Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 27
SÆTLft
ÁRINU
Þegar spurt var hvort fólk ætlaði
að kaupa nýjan bíl á árinu svöruðu um
11,2% því játandi en 86,2% neitandi.
Um 2,6% svarenda söguðust vera
hlutlaus. í sams konar könnun
Frjálsrar verslunar í endaðan janúar
svöruðu 9,5% spurningunni játandi.
UM 10.900 NÝIR FÓLKSBÍLAR
VERÐA SELDIR Á ÁRINU
Samkvæmt áætlun frá Hagstofu ís-
lands eru um 97 þúsund heimili í land-
inu og finnst Frjálsri verslun rökrétt-
ara að taka mið af fjölda heimila í stað
einstaklinga þegar unnið er úr þessari
spurningu. Miðað við að 11,2% heim-
ila ætli að kaupa nýjan bíl á árinu gefur
það vísbendingu um að sala nýrra
fólksbfla verði að minnsta kosti
10.900 bílar á árinu. Hér er sagt að
minnsta kosti vegna þess að á hluta
heimila búa einstæðingar; aðeins 1 er
í heimili.
í nýjasta hefti Hagvísa, sem Þjóð-
hagsstofnun gefur út mánaðarlega,
kemur fram að mikil aukning hefur
orðið í bflainnflutningi á þessu ári mið-
að við í fyrra. Alls voru nýskráðar
2.210 bifreiðar fyrstu þrjá mánuði árs-
ins, þar af 1.797 fólksbifreiðar. Sala
fólksbfla jókst um 35% frá sama tíma í
fyrra en sala atvinnubfla var hlutfalls-
lega meiri. Heildamýskráningar
fyrstu þijá mánuðina jukust nefnilega
um 44%.
Verði sala nýrra fólksbfla í sama
takti út árið og fyrstu þrjá mánuðina
má gera ráð fyrir að seldir verði um
Sala nýrra bíla er meiri en í fyrra. Alls verða seldir um 10.900 nýir fólksbílar
á árinu, samkvæmt könnun Frjálsrar verslunar á dögunum þar sem fólk var
spurt beint út hvort það ætlaði að kaupa sér nýjan bíl á árinu.
HVAÐ MÁ BÍLL K0STA MIÐAÐ VIÐ ÞINN FJÁRHAG? %
0 til 0,5 millj. 23,1
0,5 millj. til 1,0 millj. 30,2
1,0 millj. til 1,5 millj. 27,2
1,5 millj. til 2,0 millj. 11,9
2,0 millj. til 3,0 millj. 4,9
3,0 millj. og yfir 2,7
Þessi spurning mælir getu fólks til bílakaupa. Augljósir verðmúrar eru á
markaðnum. Helmingur svarenda telur sig eingöngu hafa ráð á að kaupa bíl
sem kostar innan við 1 milljón.
27