Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 70
FOLK
ELÍN BJÖRK JÓHANNESDÓTTIR, SÓL
„Stöðugleiki er gífurlega
mikilvægur í þessum iðnaði
og hann hlýtur alltaf að
byggja á ströngu gæðaeftir-
liti. Með stöðugleika er átt
við að bragð og áferð vör-
unnar séu alltaf nákvæm-
lega eins en sveiflist ekki til
milli laganna því slíkt líkar
flestum neytendum afar
illa.“
Matvælafræðingar læra
margt um efnafræði matar
og næringarfræði og Elín
segist prédika hófsemi og
heilbrigðan lífsstíl en tali
gegn megrunarkúrum yfir
þeim sem vilja hlusta.
Elín er gift Ingimundi
Bimi efnaverkfræðingi sem
vinnur hjá Járnblendifélag-
inu á Grundartanga. Þau em
bamlaus og búa rétt hjá
verksmiðjunni því Elín seg-
ist vera þrjár mínútur að
labba í vinnuna. Elín segist
lesa mjög mikið og finnst af-
ar gott að slaka á með góðan
reyfara þegar vinnu sleppir.
Hún les ensku og sænsku
en hefur fengist við frönsku-
nám hjá Alliance Francais í
frístundum og segist hafa
mikinn áhuga á tungumál-
um.
„Ég les margt og helst
reyfara en er núna að lesa
Viilta svani. “
Elín segist í frístundum
sínum hlusta á tónlist, njóta
samvista við vini sína og
skemmta sér og borða með
þeim.
„Mér finnst gaman að
ferðast og fór í fyrsta sinn í
vetrarfrí í vetur og naut lífs-
ins á Kanaríeyjum. Ég hef
svolítið verið í leikfimi en
ætla að fara út að hlaupa
mér til heilsubótar núna
þegar sólin hækkar á lofti.“
Elín Björk Jóhannesdóttir er verksmiðjustjóri hjá Smörlíki-Sól, fyrst kvenna. Hún er
33 ára matvælaverkfræðingur sem kom fyrst til starfa hjá Sól árið 1983, þá nýorðin
stúdent.
0síðustu 18 mánuðum
má segja að orðið
hafi til 80 nýjar vöru-
tegundir í Sól hf. Nýir eig-
endur hafa farið kerfisbund-
ið gegnum allar framleiðslu-
vörur fyrirtækisins og horft
með gagnrýnu auga á upp-
skriftir, smakkað, skoðað
og ígrundað. í sumum tilvik-
um var engu breytt, sumum
tegundum var mikið breytt,
aðrar lagðar á hilluna og
nokkrar alveg nýjar urðu til.
Þannig má segja að þetta
gróna fyrirtæki hafi gengið í
gegnum endumýjun lífdaga
enn einu sinni.
Síðasta verkefnið í þess-
ari endurskipulagningu var
að gera nýtt skipurit fyrir
fyrirtækið og við þær breyt-
ingar, sem þá voru gerðar,
varð Elín Björk Jóhannes-
dóttir verksmiðjustjóri Sól-
ar hf., fyrst kvenna til þess
að gegna því starfi innan
fyrirtækisins.
„Okkar helstu verkefni
þessa dagana er að setja á
markað og kynna tvær nýjar
vörutegundir frá Sól. Ann-
arsvegar er það ávaxtasaf-
inn Sólríkur og hinsvegar
Eplasítri en það er okkar
framleiðsla á Apple Cider
sem margir kannast við,“
sagði EKn Björk.
Elín Björk er 33 ára mat-
vælafræðingur sem kom
fyrst til starfa hjá Sól árið
1983, þá nýorðin stúdent,
og vann þar með hléum
næstu árin en í föstu starfi
frá 1987. Elín er fædd í
Reykjavík, varð stúdent frá
MR 1983 og lauk matvæla-
fræðinni frá HÍ 1987. Auk
þess hefur hún stundað nám
í rekstrarfræði við HÍ og há-
skólann í Lundi í Svíþjóð.
„Ég byijaði í verksmiðj-
unni og hef unnið á öllum
stigum framleiðslunnar
nema á lagernum.“ Elín ber
ábyrgð á stýringu fram-
leiðslunnar, birgðahaldi,
viðhaldsdeild og rannsókn-
arstofu. Samtals vinna 35
manns undir hennar stjórn.
Hún segir að nokkrar árs-
tíðasveiflur séu í starfsemi
Sólar því mismikil eftirspum
sé eftir vömm fyrirtækis-
ins. Þannig er mest sala í
söfum og drykkjarvörum í
takt við skólaárið en smjör-
líkisárið hefur annan takt
með tveimur hátindum um
jól og páska.
„Framleiðendur í þessum
iðnaði þurfa að fylgjast með
fleiri en einu almanaki. “
Elín varð yfirmaður rann-
sóknarstofu og síðar gæða-
stjóri áður en hún tók við
starfi verksmiðjustjóra og
gæðamál eru henni ákaflega
hugleikin. Hún telur að ötult
og mikið starf, sem unnið
hefur verið í gæðastjómun
hjá Sól hf. undanfarin ár, sé
þegar farið að skila miklum
árangri.
TEXTI: PÁLL ÁSGEIRSSON MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
70