu á markaði þar sem vart
er pláss nema fyrir einn aðila.
Mikil aukning á Atlants-
hafinu
Eins og kunnugt er hefur á
undanförnum tveimur árum
oróið mikil aukning á flutning-
um Flugleiða á Noróur-At-
lantshafsleiðinni. Einar Gúst-
afsson skýrði frá því að far-
þegafjöldi hefði aukist um 60%
á milli áranna 1981 og 1982.
,,Það verður aó teljast geysi-
mikil aukning. Við reiknum
með 25% fjölgun farþega á milli
áranna 1982 og 1983 þannig
að um gæti orðið að ræða tvö-
földun farþegafjöld frá 1981.“
— En hvað með fargjöldin
og hina hörðu samkeppni sem
háð hefur verið á þessari flug-
leið síðastliðin ár?
Einar sagði að um tvenns
konar samkeppni væri aó
ræða. í fyrsta lagi þá heyja
stóru flugfélögin mikið stríð
innbyrðis sem fyrst og fremst
kemur fram í lækkuðu verði. f
öðru lagi verður líklega um
tvöföldun og ef til vill þreföldun
á framboði á leiguflugi á Norð-
ur Atlantshafsleiðinni í ár frá
því í fyrra. Verðin hjá Flugleið-
um voru gjarnan um $100 undir
veröi stóru félaganna árið 1982
en nú er verómunurinn aðeins
um $25—30. Þetta sýnir Ijós-
lega aó samkeppnin fer harðn-
andi sérstaklega frá New York,
en meiri frióur ríkir á Chicago
markaðnum.
,,Ég er þeirrar skoðunar,"
sagöi Einar, ,,að samningar um
talsvert magn ferða við ferða-
skrifstofur hjálpi okkur í hinni
hörðu samkeppni. En það sem
fyrst og fremst gerir það aó við
stöndum af okkur samkepþn-
ina er sú staðreynd að við höf-
um endurunnið það traust sem
viö áður höföum meðal neyt-
enda. Það er aðalatriðið."
Nokkuð ójafnvægi er á
mörkuóum austan hafs og
vestan að sögn Einars þannig
að salan hati aukist hraðar í
Bandaríkjunum en í Evrópu en
stööugt er unnið aö því að
koma á auknu jafnvægi.
Einar skýrði einnig frá því að
Flugleiðir áætla aö nota um 1
milljón Bandaríkjadollara til
auglýsingastarfsemi í Banda-
ríkjunum á þessu ári. Mark-
hópur Flugleiða er aö sögn
Einars fólk með meðaltekjur.
Mikið er auglýst í dagblöðum,
stærri tímaritum og fagtímarit-
um um ferðamál.
Aðspurður um hvernig hann
sæi framtíðina sagöi Einar aó
hún væri mjög undir því komin
að breiðþotur yröu keyptar
sem allra fyrst. ,,Það er spurn-
ing um líf og dauöa Atlants-
hafsflugsins."
VAXTARLAG
VERTU I TAKT VIÐ TIMANN!
VIO EIGUM FÖT Á FLESTA 0G
SÉRSAUMUM Á ALLA.
ER EKKERT
ANDA
MAL
3Ö
si*
JAKKAFÖT,
STAKAR BUXUR 0G
STAKIR JAKKAR.
Snorratxaut Simi 13505
VERSLIÐ ÞAR SEM VERÐIÐ ER GOTT
33