Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 64

Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 64
EFNAHAGSMÁL Svíum hefur tekist að halda atvinnuleysi í lágmarki. eigu rikisins stofnað til að stuðla að og hraða þróunarstarfsemi í mikilvægum at- vinnugreinum, einkum ríkisfyrirtækjum. Sama ár var Tækniþróunarráðið (STU) stofnað, en því var ætlað að styðja við bakið á rannsóknarverkefnum á tækni- sviði, samvinnu fyrirtækja á þessu sviði og iðnþróun. Árið 1977 var samþykkt frum- varp á þingi til eflingar nýsköpunar í at- vinnulífinu, einkum iðnaði. Áhersla var lögð á langtima samhæfð verkefni. Innan ramma rannsóknarverkefnisins „Þróun þekkingar" var lögð áhersla á samhæfð langtíma rannsóknarverkefni sem beind- ust að iðnaðar- og samfélagslegri tækn- iþróun og stóðu ekki skemur en í fimm ár. Sama ár voru svo sérstakir byggðaþró- unarsjóðir stofnsettir sem hafa það verk- efni að aðstoða smá- og meðalstór fyrir- tæki með vandamál á sviði stjómunar, fjármögnunar og markaðssetningar. 1982 var lánastarfsemi þessara sjóða aukin til muna og styrkir auknir til fyrirtækjanna í formi áhættufjármagns. b) Samhliða ofangreindum aðgerðum beittu ríkisstjórnir skattaívilnunum til að hvetja fyrirtæki til rannsóknar- og þróun- arstarfsemi. Þessu kerfi var komið á 1973 og fólst í frádrætti kostnaðar vegna rann- sóknar- og þróunarstarfsemi af hagnaði fyrir sköttun. Þessar aðgerðir bám ekki tilætlaðan árangur, voru of kostnaðarsam- ar í framkvæmd og því aflagðar 1982. c) Árið 1984 vom „Nýsköpunarsjóðim- ir“ stofnaðir, en samkvæmt lögum um þá er fyrirtækjum sem hafa yfir 500.000 skr. í hagnað á ári skylt að leggja 10% hagnaðar inn á þessa sjóði, sem eru í vörslu Banka Svlþjóðar (seðlabankans) og em innistæð- umar vaxtalausar. Uthlutun úr þeim er bundin mati verkalýðsfélaga og Iðnráðs Svíþjóðar (SIND). Nýti fyrirtækin sér ekki nýsköpunarsjóðina hefur Banki Sví- þjóðar heimild til að halda fjármagninu í allt að fimm ár. Fyrirtæki sem leggja fjármagn í þessa sjóði fá skattafrádrátt af bankainni- stæðum sem nema framlagi innan fyrir- tækjanna til endurmenntunar eða rann- sókna- og þróunarstarfsemi. d) Ríkisstjómir Svía hafa á síðari árum stuðlað að margháttuðu samstarfi fyrir- tækja og opinberra rannsóknaraðila. STU lagði 1983 grunninn að örtölvuáætlun Svía (national electronic program). Með áætl- uninni vilja Svíar styrkja stöðu sína gagn- vart framleiðslu á því sem nefna má „lykil- þátt“ hinnar nýju framleiðslutækni fram- tíðarinnar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á sérhæfða hálfleiðara (custom-des- igned circuits). Áætlunin er sameiginlega fjármögnuð af ríki og fyrirtækjum. Sam- hliða þessari áætlun lagði STU og fleiri stofnanir grunninn að annarri beinna hagn- ýtri áætlun á sviði upplýsingatækni, sem yfir 1000 milljónir skr. er nú varið til. Meðal samstarfsforma fyrirtækja og opinberra rannsóknar- stofnana sem ríkis- stjórnir á síðari ámm hafa lagt áherslu á, eru „rannsóknargarðar" (science parks). Hér