Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 18
FORSIÐUGREIN
Dbyrjun mars sl. kynnti tímaritið Fortune að stór-
fyrirtækið Coca-Cola væri vinsælasta fyrirtækið í
Bandaríkjunum. Svo virt er fyrirtækið að það þykir
mikill heiður að vinna fyrir það og menn keppast um að
komast þar að; þrá að verða „Kókarar“. Þessu er öðruvísi
farið hér á landi. Hjá Vffilfelli, framleiðanda Coca-Cola, er
fólksflótti stjórnenda, samhliða því að aðaleigandinn, Pét-
ur Bjömsson, rekur stjómendur hiklaust. Það gýs reglu-
lega upp úr hjá fyrirtækinu og hefur verið svo í fimm ár.
Frá áramótum hafa átta stjórnendur hætt og er um algera
endumýjun að ræða í toppstöðunum. Eftir að Lýður Frið-
jónsson hætti sem fram-
kvæmdastjóriíágústl991, og
Pétur Bjömsson fór að skipta
sér aftur af rekstri fyrirtækis-
ins, hefur mikið gengið á og
fjöldi stjómenda látið af störf-
um. Enda er til félagsskapur
fyrrum starfsmanna Vffilfells
sem heitir „Fyrrum Kókarar“
og það fjölgar ört í honum á hverju ári.
Síðasta hrinan í stjórnendaflóttanum frá Vffilfelli reið
yfir í endaðan mars þegar fjórir stjómendur á sviði sölu- og
innkaupamála sögðu upp. Það voru þeir Sigurður Borgar
Guðmundsson, yfirmaður sölu- og umboðsmanna, Frið-
bert Friðbertsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og
innkaupastjóri, Bjöm Gunnlaugsson, yfirmaður markaðs-
rannsókna og markaðsupplýsinga, og Bjöm Sigurðsson,
yfirmaður sölu til veitinga- og kvikmyndahúsa. í febrúar
sagði sölu- og markaðsstjórinn, Trausti Sigurðsson, upp
störfum. Og í apríl sl. hætti Sigurjón P. Kolbeins, yfir-
maður tölvudeildar, en hann er á leið út til Coca-Cola í
Noregi. Áður, eða um áramótin, fluttu Jón Sigurðsson
fjármálastjóri og Einar Gunnarsson verksmiðjustjóri sig
yfir til Coca-Cola í Noregi.
MÁUÐ SNÝSTUM
STJÓRNLEYSIPÉTURS
Stjómendaflóttinn frá Vffilfelli síðustu fimm árin er að
mestu rakinn til stjómunar - eða öllu heldur stjórnleysis -
Péturs Bjömssonar, aðaleiganda fyrirtækisins. Ekki er
hægt að tala um flótta í öllum tilvikum; nokkrir hafa farið til
FRÉTTA
SKÝRING
Jón G. Hauksson
Undir stjórn Péturs Björnsson hefur gosið reglulega upp
úr hjá Vífilfelli. Nýjasta gosið var í febrúar og endaðan
mars sl.
Coca-Cola í Noregi og það ber raunar vott um hæftii
Vffilfells til að geta af sér góða starfsmenn. Fyrirtækið er
góð uppeldisstöð.
Stjómendum í lykilstöðum hjá Vffilfelli þykir erfitt að
vinna með Pétri og undir hans stjórn. Málið snýst um
persónu Péturs. Honum er lýst sem dyntóttum yfirmanni
og að stjómendur viti engan veginn hvar þeir hafi hann.
Flottmnfra Vífilfelh stafar af stjórnun Péturs Björnssonar. Hann hefur þörf fyrir aí
MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON OG BRAGI P. JÓSEFSSON
18
i