Frjáls verslun - 01.05.1984, Side 23
BIRGÐAHALD
Thomas Möller hagverkfræðingur:
Aukin stjdrn á birgðahaldi hefur valdið
byltingu ífjölmörgum fyrirtækjum
Ný aðferð til að minnka birgð-
ir og stjórna birgðahaldi hefur
valdið byltingu í mörgum
bandarískum og evrópskum fyr-
irtækjum. Aðferðin kemur frá
Japan og er nefnd „just in time“
aðferðin. í þessari grein verður
fjallað um þessa nýju aóferð og
áhrif hennar sérstaklega á
bandarísk fyrirtæki.
Birgðastýring er mjög mikil-
vægt stjórntæki sem oft og víða
er vanrækt. Með skipulögðu
átaki til lækkunar birgða og
með markvissri birgóastýringu
má ná undraveröum árangri til
kostnaðarlækkunar, aukins
veltuhraða birgða og almennt til
minnkunar á því vörumagni sem
erbundiðíbirgðum.
Birgðastýring (Inventory
management) er orðin vinsælt
viðfangsefni i stjórnunarfræðum
á vesturlöndum. Timaritin For-
tune, Business Week og Interna-
tional Management hafa nýlega
fjallað itarlega um birgðastýringu
og þá vakningu sem átt hefur sér
stað hjá framleiðendum, dreifing-
araðilum og verslunareigendum
til lækkunar á birgðakostnaði,
minnkunar á birgðum og aukins
veltuhraða.
Háir vextir, sí harðnandi al-
þjóöleg samkeppni og siaukinn
kostnaður við birgðahald hefur
hvatt stjórnendur til að hagræða
áþessu sviði.
Viða hefur mjög góöur árangur
komið i Ijós.
Hvers vegna birgðir?
Birgðamyndun á sér stað í öll-
um framleiðslu- og dreifingarfyr-
irtækjum. Birgðir hafa það megin
Birgðir þurfa að vera sem
minnstar á hverjum tima
hlutverk að tryggja áframhald-
andi og ótruflaða framleiðslu,
sölu og dreifingu. Birgðir brúa
timabil milli innkaupa, framleiðslu
og sölu og geta þannig jafnað út
sveiflur sem verða á framboði og
eftirspurn. Hjá framleiðslufyrir-
tækjum myndast einnig birgðir
innan framleiðslurásarinnar, svo-
kallaðan millilager á hálfunnum
framleiðslueiningum.
Birgðahald og birgðastýring er
einnig tengd spákaupmennsku á
vörum sérstaklega ef um vænt-
anlegar verðsveiflur er að ræða
t.d. á hráoliu, málmum, hráefnum
til iðnaðar og þess háttar vörum.
Hvað er birgðastýring?
Birgðastýring erfyrst og fremst
áætlanagerð um þarfir fyrirtækis-
ins á vörum og siðan innkaup á
þessum sömu vörum þannig að
þær verði til staðar i fyrirtækinu á
réttum tima, i réttu magni, í réttu
ástandi. Birgðastýring á að
tryggja að engin truflun eða
stöðvun verði á framleiðslu og
sölu.
Áætlun um vöruþörf (material
requirement planning = MRP) er
byggð á framleiðsluáætlun og
söluáætlun fyrirtækisins. Þessar
áætlanir tengjast heildaráætl-
anagerð, það er rekstraráætlun
og fjárhagsáætlun þess. Áætlun
um vöruþörf er siðan brotin niður
i einstaka vöruflokka og vöruteg-
undir og siðan er vöruþörf áætluð
fyrir næstu timabil miðað við
áætlaða sölu.
Innkaupaáætlun er næsta
skrefið, hér er fundin hagkvæm-
asta pöntunarstærð og er gengið
ut frá ýmsum stærðum, svo sem
afhendingartima, daglegri notk-
un, öryggisbirgöum, pöntunar- og
flutningskostnaði og birgða-
haldskostnaði. Ýmsar formúlur
hafa veriö settar saman til að
reikna út hagkvæmustu pöntun-
arstærð, frægust þeirra er hin
svokallaða „Wilson Formula"
sem reynst hefur ágætlega sér-
staklega hjá minni fyrirtækjum. Á
seinni timum hafa þó komiö fram
ýmsar nýjar aðstæður sem
breyta stærö hagkvæmasta
pöntunarmagns, nægir þar að
minnast gámana en nú á dögum
er mjög algengt að pantaður sé
nákvæmlega 1 gámur af ákveð-
inni vörusendingu, þannig næst
23