Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 64
Góð aðstaða er tíl funda- og ráðstefnuhalds á Edduhótelinu á Kirkjubæjarklaustri. HóteUð
er opið aUt árið og aðstaða er fyrir allt að 130 manns innan hótelsins en félagsheimilið er
til afnota fvrir stærri fundi.
Hótel Edda á Kirkjubæjarklaustri var opnað
árið 1994. Þar eru innréttingar og aðstaða
samkvæmt ýtrustu kröfum um nýtísku hótel.
Myndir: Lárus Karl Ingason.
Paradís funda of
Karl Rafnsson, hótelstjóri á EdduhóteUnu á
Kirkjubæjarklaustri, segir að hóteUð sé
smátt í sniðum og persónulegt.
„Gestir okkar á
Kirkjubæjar-
klaustri hafa lokið
lofsorði á frið-
sældina og þann
góða vinnuanda
sem skapast hef-
ur. Hótelið getur
boðið góða
aðstöðu til funda-
og ráðstefnu-
halds. Húsið er
nýtt og glæsilegt
og vel hugsað fyr-
ir þörfum gesta,“
segir Karl Rafnsson, hótelstjóri Hótel Eddu á Kirkjubæjar-
klaustri. Karl hefur verið hótelstjóri frá árinu 1991. Áður
sáu hann og kona hans, Björg Ágústs-
dóttir, um Edduhótel á Hallormsstað
og í Nesjaskóla. Karl er frá Hornafirði
og segir eina muninn þann að nú horfi
hann á Vatnajökul til austurs í stað vesturs áður.
„Hér á Klaustri er umhverfið ákaflega fagurt og hvetj-
andi. Við erum í 260 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík og
hótelið er opið allt árið. Hótelið er eitt best búna hótelið
utan þéttbýlis og býður fyrsta flokks aðbúnað fyrir gesti,
hvort sem þeir eru í einka- eða viðskiptaerindum.“
HÓtel EDDA,
Klaustri
sem tengdur er . • •
Gisting og matur
Á hótelinu eru 57 tveggja manna herbergi með sérbað-
herbergi og 1 svíta. Sími og útvarp eru á öllum herbergj-
um og sjónvarp á 25 herbergjum. Sjónvarp er líka í setu-
stofu á gangi. Hótelið var opnað fyrir fyrstu gesti árið 1994
og eru herbergin innréttuð samkvæmt nýjustu kröfum
um aðbúnað. Kappkostað er að veita gestum hlýlega og
persónulega þjónustu.
,Á sumrin bjóðum við aukalega 16 herbergi með hand-
laug í skólahúsinu og einn sal í skólanum,“ segir Karl.
Hótelið er rómað fyrir ljúffengan mat. Morgunverður er
framreiddur á hlaðborð í matsalnum en í hádegi og á
kvöldin er boðið upp á mat af séréttaseðli eða rétt dagsins.
Meðal rétta af matseðli eru koníaksbætt skelfiskssúpa,
pönnusteiktar lundabringur með púrtvínssósu, pönnu-
steikt Klausturbleikja með blönduðum hnetum og rækjum
og blandaðir íslenskir ostar með ávöxtum og kexi. Á Hótel
Eddu á Kirkjubæjarklaustri er notalegur bar inn af matsal
og setustofu.
64