Frjáls verslun - 01.05.1984, Blaðsíða 72
held ég að of mikill straumur
ferðamanna verði ekki vandamál
okkar heldur hitt aö halda fengn-
um hlut. Tekjur af erlendum
ferðamönnum hér eru um 5% af
útflutningstekjum þjóðarinnar
svo það munar um minna. Sam-
kvæmt spá sem unnin var árið
1982 á vegum samgönguráðu-
neytisins fyrir næstu 10 árin
veröur fjöldi erlendra feröamanna
1992 um 106 þúsund. í fyrra
komu hingaó 77.600 erlendir
ferðamenn sem var nærri 7%
aukning frá árinu áður og í sam-
ræmi við þessa spá. Spáin gerir
annars ráð fyrir 3,5% fjölgun milli
ára að meöaltali. Ég held að
fjölgunin mætti vera 5% að okkur
skaðlausu, en hins vegar veröur
að vera Ijóst, að vilji menn halda
áfram að fá hingað ferðamenn og
jafnvel auka fjölda þeirra nokkuð,
veröur að verja til þess auknu
fjármagni.
Margir óttast spjöll af völdum
erlendra ferðamanna og vissu-
lega hafa þeir nokkuð til sins
máls. Viö verðum aö huþa að þvi,
að um leið og þúið er að valda
spjöllum á náttúru landsins er um
leið þúiö að minnka möguleikana
á að laða hingað ferðamenn, þvi
náttúra íslands i öllum sinum fjöl-
þreyttu myndum er það eina sem
við höfum upp á að bjóða um-
fram aðra. Þess vegna verður
stöðugt að verja umtalsverðu
fjármagni til landverndar, eins og
nú er gert, og bæta um leið að-
stöðu ferðamannsins. En varð-
andi spjöll á náttúru held ég hins
vegar að íslendingar séu engu
siðri sökudólgar en útlendingar.
Þar á ég ekki aðeins við ökuglaöa
menn langt upp i viðkvæmum
gróðurreiti heldur líka mismun-
andi túlkun manna á hvað beitar-
lönd okkar þola af búfénaði. Ég
held einnig aö erlendum ferða-
mönnum sé tamara aö fara að
leiðbeiningum og reglum sem
varða umgengni en íslendingum,
sérstaklega ef þeir vita að þeir
eru undir eftirliti.
Ferðaþjónusta er þá orðin
atvinnugrein sem skiptir okk-
urmáli?
— Já, ferðaþjónustan er stað-
72
reynd og ég held að sifellt meira
muni um þessa atvinnugrein i út-
flutningstekjum okkar. í dag hafa
um 4.500 manns atvinnu af
ferðamálum, sem þá brauðfæra
alls um 11 þúsund manns og ég
er þeirrar skoðunar að ferðaþjón-
ustan geti á næstu árum skapað
atvinnutækifæri langt umfram
aðraratvinnugreinar.
Hvað meö menntun þeirra er
stunda ferðaþjónustu? Kunnum
við að taka á móti ferðamönnum?
— I feröaþjónustunni eru
margvisleg störf. Hótel- og veit-
ingaskólinn menntar þá er sinna
matreiðslu og framreiðslustörf-
um, Ferðamálaráð sér um mennt-
un leiðsögumanna, en að öðru
leyti er ekki um að ræða sérstaka
menntun fyrir starfsfólk i feröa-
þjónustu. Mér finnst timi til kom-
inn að Háskóli íslands taki upp
kennslu i sölu- og markaðsmál-
um ferðaþjónustunnar í við-
skiptadeild og i tengslum við Hót-
el- og veitingaskólann þyrfti aö
koma á kennslu i hótelrekstri,
gestamóttöku, herbergjaþjón-
ustu og fleiru, þvi i dag verða
menn aö leita til annarra landa
eftir slikri menntun. En ég hugsa
að með vaxandi skilningi á nauð-
syn ferðaþjónustunnar opnist
f leiri möguleikar til náms og starfs
i þessari atvinnugrein, sem ég
hika ekki við að segja að eigi
bjarta framtið til aukinnar hag-
sældar fyrir land og þjóð.
Heitur matur í hádegi
Úrval af smurbrauði
Kaffiveitingar
Rétta verðið og gæðin
Vinsamlegast athugið! Pantanir á smurbrauði
séu gerðar fyrir hádegi, ef pantað er fyrir hópa
Opið alla virka daga
frá kl.8-18
INGÓLFSBRUNNUR
VerslanamiðstÖóin Miðbæjarmarkaður
Aðalstræti 9 - Sími 13620