Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1984, Page 39

Frjáls verslun - 01.05.1984, Page 39
hafa i för meö sér aö KRON, einn eigenda Miklagarðs, missir hluta af sinni eigin verslun i hinn nýja stórmarkaö og sama má trúlega segja um nýja verslunarmiðstöð Hagkaupa, sem risa á i Kringlu- mýri. Þar eru Hagkaupsmenn að flytja verslun, en vissulega stækka þeir rými hennar um leið. Þar við bætist að undir sama þaki verða 30 til 40 sérverslanir sem ég geri ráð fyrir að muni standa í samkeppni viö t.d. verslanirnar við Laugaveginn. Enn mætti nefna að þegar stórverslanir eru orðnar svo margar hlýtur að koma að þvi að þær keppi mest inn- byrðis og ekki er gott að segja hvar sú þróun getur endaö. Verðursnúiö við? En verður þessari stjór- markaðsþróun snúið við? — Þróun þessara mála er vissulega svipuö i Reykjavik og i nágrannalöndum. Stórar versl- anir risa upp og mikill hluti inn- kaupa fer nú fram i stórmörk- uöum. Fólk skiptist nokkuð i tvo hópa. Annar er sá sem verslar nú orðið mest i stórmarkaði og hinn, þeir sem eru minna á ferli um borgina og vilja fá nauðsynjavör- ur sinar hjá kaupmanninum á horninu. Þeir siðarnefndu meta það meira að fá persónulega þjónustu i þessum litlu hverfa- verslunum. Fólk vill halda góðum tengslum við kaupmennina sina og hann gerir sér far um að upp- fylla þarfir þess og oft sérstakar óskir. Þessu er ekki hægt aö koma við i stórmarkaði og þess vegna held ég aö ekki sé alltaf hagstæðast að skipta sem mest við stórmarkaðina. Telurðu að kaupmaðurinn á horninu muni standa af sér þessa storma? Litlu búöirnar spjara sig — Mér finnst ekki óliklegt að minnstu búðirnar spjari sig betur i þessari samkeppni en þær með- alstóru, þvi oftast eru kaupmenn nánast einir eða með fjölskyldu sina til aðstoðar i litlu búðunum, en þær meðalstóru eru all mannfrekar og um margt dýrari. Erfið samkeppni Þú minntist á hinn nýja kjarna verslana i Kringlumýri — verður þar einkanlega um að ræða sam- keppni við Laugavegsverslanir? — Eins og verslunin stendur i dag má búast við að sumar versl- anir hér við Laugaveg geti ekki staðist harða samkeppni og reyndar má þegar sjá hér stöku búðir í erfiðleikum eða þær hafa verið lagðar niður. Laugavegs- nefndin, sem svo er kölluð, full- trúar verslana viö Laugaveg, hef- ur rætt við borgaryfirvöld og mætt þar þeim ágæta skilningi að verslun hér mætti ekki leggjast af og má búast við að hér verði reynt eitt og annaö til aö halda áfram að laða hingað fólk. Hins vegar held ég að ekki sé ýkja mikil eða brennandi þörf fyrir margar nýjar sérverslanir i Reykjavik. Þarna stefnir þvi i sömu offjárfestingu og i matvöruverslun. En það er hins vegar alveg Ijóst aö gangi þessar nýju verslanir vel mun þaö koma niður á einhverjum þeim sem fyrir eru, hvort sem það er við Laugaveg eða annars staðar. Sjálfur er ég þó ekki sannfærður um aö þessi nýi verslunarklasi muni ganga vel. Skorpumenn Er einhver sérstök skýring á þessum mikla áhuga á verslun? — Stundum hef ég velt þvi fyrir mér hvort þetta liggur ekki að einhverju leyti i eöli okkar — i þjóðarsálinni. Viö erum skorpu- menn og viljum láta hlutina gerast hratt og gera mikið eins og dæm- in sanna. Viö höfum keypt og smíðaö fiskiskip þótt afli sé ekki nægur fyrir þau öll og við brjótum ennþá mikið land til ræktunar og stækkum bújaröir á sama tima og offramleiðsla i vissum greinum er að verða vandamál. Við verslun- armenn höfum þessi viti til aö var- ast og við verðum að athuga að ekki þýðir að byggja upp verslun hér eins og hjá stórþjóð. við erum 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.