Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 19
Einarsson aðstoðarforstjóri Byggða-
stofnunar, Asgeir Pétursson bæjar-
fógeti, Helga Jónsdóttir aðstoðar-
maður forsætisráðherra og Jón Stein-
ar Gunnlaugsson hrl. Nefndin skilaði
m.a. frá sér frumvarpi til laga um rík-
isendurskoðun. Forsætisráðherra
lagði það tvisvar fyrir Alþingi og hlaut
það fullnaðarafgreiðslu árið 1986. Hin
nýju lög tóku gildi 1. janúar 1987.
RÍKISENDURSKOÐUN ALÞINGIS
Veigamesta breytingin, sem fólst í
lögunum, var sú að nú skyldi Ríkis-
endurskoðun vera sjálfstæð og óháð
stofnun á vegum Alþingis. Forsetar
Alþingis ráða forstöðumann stofnun-
arinnar, ríkisendurskoðanda, til sex
ára í senn. Hann telst starfsmaður
Alþingis og ber ábyrgð gagnvart því.
Rfldsendurskoðandi nýtur ennfremur
sjálfstæðis í starfi og er ekki bundinn
fyrirmælum um einstaka þætti þess,
en forsetar þings geta krafið hann
skýrslna um einstök mál.
Hugsunin á bak við breytinguna er í
megindráttum þessi: Stjórnarskráin
fær Alþingi í hendur vald til að ákveða
fjárveitingar og gera áætlun um tekj-
ur og gjöld ríkisins — fjárlög. Það er
því rökrétt að á vegum löggjafans fari
19