Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 32
VIÐHORF T1L FORSETAFRAMBOÐS?
Könnun í apríl Jákv. Neikv. % % Hlutl. % Könnun í mars Jákv. Neikv. % % Hlutl. %
Guðrún Agnarsdóttir 30,4 24,8 44,8 37,1 36,5 25,3
Guðrún Pétursdóttir 39,9 23,6 36,5 51,5 20,6 27,0
Guðm. R. Geirdal 6,1 57,3 37,7 3,6 71,9 23,5
Ólafur R. Grímsson 64,5 14,5 21,0 39,1 41,9 18,2
Pétur Hafstein 33,9 24,2 41,9 - - -
HVERN EFTIRTAUNNA VILTU SJÁ SEM Könnun í apríl % af % af þeim úrtaki sem tóku afstöðu :0RSETA? Könnun í mars % af % af þeim úrtaki sem tóku afstöðu
Guðrúnu Agnarsdóttur 4,5 6,0 13,0 19,0
Guðrúnu Pétursdóttur 10,9 14,6 21,0 31,0
Guðm. R. Geirdal 0,0 0,0 1,0 1,0
Ólaf R. Grúnsson 49,9 67,0 13,0 20,0
Pétur Hafstein 9,2 12,4 "
HVERN OFANTALINNA TELUR ÞÚ NÆSTBESTA KOST?
% af
úrtaki
Guðrúnu Agnarsdóttur 16,2
Guðrúnu Pétursdóttur 19,8
Guðmund Rafn Geirdal 1,0
Ólaf Ragnar Grímsson 10,3
Pétur Hafstein 16,7
Afstöðu tóku 64,0
Tóku ekki afstöðu 36,0
HVORT VILT WJ KARL EÐA KONU SEM FORSETA?
Konu Karl Hlutlaus Alls
% % % %
Konur 13,0 27,1 59,9 100,0
Karlar 13,6 27,2 59,2 100,0
Niðurstaða: 13,3 27,1 59,6 100,0
VILT ÞÚ STJÓRNMÁLAMANN SEM FORSETA?
Já Nei Hlutlaus Alls
% % % %
Konur 7,4 39,0 53,6 100,0
Karlar 17,1 28,9 54,0 100,0
Niðurstaða: 11,9 34,4 53,7 100,0
FYLGISJÁLFSTÆÐISMANNA VIÐ FRAMBJÓÐENDUR
% af úrtaki
Guðrúnu Guðrúnu Guðm. ÓlafR. Pétur Hlutl. eða
Agnarsd. Pétursd. Geirdal Grímsson Hafstein engan
4,4 12,4 0,0 40,4 20,5 22,3
síma og þar af tóku 487 þátt í könnun-
inni. Byijað var á henni tveimur dög-
um eftir að Pétur Hafstein tilkynnti
um framboð sitt og degi eftir að skoð-
anakönnun DV um forsetaframbjóð-
endur var kynnt. í þeirri könnun
mældist Ólafur Ragnar með um 61%
fylgi þeirra sem tóku afstöðu.
Skekkjumörk í könnun Frjálsrar
verslunar voru 4,5%. Það þýðir að
niðurstöður þessara tveggja kann-
anna liggja ansi nærri hvor annarri.
Engu að síður má túlka þá niðurstöðu
að Ólafur hafi aukið fylgi sitt eftir að
DV könnunin birtist. Það væri þá í
takt við þá kenningu að hluti fólks
snúist ævinlega á sveif með sigurveg-
urum í skoðanakönnunum.
í raun er Ólafur Ragnar kominn
með slíkt yfirburðafylgi miðað við
kannanir að draga má þá ályktun að
úrslitin séu ráðin; að svo sjóaður
maður í stjómmálum glutri tæplega
niður slíku forskoti. Það á hins vegar
það sama við um kosningaslag og
íþróttaleik að leikurinn er ekki búinn
fyrr en hann hefur verið flautaður af -
fyrr en búið er að telja upp úr kjör-
kössunum. Kosningaslagurinn er
ekki enn hafinn fyrir alvöru en það fer
nú hver að verða síðastur að byrja
þann slag. Enn eiga frambjóðendur
eftir að koma fram í sjónvarpi og á
kosningafundum. Þeir eiga eftir að
standa sig misvel, eins og gengur í
öllum kosningabaráttum.
MUN FÁ RÆKILEGA SKOÐUN
Þar sem kosningarnar snúast orðið
algerlega um Ólaf Ragnar verður að
ætla að hann fái rækilegri skoðun en
aðrir frambjóðendur á næstunni.
Ætla verður að fortíð hans verði rifjuð
upp í fjölmiðlum og farið verði ofan í
saumana á frammistöðu hans - og
gjörðum til þessa. Hvað hefur hann
sagt á Alþingi? Hvemig hefur orð-
bragð hans verið? Hvernig stóð hann
sig sem formaður Alþýðubandalags-
ins? Hvemig stóð hann sig sem fjár-
málaráðherra? Er hann áreiðanlegur?
Hvemig mun hann standa sig á alþjóð-
legum vettvangi? Er trúverðugt að
Ólafur Ragnar, sem hefur haft hvað
mesta þörf allra til að tjá sig um menn
og málefni í fjölmiðlum, sé þagnaður í
pólitík á opinberum vettvangi aðeins
53 ára?
32