Frjáls verslun - 01.08.1988, Side 48
RÁÐGJÖF
fyrr létu menn sér stundum nægja að gera
úttektir og skrifa skýrslur, sem síðan var
nokkuð óvíst hvemig fylgt yrði eftir. Með
aukinni þekkingu og reynslu em gerðar
meiri kröfur og við höfum lagt áherslu á að
vera þátttakendur í því sem fyrirtækin em
að gera. Ráðgjafinn hefur þannig færst
nær fyrirtækinu og samstarfið er orðið
samfelldara ognánara. Hluti starfsins felst
í reglulegum viðræðum við stjómendur
fyrirtækjanna og þar myndast ákveðið
trúnaðartraust sem er forsenda þess að
samstarfið skili tilætluðum árangri."
„Við gemm okkur grein fyrir því að það
er munur á því hvaða lausnir em bestar og
hverjar eru raunhæfar miðað við aðstæð-
ur hjá hverjum og einum," bætir Reynir
Kristinsson við. „Ráðgjafinn á að finna
lausn með verkkaupanum en ekki án tillits
til aðstæðna hans. Breytingar hjá fyrir-
tækjum koma yfirleitt ekki í stórum stökk-
um heldur þróast smám saman.“
— Hvaða fyrirtæki þurfa helst á rekstr-
arráðgjöf að halda?
„Það er nokkuð algengur misskilningur
að fyrirtæki þurfi ekki að leita sér ráðgjaf-
ar fyrr en reksturinn gengur illa eða í óefni
er komið. Það getur verið of seint. Ráð-
gjafar eiga ekki í pokahominu neinar töfra-
lausnir við öllum vanda eða til bjargar þeim
sem illa em staddir. Það er eitt af einkenn-
um vel rekins fyrirtækis að stjómendur
þess leita sér ráðgjafar til að kanna
hvemig reksturinn stendur og hvað má
betur fara. Allir stjómendur fyrirtækja
þurfa að þekkja sitt innra umhverfi og gera
sér grein fyrir því hvaða þættir í rekstrin-
um em mikilvægastir og hverjir þarfnast
úrbóta. Það er öllum hollt að fá áUt þeirra
sem hafa reynslu af þeim vandamálum
sem íslensk fyrirtæki eiga við að glíma, þó
ekki væri nema til að víkka sjóndeildar-
hringinn og nýta sér þá þekkingu sem er tU
staðar.
Önnur skoðun, sem við rekumst stund-
um á, er sú að það sé flókið og dýrt að leita
til rekstrarráðgjafa. Sumum finnst þeir
einnig opinbera vanmátt sinn að einhveiju
leyti með því að leita ráða hjá utanaðkom-
andi aðilum. Staðreyndin er hins vegar sú
að fyrirtæki sem em vel rekin hafa skiln-
ing á þeirri þjónustu sem rekstrarráðgjaf-
ar geta veitt. Sum þau stærstu leita bæði
tU innlendra og erlendra ráðgjafa sér til
aðstoðar og þá með þau gömlu sannindi í
huga að betur sjá augu en auga. Reyndir
ráðgjafar með yfirsýn og þekkingu á
starfssviði viðkomandi fyrirtækis bæta við
þá þekkingu sem fyrir er í fyrirtækinu.
Þessi þjónusta þarf heldur aUs ekki að vera
dýr. Við höfum tekið upp þá nýbreytni
sem við nefnum „ráðgjafi til viðræðna",
sem er dæmi um nýjar leiðir í rekstrar-
ráðgjöf."
RÁÐGJAFITIL VIÐRÆÐNA
— í hveiju felst það?
„Það er fólgið í óformlegu samkomulagi
sem fyrirtæki gera við Hagvang um
ákveðna þjónustu," segir Gunnar. „Þá fær
fýrirtækið til sín reyndan ráðgjafa sem
tekur þátt í viðræðum stjómenda fyrir-
tækisins um þau atriði sem efst em á baugi
hverju sinni. Það geta verið umræður um
markaðssetningu, samkeppnisstöðu, fjár-
málastýringu eða hvaðeina sem stjórn-
endur fyrirtækisins em að velta fyrir sér.
Ráðgjafinn flytur með sér þekkingu og
reynslu og sér hlutina oft frá öðmm sjón-
arhóli en þeir sem em á kafi í hinum dag-
lega rekstri. Þetta fyrirkomulag er fljót-
legt og sveigjanlegt þar af leiðandi og ekki
dýrt. Tíminn sem í slíkar viðræður fer er
yfirleitt stuttur og nýtist vel, og þannig er
unnt að halda kostnaði ílágmarki. Þetta er
vaxandi þáttur í starfsemi Hagvangs. Við
emm líka fyrstir manna til að láta við-
skiptavini okkar vita ef við höldum að þjón-
usta okkar komi þeim ekki að gagni af
einhveijum ástæðum. Það er báðum aðil-
um til hagsbóta þegar til lengdar lætur.
— Önnur nýbreytni?
„Við höfum tekið upp aðra nýbreytni
sem mætti kalla skyndiskoðun og felst í
reglulegum athugunum á öllum stjómun-
ar- og rekstrarþáttum viðkomandi fyrir-
tækis. Þessu mætti líkja við vetrarskoðun
bifreiða. í okkar niðurstöðum kemur fram
greining á stöðu fyrirtækisins og ábend-
ingar um það sem betur mætti, fara og
viðeigandi ráðstafanir. Með reglulegum
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐIÐ
tj) Gúmmfkarlarnir
Borgartúni 36 Sími 688220
48