Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 49
vonlaust umhverfi að vinna í og sýndi
að yfirmenn verða að hafa reynslu í að
umgangast fólk og vinna með því en
ekki með það. Ég held að það sé því
ótvírætt kostur hafi yfirmaður fyrir-
tækis reynslu af hópíþróttum." Undir
þetta taka fleiri þjálfarar.
Svipað er uppi á teningnum við val
á fyrirliða. „Ég tek eftir því hver hefur
mesta hæfileika til að umgangast
strákana, hefur ákveðinn persónu-
leika og getur komið hlutunum frá sér
á málefnalegan hátt. Þess
vegna er það nú stundum að
skærustu stjömumar hafa
minnsta hæfileika til að
gegna fyrirliðastöðu," segir
Þorbjöm.
Ásgeir leggur einnig
áherslu á mannlega þáttinn. Hann vill
vera nálægt sínum leikmönnum en
gætir þess um leið að staða hans sem
yfirmaður sé óskoruð. Hann segir
nauðsynlegt að vera sveigjanlegur
svo breyta megi áætlunum með litlum
fyrirvara, vera með varaplön uppi í
erminni. Ásgeir segist setja ákveðnar
reglur en þær séu þess eðlis að þægi-
legt sé að vinna eftir þeim án þess að
brjóta þær.
„Eftir að hafa spáð í efniviðinn
reyni ég að draga fram sterkar og
veikar hliðar og byggi síðan á sterku
hliðunum. Annars er svo misjafht
hvernig þjálfarar vinna þótt alltaf séu
ákveðin gmndvallaratriði sem hafa
verður í lagi. Það er hægt að ná ár-
angri á alla vegu og það kollvarpar
stundum kenningum manna í þessu
þegar lið, sem enginn hafði trú á, nær
á toppinn.
Það kemur fram í máli beggja að
árangur náist ekki nema leikmenn séu
STJARNA EÐA STJÓRNANDI?
sáttir við sjálfa sig og umhverfi sitt.
Þessi þættir þurfa ekki aðeins að vera
í lagi á æfingum og í leik heldur einnig í
einkalífinu. Ef eitthvað bjátar á þarf
þjálfarinn að þekkja sína menn nógu
vel til að taka eftir því og taka á mál-
inu. Svipað hljóti óhjákvæmilega að
eiga við um fyrirtæki.
„Ég þekki strákana mína og veit að
eitthvað er að ef afköstin eru minni en
vanalega. Þá fer ég umsvifalaust í við-
komandi og ræði við hann. Þá getur
komið í ljós að eitthvað í einkalífinu
spillir fyrir. Eins og við er að búast
kemur ýmislegt upp þegar stór hópur
ólíkra einstaklinga vinnur saman.
Þjálfarinn þarf að láta sér annt um alla
og vera vakandi yfir þessum hlutum.
Óleyst vandamál eins úr hópnum geta
haft áhrif á allt liðið.“
EKKIGRAFA SIG í VINNU
EFILLA GENGUR
En stundum gengur illa í
íþróttum og grípa þarf til að-
gerða. Bæði Þorbjöm og
Ásgeir segja mikilvægt að
menn ræði málin en byrgi
ekki óánægju og gagnrýni
innra með sér. Þá undir-
strikra þeir mikilvægi þess að yfir-
maðurinn sé sýnilegur þegar eitthvað
bjátar á, feli sig ekki og láti síðan aðra
um að koma óvinsælum ákvörðunum
til skila.
„Ef menn eru óánægðir, t.d. séu
þeir ekki í liðinu, þá geri ég kröfu um
að þeir komi til mín og ræði málin, fari
ekki út í hom með sín mál. Það er ég
sem er ábyrgðarmaður liðsins; ég
stjórna, vel liðið og skipulegg æfing-
ar. Ég er því sá eini sem get gefið
Það er nú stundum þannig að skærustu
stjörnurnar hafa minnsta hæfileika
til að gegna fyrirliðastöðu.
49