Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 50
STJORNUN
Ásgeir: Það er mikilvægt aðyfirmabur se' sýnilegurþegar eitthvað
bjátar á, feli sig ekki og láti aðra um að koma óvinsælum ákvörð-
unum til skila.
Þorbjörn: Ég segi aldrei að þessi eða hinn leikmaðurinn hafi
eyðilagt leikinn. Við erum eitt lið og ef einhver klikkar þá er það
liðið í heild sem klikkar.
viðhlítandi skýringar. Ég gæti þess
líka að gera ekki k'tið úr mönnum
frammi fyrir hópnum. Ef ég ákveð að
setja einhvem út úr liðinu fyrir leik
segi ég honum það einslega áður en
liðið er tilkynnt. Það er engin fram-
koma að leikmaður fái fyrst að heyra
um slíka ákvörðun á fundi með öllum
hinum. Á þennan hátt losna ég við
misskilning, óþarfa árekstra og upp-
hrópanir. Þetta er hluti af því að hafa
menn sáttari við stöðu sína í hópnum
hverju sinni. Það eiga allir kröfu á
skýringum ef breyta á stöðu þeirra
innan hópsins," segir Ásgeir.
Þorbjörn segir að þegar illa gangi
falli margir í þá gryfju að æfa og vinna
meira og meira. „Það skapar bara
verra andrúmsloft. Það er nauðsyn-
legt að brjóta hlutina upp, gera eitt-
hvað allt annað sem aftur getur hjálp-
að mönnum að skoða málin úr íjar-
lægð og komast að mále&ialegri
niðurstöðu. Þegar illa gengur hjá okk-
ur komum við gjaman saman heima
hjá mér og borðum saman. Makamir
em þá með og við ræðum málin. Við
ræðum ekkert endilega af hverju ekki
gengur sem skyldi heldur njótum til-
breytingarinnar og samverunnar.
Þetta hef ég gert með góðum ár-
angri.“
Þorbjöm er myrkur í máli gagnvart
þeim stjómendum sem fela sig þegar
illa gengur. „Það er afar slæmt þegar
yfirmenn geta ekki horfst í augu við
sína menn þegar taka þarf óvinsælar
ákvarðanir, eins og að setja menn úr
liðinu af einhverjum ástæðum. Ég
horíist alltaf í augu við mína menn,
það er líka nauðsynlegt til að halda
stöðu sinni og virðingu í hópnum. Á
sama hátt má ekki taka einstaka menn
út úr eða finna blóraböggla. Ef leikur
tapast vegna klúðurs eins eða tveggja
manna þá segi ég aldrei sem yfírmað-
ur að þessi og þessi hafi eyðilagt leik-
inn. Við erum eitt lið og ef einhver
klikkar þá er það liðið í heild sem
klikkar. Og ég er jafii sekur og leik-
mennirnir.“
FARAVEL MEÐ VELGENGNINA
Þjálfarar, sem Frjáls verslun ræddi
við, undirstrika að til þess að árangur
náist þurfi allir í félaginu að vinna sam-
an, stjóm, framkvæmdastjórar,
starfsfólk og fleiri. Það gangi ekki að
einhver hluti félagsins vinni á móti
settum markmiðum.
Það þarf sterk bein til að tolla í
þjálfarastarfi. En það þarf líka sterk
bein til að þola velgengni. Hvert lið á
sínar hetjur og viðmælendur Frjálsrar
verslunar ítrekuðu að menn yrðu að
fara vel með velgengnina til að hún
nýttist mönnum að einhverju viti.
„Þegar þú ert orðinn stjarna er erfitt
að halda sér á þeim stalli. Því ræði ég
við menn, sem mikið ber á, og ráð-
legg þeim að fara vel með þetta. Of-
metnast ekki. Því þá er hætta á að fá
rýting í bakið. Ég segi mönnum að
liggja lágt en líða vel heima. Menn
þurfa að eiga varasjóð fyrir þá tíma
þegar verr getur gengið og þá ríður
líka á að þeir séu ekki í andlegum
50