Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 53
Davíð Scheving Thorsteinsson er ræðismaður ír-
lands: „Þegar íramir buðu mér ræðismannsstarfið
stóðst ég ekki mátið. Ég hef lengi haft áhuga á land-
inu.“
Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarformaður Hofs sf.,
er ræðismaður Spánar: „Ég tók að mér ræðismanns-
starfið fyrir tveimur ámm og tel mig hafa gert rétt í
því.“
viðskiptaforkólfar eru ræðismenn erlendra ríkja hér á landi.
áhuga á landinu og starfið gefur mér
möguleika á að kynnast írskri menn-
ingu sem er nokkuð ólík þeirri ís-
lensku.“
- Nú hefur þú starfað sem ræðismað-
ur í 13 ár og sjálfsagt kynnst ímm
vel. Hvað var það sem kom þér mest
á óvart í samskiptum þínum við þá?
„Eitt af því fyrsta sem mér dettur í
hug er hve írar og íslendingar eru
sláandi líkir í útliti. Það getur verið
broslegt að ganga eftir götu í Dublin
og sjá hvem „íslendinginn" á fætur
öðrum ganga á móti manni. Að öðru
leyti er fátt annað sem þessar þjóðir
eiga sameiginlegt. írar eru aldir upp í
strangri kaþólskri trú og lifa við mikið
atvinnuleysi sem að mörgu leyti mót-
ar þeirra lífsmunstur. Þeir hafa einnig
búið í skugga voldugs nágranna -
breska heimsveldisins - sem fór ekki
alltaf mjúkum höndum um írsku þjóð-
ina. Á sama tíma nutum við góðs af
því að vera undir stjórn ríkis eins og
Danmerkur sem fór að sumu leyti
ágætlega með okkur. Þrátt fyrir erf-
iðleika eru írar miklir gleðimenn og
söngmenn. Það er í raun ótrúlegt hve
glaðværir þeir eru þrátt fyrir alla þá
efnahagserfiðleika sem þeir hafa búið
við. Ég tel að íslendingar gætu lært
margt af vinum okkar á írlandi," segir
Davíð.
SIGURÐUR GÍSLIPÁLMASON,
RÆÐISMAÐUR SPÁNAR
Sigurður Gísli Pálmason, stjórna-
formaður Hofs sf., er aðalræðismað-
ur Spánar á íslandi. „Fyrir tveimur
árum var ég beðinn að taka að mér
starf ræðismanns Spánar á íslandi og
eftir nokkum umhugsunarfrest ákvað
ég að taka það að mér,“ segir Sigurð-
ur. „Helstu ástæðurnar fyrir því að ég
tók starfið að mér voru meðal annars
þær að þá fengi ég tækifæri til að
takast á við ný viðfangsefni og kynn-
ast annarri menningu en þeirri ís-
lensku en mér hefur lengi þótt menn-
ing Spánverja ákaflega heillandi og
53