Frjáls verslun - 01.04.1983, Blaðsíða 71
ippseyjar, Botswana og
Saudi-Arabía.
íslenskir hagsmunir
Af þeim 36 verkefnum, sem
stjórn sjóösins hefurfjallað um,
er um íslenska hagsmuni að
ræða í 5 tilvikum. Þar af eru tvö
verkefni e.t.v. sérstaklega mik-
ilvæg; annað verkefnið varðar
orkuráðgjöf á Filippseyjum. í
því tilviki hefur verkfræðifyrir-
tækiö Virkir fengið aðstoð við
að nálgast áhugavert jarð-
varmaverkefni á Filippseyjum.
Þaö er umfangsmikið verkefni,
sem gæti opnað íslenskum
verkfræðifyrirtækjum leið aó
alþjóölegum verkefnum í ríkari
mæli en nú er.
Síðara verkefnið er könnun á
hugsanlegum útflutningstæki-
færum til fiskveiða og -vinnslu,
einkum í Vestur-Afríku. Þetta
verkefni var sett á laggirnar af
íslensku frumkvæði og er nú
leitt af framkvæmdastjóra Út-
flutningsmiðstöðvar iðnaðar-
ins, Úlfi Sigurmundssyni. Hann
hefur þegar sýnt fram á
áhugaverða möguleika og lof-
ar verkefnið góðu.
Önnur verkefni eru laus-
tengdari íslenskum hagsmun-
um og ekki komin eins langt.
Reynsla sjóðsins
Af þeim undirtektum, sem
Norræni verkefnaútflutnings-
sjóðurinn hefur fengið, veróur
ekki annað ráðið en full þörf
hafi verið fyrir slíka starfsemi.
Eins og sú skamma reynsla
sem starfsemin hefur fengið
sýnir, getur sjóöurinn oróið
þýöingarmikill fyrir íslenska
hagsmuni, því að íslendingar
hafa margt að bjóóa á þeim
mörkuðum, sem viróast ætla
að verða fyrirferðarmestir í
starfsemi sjóðsins.
Þórður Friðjónsson.
efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra.
Þorvaldur —
Framhald af bls. 56
stjórnmálavafstri — og þó.
Tveir af gömlum kunningjum
mínum voru þar rígbundnir á
klafa. Báðir dánir núna. Annar
var Óskar heitinn Kjartansson,
skáld, eldrauóur kommúnisti,
en hinn Helgi S. Jónsson í
Keflavík harðsvíraður nasisti.
Ég gat hvoruga stefnuna að-
hyllst og var eiginlega alltaf
eins og pólitískt viörini milli
þeirra. Við vorum saman meó
Litla leikfélagiö, Óskar samdi
öll barnaleikritin. Ég gat aldrei
fundið hvöt hjá mér til aó
ganga í neinn pólitískan flokk,
hef aldrei gert það og aldrei
verið þólitískur. Ég fylgist þó
vel með og ég hef alltaf verið
þeim megin við borðið sem
frjálshyggjan hefur verið.
Forystuhlutverk á
félagsmálasviði
Auk allra starfa sem hér hafa
verið talin hefur Þorvaldur
veriö í stjórn og bankaráði
Verslunarsparisjóðsins og síö-
ar Verslunarbankans frá upp-
hafi. Hann var formaóur
bankaráðsins um skeið. ,,Þar
ríkir samvinna og við skiptumst
á um formannssætið. Fyrir ut-
an mig hafa alltaf valist ágæt-
ismenn í bankaráðið“, sagði
hann meö sitt kankvíslega bros
á vör. Hann vareinnig um skeiö
formaður Verslunarráðs Is-
lands og í stjórn Kaupmanna-
samtakanna árum saman.
— Og nú ertu 72 ára?
— Ekki orðin þaö, en verð
þaö á þessu ári, leiðréttir Þor-
valdur.
— Enginn bilbugur?
— Nei, heilsan er í góðu
lagi, ég er vel giftur og við
Ingibjörg höfum það gott.
Meira þarf ég ekki. Ég er frár á
fæti og hef náð mér af áfalli
sem ég varð fyrir eitt sinn á
skíðum. Þá flísaðist úr skál
mjaðmaliðar. Þaó kostaði tvær
aðgerðir, en nú er ég alheill og
gæti þess vegna hlaupið upp
um fjöll og firnindi, en geri
oróið lítið af því. Ég syndi bara
á hverjum morgni í Laugar-
dalslaug. Þar var með okkur
nýlega f.v. forsætisráðherra
Danmerkur Anker Jörgensen.
Hann sat í pottinum með okkur
og ég benti honum á annan
heitari. Hann þangað en kom
strax aftur.
— Den var alt for varm.
sagði hann.
— Den er ogsaa kun for de
conservative. sagði ég honum.
Þarna elska sumir að vera, ekki
síst hann Pétur Ólafsson, sá
reyndi blaðamaöur. Þaö er
ekkert of heitt fyrir hann, sagði
Þorvaldur.
Við látum þau orð vera loka-
orð í spjalli við Þorvald í þetta
sinn. Tíminn leið fljótt hjá
þessum brautryðjanda nýrrar
aldar í veitingamálum á íslandi,
hvort sem er í heimahúsum, í
fjölbreytni varnings í kjötversl-
unum, í nýjum siðum veitinga-
húsamenningar eða í fjöl-
breyttum og fjölmennum
veisluhöldum. Það eru orð að
sönnu aö í veitingarekstri felist
mikil menning sé vel aö verki
staðið. í þeim skilningi er Þor-
valdur Guðmundsson einn
mesti menningarfrömuður
landsins. Til þess hafa margir
fundiö ekki síst í Þingholti, þar
sem segja má aö sé musteri
menningar hans.
63