Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 36
BÆKUR
Gagnleg bók fyrir stjórnendur:
Frásagnir af 50 einstaklega árangursríkum fyrirtxkjum og
hvernigþau nábu þessum einstxba árangri. Bókin lýsir hvernig megi
Ixra af stjórnendum þeirra
Heiti bókar: Making It In Am-
erica. Provenpaths to success
from 50 top companies
Höfundar: Jerry Jasinowski og
Robert Hamrin
Útgefandi og ár: Simon &
Schuster -1995
Lengd bókar: 350 bls.
Hvar fengin: Erlendis
Einkunn: Vel gerð greining á
góðu gengi fyrirtækja.
Viðfangsefnið
Hér eru á ferðinni 50 frásagnir af
einstaklega árangursríkum fyrirtækj-
um, hvemig þau náðu einstæðum ár-
angri og hvað læra megi af reynslu
þeirra. Þær leiðbeina lesandanum
svo hann finni leiðina að árangri,
hvort sem hann er stjómandi, starfs-
maður eða háskólastúdent. Öll fyrir-
tækin eru iðnfyrirtæki en leiðimar
eiga ekki síður við um fyrirtæki í þjón-
ustu en hjá hinu opinbera. Frásagn-
imar eru flokkaðir í 3 höfuðflokka sem
eru nokkurs konar langtímamarkmið
allra fyrirtækja, að dómi höfunda: 1.
Virkja og hlúa að starfsfólki - 2. Gera
viðskiptavinum til hæfis og leita nýrra
markaða - 3. Vinna að stöðugum end-
urbótum.
í fyrsta lagi er það staðreynd að
starfsfólk er almennt metnaðar-
gjamt, sveigjanlegt og opið fyrir nýj-
ungum og er þess vegna tilbúið til að
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
setja sig inn í nýja og breytta hluti ef
það fær aðstoð við endur- og sí-
menntun. Annað viðfangsefnið lýsir
samkeppnisstöðunni sem flest fyrir-
tæki em í, og viðskiptaumhverfinu
sem kallar á nýjungar í vömm og
mörkuðum. Þriðja atriðið skiptir
sköpum, þ.e. að geta komið fram
með nýjungar, beitt nýrri tækni og
hætta aldrei að leita nýrra leiða og
betri í framleiðslunni.
Höfundamir telja að mörg fyrirtæki
séu á vegamótum og að of mörg
þeirra kjósi að velja hina kunnugu og
þægilegu leið sem snýst um að fylgja
eingöngu hefðum og stefnum gær-
dagsins og gera alla hluti eins og
venjulega. Þessi leið mun verða fær
enn um sinn en síðan ekki söguna
meir. Allar líkur em á að þessi fyrir-
tæki staðni og h'ði undir lok með
20.öldinni. Hin leiðin er erfiðari og
fáfamari, sem krefst allt öðmvísi
hugsunarháttar og skipulags. Þar
ríkja breyttar áherslur í umgengni við
viðskiptavini, stöðug endurmenntun
og markvisst þróunarstarf.
Það, sem er sammerkt fyrirtækj-
Jón Snorri
Snorrason
hagfræðingur
skrifar reglulega
um viðskiþtabækur
í Frjálsa verslun.
unum 50 í bókinni, er annars vegar að
þau hlúa betur að grundvallaratriðum
og halda sig við þau og hins vegar að
þau byggja á þeim gmnni með opnum
huga. Þau em ávallt í leit að nýjungum
og að reyna að bæta sig til þess að
vera betur í stakk búin að mæta þeim
miklu breytingum sem em stöðugt að
eiga sér stað í viðskiptaheiminum.
Það fyrirtæki, sem nær að samhæfa
hvort tveggja, nær árangri.
Það er athyglisvert að bera saman
ástæður fyrir árangri þessara útvöldu
fyrirtækja sem em mörg hver að skila
góðum árangri á ný eftir mögur ár en
það má til sanns vegar færa að þetta
eigi sér einmitt stað hjá mörgum
fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi um
þessar mundir.
HÖFUNDARNIR
Jerry Jasinowski er forseti lands-
sambands iðnrekenda (National As-
sociation of Manufacturers; NAM) og
mikilsvirtur talsmaður iðnaðarins
vestra. Hann hefur verið hagfræði-
prófessor, stjómandi hagrannsókna-
deildar Bandaríkjaþings, veitt for-
stöðu ráðgjafanefnd Carters Banda-
ríkjaforseta og verið skrifstofustjóri í
viðskiptaráðuneytinu.
Dr. Robert Hamrin er efnahags-
ráðgjafi hjá NAM, fyrirlesari og höf-
undur íjölda greina um hagræði og
viðskiptafræði fyrir Washington In-
telligence. Hann hefur m.a. unnið
36