Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 8
Naumur meirihluti vill leyfa útlendingum ab vinna
hérlendis efá sama tíma ríkir atvinnuleysi hér á landi.
Páll félagsmálaráðherra erþví ekki einn á báti
Naumur meirihluti, af
þeim sem taka afstöðu
með eða á móti, vill leyfa
útlendingum að vinna
hérlendis á sama tíma og
hér ríkir atvinnuleysi.
Þetta er samkvæmt skoð-
anakönnun Frjálsrar
verslunar sem gerð var í
mars sl. Alls tóku 503
þátt í könnuninni.
Það vakti nokkra at-
hygli sl. haust þegar Páll
Pétursson félagsmála-
ráðherra vildi að á tímum
atvinnuleysis hér á landi
yrði fullreynt að fá Is-
lendinga í fiskvinnu víða
um land og bíða á meðan
með að veita útlending-
um atvinnuleyfi. Þótti
gæta útlendingahaturs í
þessum vinnubrögðum
ráðherrans.
Samkvæmt könnun
FYLGJANDIVINNU ÚTLENDINGA
ef á sama tíma ríkir hér atvinnuleysi?
Aldur Fylgjandi Andvígir Hlutlausir
Eldri en 60 ára 30% 50% 20%
46-60 ára 46% 35% 19%
31-45 ára 42% 34% 24%
30 ára og yngri 41% 31% 28%
% af úrtaki 40% 37% 23%
Mikil andstaða er hjá fólki yfir 60 ára við vinnu útlendinga
hérlendis ef á sama tíma ríkir atvinnuleysi. Meirihluti fram-
sóknarmanna og stuðningsmanna Alþýðubandalagsins eru á
móti vinnu útlendinga hér á tímum atvinnuleysis.
Vinna útlendinga
Um 52% eru fylgjandi vinnu
útlendinga.
á tímum atvinnuleysis hér
Frjálsrar verslunar er
Páll Pétursson ekki einn
á báti með þessar skoðan-
ir. Spurt var: Hvort ert þú
fylgjandi, andvíg(ur) eða
hlutlaus um það hvort út-
lendingar vinna á Islandi,
ef á sama tíma ríkir at-
vinnuleysi hér á landi?
Niðurstaðan var þessi:
40% voru fylgjandi, 37%
voru andvíg og 23% voru
hlutlaus. Samkvæmt
þessu er ekki afdráttar-
laus meirihluti við vinnu
útlendinga. Séu aðeins
teknir þeir, sem taka af-
stöðu með eða á móti,
mælist naumur meiri-
hluti við vinnu útlend-
inga hér. Þá eru 52%
fylgjandi en 48% andvíg.
Mesta andstaðan við
vinnu útlendinga hér á
tímum atvinnuleysis er
hjá fólki yfir 60 ára. Þeg-
ar niðurstaðan er skoðuð
eftir fylgi við stjórnmála-
flokka sést að mesta and-
staðan við vinnu útlend-
inga er hjá framsóknar-
mönnum og stuðnings-
mönnum Alþýðubanda-
lags.
Fundir
móttökur
Veisluþjónusta
Sími5510100
Fax 5510035
Jómfrúin
ísmurbrauðsveitingahús • Lækjargata4
Jakob Jakobsson smorrebrodsjomfru
„Elegant“
hádegisverður
opið 11 -19
Sunnudaga É’MÉÍ S
lokað F ........i U
8