Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 37
10 REGLUR TIL GRUNDVALLAR
1. Dreifið valdi til starfsfólks.
2. Þjálfið og endurmenntið starfsfólk.
3. Umbunið fyrir góða frammistöðu í
starfi.
4. Farið fram úr væntingum viðskipta-
vina.
5. Setjið stefnuna á nýjar vörur og mark-
aði.
6. Hugsið alþjóðlega og takmarkist ekki
af heimamarkaði.
7. Leggið áherslu á gæði um allt fyrirtæk-
ið.
8. Gefið umhverfinu gaum og verið um-
hverfismeðvituð.
9. Aukið hraða og snerpu í vinnubrögð-
um.
10. Hristið upp í fyrirtækinu og endur-
skoðið það reglulega.
Making it in America er bók um sigursæl fyrir-
tæki - og hvernig þau fara að.
fyrir Alþjóðabankann. Hann hefur
skrifað 6 bækur og fjölda tímarita-
greina.
UPPBYGGING OG EFNISTÖK
Höfundamir eru ekki aðeins að
skrifa um endurreisn bandarískra við-
skiptarisa, heldur er um að ræða frá-
sagnir af árangri ólíkra framleiðslu-
fyrirtækja sem geta orðið öðrum
hvati til dáða. Efnistökin byggja á
samtölum við stjómendur og starfs-
fólk og þannig reyna höfundamir að
komast að því hvað legið hafi að baki
velgengni fyrirtækjanna. Þeir rann-
sökuðu þúsundir fyrirtækja og ræddu
við ráðgjafa og sérfræðinga í þeirra
atvinnugreinum. Þessi skoðun skilaði
höfundunum efni til að segja frá rúm-
lega 200 sterkum og áhugaverðum
fyrirtækjum. Síðan hófst mikil rann-
sókn á ársreikningum þessara fyrir-
tækja og skoðaðar voru umfjallanir
um þau í fjölmiðlum. Leitað var um-
sagna margra leiðtoga atvinnurek-
enda og verkafólks. Loks vom valin
50 sem urðu að falla innan þess
ramma sem settur var með hinum 10
völdu leiðum til árangurs og sýndar
eru sérstaklega hér á síðunum.
Bókin er í 12 köflum, sem, að
slepptum 2 kynningarköflum, fjalla
um hinar 10 leiðir, og eru nefnd til
sögunnar 5 fyrirtæki í hverjum kafla.
Rauði þráðurinn er að halda sig við
grundvaUaratriði og kunna á þeim góð
skil. Hafa gott vald á þeim, hvika
aldrei frá þeim og vinna að stöðugum
endurbótum á þeim, eftir því sem
þörfin (markaðurinn) krefur.
UMFJÖLLUN
Bókin er saga velgengninnar í fyrir-
tækjarekstri sem höfundar telja að sé
gengin í garð í Bandaríkjunum. Þetta
efni er mjög viðeigandi lesning hér á
landi nú þegar hvert fyrirtækið af
öðm skilar ársreikningum með góðri
afkomu sem á að bera vott um vel-
gengni.
Hér eru ekki aðeins tekin dæmi af
mörgum þekktustu fyrirtækjum
Bandaríkjanna heldur em einnig
kynnt til sögunnar önnur fyrirtæki,
sem em ekki eins „heimsfræg" en
orðstír þeirra og árangur hefur fleytt
þeim upp virðingarstigan í viðskipta-
heiminum vestra.
Bókin er skrifuð af mikilli þekkingu
höfunda um iðnaðinn í Bandaríkjunum
og eru vinnubrögð til mikiUar fyrir-
myndar. Bókin hefur ítarlegar skýr-
skotanir í aðrar bækur og í blaða- og
tímaritagreinar sem liggja til grund-
vallar efnistökum og frásögnum.
Þannig getur lesandinn auðveldlega
fundið mikið ítarefni um hvert fyrir-
tæki ef hann hefur áhuga á frekari
skoðun sjálfur. Efnisyfirlitið er vel
sundurliðað og sömuleiðis er góð
atriðaorðaskrá í lok bókar.
L
37