er um að ræða rannsóknarsvæði, sem stofnuð em sameiginlega af sveita- stjómum eða sýslum, háskólum, verslun- arráðum eða samtökum atvinnurekenda, fyrirtækjum og viðkomandi byggðaþróun- arsjóðum. „Iðngarðar" eða „nýsköpunar- garðar“ af þessu tagi hafa verið stofnaðir um gervalla Svíþjóð til að efla nýsköpun í iðnaði og stuðla að nýþróun í hémðum þar sem rannsóknarstofnanir vom ekki fyrir áður. í fjárlögum fyrir 1985-6 var sérstök áhersla lögð á nýsköpunarhlutverk há- skóla í iðnþróun á héraðsgmndvelli. Annað samstarfsform iðnaðar og há- skóla em yfirfærslu miðstöðvamar, sem afla þekkingar á tilteknu sérhæfðu sviði og „dreifa" síðan út um iðnaðinn. Sem dæmi má nefna hina smáu „Miðstöð fýrir kerfis- tækni“ við Sundsvall/Hamösand-skólann og stórar miðstöðvar eins og „Tækni, hagkerfi og umhverfi“ í Lundi. Þriðja samstarfsformið em svo mið- stöðvar í háskólunum sem taka að sér þróunarrannsóknir og/eða gera fram- leiðslusamninga við fyrirtæki og verða grundvöllur að nýjum fyrirtækjum. 1985 vom 79 miðstöðvar og garðar af því tagi sem hér hafa verið nefndir í Svíþjóð. í byrjun áratugarins vom þeir örfáir. Áhersla hefur einnig verið lögð á eflingu rannsóknar- og þróunarstarfsemi smárra og meðalstórra fyrirtækja og tengsl þeirra við rannsóknarstofnanir og háskóla, þ.e. að opna þessar stofnanir fyrir fyrirtækjun- um og opinberum stofnunum. Samkvæmt sérstakri áætlun veitti „Nefnd um sam- starf háskóla og utanaðkomandi aðila", sem hóf tilraunir með slíkt samstarf 1978, fyrstu þrjú tilraunaárin 8 milljónir skr til 79 verkefna sem unnin vom innan 73 fyrir- tækja með samstarfi við rannsóknarfólk frá háskólum. Árangurinn af þessu starfi þykir svo jákvæður að 1982 ákvað ríkis- stjómin að halda því áfram og á fjárlögum 1985-6 vom t.d. veittar 5.5 milljónir skr. til þessara mála. e) Svíar hafa á undanförnum árum lagt mikið kapp á að laga háskólastig mennta- kerfisins að rannsóknarþörfum atvinnu- lífsins. Með umbótum á þessu menntastigi 1977 var ákveðið að nám á fyrsta stigi háskólanáms (sbr. B.A.-nám á íslandi) skyldi tengt rannsóknum. Jafnframt var 1979 krafist lágmarks fjögurra missera náms í viðkomandi grein sem forsendu fyrir veitingu rannsóknarstyrks. 1985 var háskólunum tryggt nokkuð sjálfstæði þar sem háskólunum er nú ætlað að ráða sjálfir þá prófessora sína sem gegna fullum stöð- um. Sjálfstæði rannsóknarstofnana og há- skóla er mikilvægur þröskuldur á vegi stöðnunar í rannsóknum sem koma at- vinnulífinu að gagni. Aðhald er best tryggt með aðgreiningu fjármögnunaraðila rann- sókna og framkvæmdaraðila þeirra. Eitt helsta einkenni þróunar rannsókn- ar- og þróunarstarfsemi Svía á síðari ár- um, er að slíkt starf fyrirtækja hefur aukist hlutfallslega hraðar en opinberra aðila. Slík þróun bendir að sjálfsögðu til þess að rannsóknar- og þróunarstarfsemi komi at- vinnulífinu markvissara að gagni en áður og er samtóna þróuninni innan ríkisgeir- ans eins og fram kemur hér að ofan. 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.