Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 69
Ragnar Atli
Guðmundsson að-
stoðarframkvæmda-
stjóri Hagvirkis.
HLBUNIRISLAGINN
• Eitt öflugasta verktakafyrirtæld
landsins er með höfuðstöðvar sínar að
Skútahrauni 2 í Hafnaríirði, en þar var það
stofnað fyrir 8 árum. Hagvirki var á sínum
tíma stofnað upp úr verktakafyrirtækinu
Hraunvirki og hefur það annast stóran þátt
virkjanaframkvæmda íslendinga undir
stjórn stofnanda og aðalforstjóra þess, Jó-
hanns Bergþórssonar.
Ragnar Atli Guðmundsson, aðstoðarfor-
stjóri Hagvirkis, sagði í samtali að starfs-
mannafjöldi þar á bæ væri misjafn en að
jafnaði störfuðu nú um 350 manns hjá fyrir-
tækinu. Hann sagði að í eigu þess væru
stórvirkar vinnuvélar sem biðu þess að ráð-
ast í verkefni á borð við Blönduvirkjun, og
hyggðu þeir Hagvirkismenn gott til glóðar-
innar þegar vikjunin yrði boðin út í haust.
Hann kvað ekkert eitt fyrirtæki hér á landi
hafa yfir eins miklum vélakosti að ráða og
Hagvirld og taldi mikla möguleika á að þeir
byðu lægst í virkjunina.
Eftir mikinn samdrátt í virkjanafram-
kvæmdum frá árinu 1984 hefur snúið sér að
byggingarframkvæmdum í meira mæli og
má segja að 80% starfseminnar séu nú á því
sviði. Þess má geta að 20 verk- og tæknif-
ræðingar starfa hjá Hagvirki, enda býður
fyrirtækið upp á þá þjónustu að hanna og
skipuleggja íbúðar- og atvinnuhúsahverfi og
sjá að sjálfsögðu um byggingarnar í fram-
haldi af því.
stærð sem er um 24 hektarar. Loks
er um að ræða iðnaðarsvæði fyrir
starfsemi tengda höfninni og sjávar-
útvegi á Hvaleyrarholti. Það svæði
átti við ramman reip að draga framan
af en nú má segja að allar lóðir séu
fráteknar og mikil uppbygging á sér
þar stað nú.
NÝTT HVERFI í HELLNAHRAUNI
Með byggingu þessara atvinnu-
svæða eru öll atvinnusvæði norðan
Reykjanesbrautar senn fullbyggð.
Því hafa verið skipulögð ný iðnaðar-
hverfi sunnan Reykjanesbrautar,
gengt Álverinu í Straumsvík.
Svæðin sem hér um ræðir, sk.
Suðursvæði eru sunnan Hvaleyrar-
holts í Hvaleyrarhrauni, Hellnahrauni
og Kapelluhrauni. í aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 1980-2000 eru svæðin
ætluð fyrir iðnað eftir aldamót, en
vegna örrar uppbyggingar iðnaðar-
svæðanna sem fyrr voru nefnd hefur
bæjarstjóm ákveðið að hefjast þar
handa á næstu árum. Raunar hefur
SÖLUTURNINN
HRINGBRAUT 14
« 53546
HAFNARFIROI
OPNUNARTÍMI
Virka daga: kl. 900 - 2330
Um helgar: kl. 10°° -2330
Úrval af sælgæti
og gosi.
Brauð
Kökur
Mjólkurvörur
Nýlenduvörur
69