Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1984, Blaðsíða 91

Frjáls verslun - 01.05.1984, Blaðsíða 91
þau iðulega of veikburða til að standa af sér timabundna erfið- leika eða sveiflur. Aöstoð Badishe Vereinsbank i Munchen hefur sett upp sérstaka deild sem ætlað er að aðstoða hátæknifyrirtæki. En einn talsmanna bankans viðurkennir að deildin sé enn sem komið er ekki búin að setja sér reglur til að vinna eftir; „það er Ijóst að hin hefðbundna aðferð okkar við mat á lánshæfni fyrirtækja gengur ekki i þessum iðnaði, aðferðun- um verður að þreyta“, segir hann og bætir við, „við höfum ekki áhuga á að taka beinan þátt i áhættu þeirra fyrirtækja sem við komum til með aö aðstoða, en okkur er Ijóst að þarna er um að ræða viðskipta og þjónustuþörf sem bankarnir verða aö mæta með einhverju móti enda er þetta að verða ein miklilvægasta grein nútimaiðnaðar". Vantar meiri þátttöku Það kemur v-þjóðverjum nú i koll að á siðustu áratugum hefur ákaflega litill áhugi verið fyrir frjálsum hlutabréfamarkaði bæði meðal almennings, fyrirtækja og fjármálastofnana,- stöðugleikinn i efnahagsmálum hefur ekki náö að skapa þaö andrúmsloft sem blæs lífi i kauphallarviðskipti á borð við það sem gerist með ýmsum öðrum þjóðum. Aðeins um 450 fyrirtæki eru á opinberri skrá yfir hlutabréf sem ganga kaupum og sölum. í Bandaríkjunum og Bretlandi hefur þaö reynst hátæknifyrir- tækjum ómetanlegt að geta boð- ið almenningi þátttöku í áhætt- unni en jafnframt góða tekjuvon og almenningur hefur ekki legið á liði sinu. Þessa forsendu vantar algjörlega i V-Þýzkalandi og veldur áhrifamönnum vaxandi áhyggjum. Peter Dölling sem á og rekur Tewidata segir; „V-þýzkir spari- fjáreigendur og fjárfestingar- aðilar leggja ekki fé i vaxandi fyr- irtæki. Þaö er i tisku og jafnframt héppilegra frá skattalegu sjónar- miði að fjárfesta i ríkisskulda- bréfum. Annars tel ég að fjárfest- ingarhliðin sé ekki eina alvarlega vandamálið sem v-þýzkur iðnaö- ur á við að striöa, við eigum enga menntaða stjórnendur sem kunna til verka viö stjórnun fyrir- tækja i hátækniiðnaði þar sem lif- timi vara á markaöinum er iðulega skemmri en hönnunar- og þróunartimi þeirra. Skortur á hæfum stjórnendum fjárfesting- arfélaga og banka er einnig áber- andi, við höfum dregist ótrúlega langt aftur úr á þessum sviðum“. Stephan von Watzdorf starfar á skrifstofum MMG. Ltd i London en það er alþjóðlegt ráögjafarfyr- irtæki á sviði fjárfestinga. Hann erþjóðverji og segir: Sérhæfðir stjórnendur „I Bandarikjunum hafa menn reynslu af áhættu i viðskiptum, þar eru stjórnendur sem eru sér- hæfðir i þvi að reka áhættusöm en jafnframt gróðavænleg fyrir- tæki. I Bretlandi eru stjórnendur sem kunna einnig tökin á þessu og afstaða breskra kaupsýslu- manna til áhættuiðnaðar er orðin mótuð, menn vita hvað þetta er, hvernig það gengur fyrir sig og hvað er uppúr þvi aö hafa er rétt er aö málunum staðið. Mitt hlut- verk er að liðka fyrir og kanna fjármögnunarmöguleika fyrir þau fyrirtæki sem leita til okkar. Þeg- ar V-Þýzkaland á i hlut verða málin strax miklu erfiöari, það eru ákaflega fáir sem geta hjálpað eöa gefið upplýsingar hvað þá að hægt sé að hafa uppi á fjárfestur- um sem vilja taka áhættu fyrir meiri gróðavon". Peter C. Kaleschke hjá Sie- mens: „Það er ekki nóg að skapa möguleika á auðveldarfjármögn- un smærri fyrirtækja i hátækni. Þeir sem stofna þessi fyrirtæki eru oftast tæknimenn sem ekki hafa neina reynslu af sölu- og markaðsmálum. Þess vegna telj- um við að Techno Venture þurfi ekkert siður að hafa á boðstólum ráðgjöf sem miöi að þvi að að- stoða þessa aðila við að stjórna fyrirtækjunum þannig að fjárfest- ingin skili sér sem best. Siemens hefur bæði yfir að ráða fjármagni og stjórnunarþekkingu, en málið er ekki svona einfalt. Rætur meinsins eru heföbundin afstaða þjóðverja til atvinnulifs, sem gerir það að verkum að þeir dragast aftur úr, það þarf hugarfarsbreyt- ingu ef við eigum ekki að missa af lestinni.“ Vantar áhugaá frjálsu framtaki Axel Weisse, sem eins og áður sagði er aðeins 23 ára og fram- kvæmdastjóri hjá IEW segir: „Jafnaldrar mínir eru ekki efni i kaupsýslumenn eða iðnrekend- ur, þá skortir allan áhuga á frjálsu framtaki einstaklingsins, það hvarflar einfaldlega ekki að þeim að sjálfstæð starfsemi sé val- kostur, þetta kemur ekki sist frá háskólunum sem fyrst og fremst mennta starfsmenn en ekki at- vinnurekendur. Ég tel t.d. afar óliklegt að margir jafnaldra minna myndu klára sig i þeirri sam- keppni sem er rikjandi t.d. i Band- arikjunum, það vantar i þá þenn- an spenning sem Bandarikja- menn sækjast eftir. Ef Banda- rikjamaður á 20 þúsund dollara þá stofnar hann fyrirtæki. Ef V-Þjóöverji á 20 þúsund dollara þá kaupir hann hús, jafnvel þótt hann eigi annað fyrir“. Volkker Dolch: „V-þýzkir iðnrekendur eru einfaldlega ekki jafn framsæknir og bandariskir og þeir eru óvanir og hræddir við aö taka áhættu. Þetta þýðir þó ekki að þjóöverjar hafi neitt á móti þvi að græða peninga, siöur en svo. Það sem gæti ef til vill breytt ástandinu og komið málum á hreyfingu eru lýsingar á vel- gengni hátæknifyrirtækja. Það mun taka tima að koma á frjálsari fjármagnsmarkaði og þar til mun veröa um hnignun að ræða. Þýtt úr International Manage- ment. 91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.