Frjáls verslun - 01.04.1983, Side 64
stundum upp á herbergi til
hans— upp í Lífshlaupið.
Ég kynntist líka Guðmundi
frá Miðdal. Við vorum saman í
Fjallafélaginu. Áhrif og kunn-
ingsskapur þessara manna
gerði það að verkum, aö ég var
kominn inn í þetta áóur en ég
vissi af. Áhuginn á list er feng-
inn eins og með sprautu í æð.
Mér fór að þykja vænt um
myndir og byrjaði aö safna án
þess aö gera mér grein fyrir til-
gangi þess eða setja mér
nokkurt markmið í þeim efnum.
Sumar myndir fékk ég gef-
ins. Jóhannes Kjarval gaf mér
t.d. einar þrjár myndir fyrir
smásnatt. Það eru myndir sem
ég held mikió uþp á. Ég keypti
líka af honum myndir. Svo
smám saman óx þetta, eöa
þróaðist eins og menn segja
núna. Ég fór að láta meira og
meira fé í þetta.
— Leituðu málarar til þín og
föluðust eftir að selja þér?
— Já, þaö kom oft fyrir. Ég
fór á sýningar og hef alltaf sótt
þær vel og frá fyrstu tíð að
Sigurður Benediktsson hóf
málverkauppboð vantaði mig
aldrei og ég keypti mikið.
— Þú hefur látið mikið fé í
þetta?
— Stundum kom þaö fyrir
aó maður lét síóasta aurinn í
málverkakaup og safnið hefur
vaxið og vaxió eiginlega án
þess að maóur vissi af.
— Eru þau öll á veggjum
hjá þér?
— Heita má aö svo sé. Ég
átti aldrei það mikið að ég
kæmi því ekki fyrir, þó ég væri
ekki í stórum íbúðum. En þaó
voru þá allir veggir sæmilega
þétt skipaóir. Svo byrjaói ég að
byggja Hótel Holt og þá fengu
málverkin gott pláss. Á göng-
unum í Hótel Holti eru t.d. allar
myndir Gaimars, alls 142 eóa
143 myndir úr þókinni hans. Á
herbergjunum eru listaverk ís-
lenskra málara, tvö til þrjú í
sumum herbergjunum. Þareru
líka lágmyndir eftir Ragnar
Kjartansson og Hring Jóhann-
esson.
Á veggjum skrifstofu Þor-
valdar í Dalshrauni var fjöldi
listaverka og við beindum tal-
inu að lítilli styttu í hillu þar.
— Þetta er, aö því mér er
tjáö, frumdrög að minnisvarða
um Hallgrím Pétursson eftir
Einar Jónsson myndhöggvara.
Þetta er frummyndin. Ég fékk
styttuna hjá konu búsettri í
Kauþmannahöfn. Koþarsteypa
af þessu verki er til í sömu
stæró í Hallgrímskirkju. Ég gaf
það kirkjunni til minningar um
móður mína.
Á miðjum vegg gengt dyrum í
skrifstofu Þorvaldar er máluð
mynd af móður hans. Hún varó
86 ára gömul, vinnuhestur
mikill, fræg dugnaðarkona,
sem hélt sjón og heilsu til
dauóadags; lá síðustu viku lífs
síns. Hún sá og lifði flesta þætti
hins ævintýralega lífsferils
einkasonar síns, sem fæddist
er hún var í húsmennsku
austur aö Holti undir Eyjafjöll-
um.
í stórum sal á annarri hæð
uppi yfir athafnasvæði fyrir-
tækisins Síld og fiskur, er
stærðar salur. Hann hefur
hlotió nafnið Háholt. Þar og
víóar eru mörg heimsfræg
listaverk og óborganleg íslensk
listaverk sem Þorvaldur hefur
safnað m.a. Lífshlaupið fræga,
sem Kjarval teiknaði og málaði
á veggi herbergis síns í Aust-
urstræti.
— Fleiri áhugamál en mál-
verkasöfnun?
— Ekki lengur, en ég
stundaði áður fyrr og naut vel
skíða- og jöklaferóa — var í
Fjallafélaginu með Guómundi
frá Miðdal. Við fórum víða um
jökla eiginlega alla þá helstu
nema Vatnajökul. Ég fór á
Drangajökul, Snæfellsjökul,
Þórisjökul, Mýrdalsjökul, Tind-
fjallajökul og ýmsa aðra auk
margvíslegra og tíðra feröa um
önnur fjöll og óbyggðir.
— Laxveiði?
— Nei, ég hef aldrei fengið
þá bakteríu, því miður.
— Ertu ekki þolinmóður?
— Ég hugsa að ég sé þaö
nú eiginlega ekki. Ég vil heldur
láta eitthvað gerast. Ég hafði
þó gaman af þessu, þegar
hann beit á. En einhvern veg-
inn hefur laxveiöin aldrei höfð-
að til mín. Vinnan tók alltaf all-
an manns tíma.
Fylgismaður
frjálshyggjunnar
— Nú er Síld og fiskur í
Hafnarfirði og selur ekkert
nema svínakjötsafurðir í
heildsölu?
— Við seljum til verslana á
öllu stór-Reykjavíkursvæðinu
og dálítið út á land. Fram-
leiðslan er fjölbreytt en þó ekki
unnar aðrar afuróir en koma
frá búinu á Minni-Vatnsleysu.
— Allt af þessum 300 gylt-
um þínum?
— Þær hafa að vísu ekki
alltaf verið svona margar. Voru
270 á síðasta ári, en nú eitt-
hvað tæplega 300. Svínakjötið
þykir gott og Síld og fiskur
dafnar og stækkar svona hóf-
lega.
— Ef þú lítur um öxl, finnst
þér aðstaða til reksturs og
umsvifa í viðskiptasviðinu fara
versnandi eða batnandi?
— Ég verö nú að segja, að
allt hefur þetta þróast ágæt-
lega yfirleitt. Neyslan í þjóöfé-
laginu fer alltaf vaxandi og það
hefur skapað mér möguleika til
útvíkkunar á rekstri og stækk-
unar.
— Þú hefur aldrei farið út í
pólitíkina?
— Aldrei haft áhuga á
Framhald á bls. 63
56