Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.07.1999, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN Orðstír deyr aldrei Það er trúlega algert einsdæmi að forsætis- ráðherra fari slíkum hamförum gegn einu fyrir- tæki vegna hlutabréfaviðskipta á frjálsum markaði eins og Davíð Oddsson hefur gert gagnvart Kaupþingi að undanförnu — og hefur fýrirtækið tæplega lent í öðrum eins hremm- ingum í farsælli sögu sinni. Engum dylst að Davíð er ævareiður út í fyrirtækið og eigendur þess, sparisjóðina, fyrir að hafa selt Jóni Olafs- syni í Skífunni og fleirum athafnamönnum hlut Scandinavian Holding í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins, FBA, og samið við þá í leiðinni um að mynda nýjan meirihluta í FBA nái sparisjóð- irnir að kaupa stóran hluta til viðbótar af afgangnum, 51% hlut ríkisins, og sameina FBA og Kaupþing í kjölfarið undir forystu Kaupþings. Ýmislegt í aðdraganda málsins, sem ítarlega er Ijall- að um á öðrum stað hér í blaðinu, hefur einnig farið fýrir brjóst- ið á forsætisráðherra. Hann segir að kaup Jóns Olafssonar og félaga á FBA-bréfum sparisjóðanna séu búin að eyðileggja fyrir ríkinu að stærstum hluta þau hlutabréf sem eru í eigu þess — nema ríkið bregðist við af hörku. Þar á hann við það að ríkið selji meirihlutann til eins aðila þannig að Jón Olafsson og félag- ar komist ekki í ráðandi stöðu í bankanum og nái ekki að sölsa hann undir sig. Reynslan sýnir að Davíð Oddsson tapar aldrei slag eins og þeim sem hann er núna kominn í. Jón Ólafsson Þessi deila er athyglisverð vegna þess að hún gengur út á orðstír manna og orðspor, traust. Davíð metur stöð- una svo að orðstír Jóns Olafssonar í Skífunni, Jóns Asgeirs Jó- hannessonar, forstjóra Baugs, Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og Eyjólfs Sveinssonar, hjá Frjálsri íjölmiðl- un, sé með þeim hætti að almenningur og menn í viðskiptalífinu hafi ekki tiltrú á bankanum með þá félaga í ráðandi stöðu innan hans og vilji því ekki íjárfesta í honum! Spyrja má sig að því hvort þekkt harka þessara manna í viðskiptum sé byrjuð að vinna gegn þeim. Sá fjórmenninganna sem ör- ugglega er hvað umdeildastur er Jón Olafsson í Skífunni. Fram hjá því verður ekki litið að ótrú- lega margir í athafnalífinu sem átt hafa við hann viðskipti hafa illan bifur á honum — og á pólitík þar ekki hlut að máli. Þótt hann hafi sölsað und- ir sig Stöð 2 með því að kaupa flesta aðra hlut- hafa út má ekki horfa fram hjá því að þeir hinir sömu vildu selja honum hlutabréfin á verði sem þeir sættu sig við og hafa fengið greiðslur fýrir að fullu! Þótt almannarómur sé sterkur verða menn að gæta þess að stunda ekki nornaveiðar í íslensku samfélagi; menn mega ekki fá nafnið Jón Olafsson og slæma ímynd þess á heilann — og fara á taug- um! Traust er hins vegar það sem skiptir fjármálastofnanir mestu máli og stjórnvöld ráða auðvitað hverjum þau selja bank- ann — svo fremi sem þau gæta þess að hámarksverð fáist. ímyntf hinna En það er ekki bara að margir lfti það hornauga að jafhumdeildur maður og Jón Ólafsson sé í ráðandi stöðu inn- an FBA heldur virðist sem ímynd þeirra Þorsteins Más Bald- vinssonar, Jóns Asgeirs Jóhannessonar og Eyjólfs Sveinssonar sé heldur ekki upp á það besta á meðal manna í viðskiptalífinu. Þannig hefúr verið nefnt að FBA hafi fýrsta veðrétt í öllum sjáv- arútvegsfýrirtækjum landsins og að innan sjávarútvegsins líði mönnum ekki of vel að hafa Þorstein Má innanborðs í bankan- um og að honum berist vitneskja um veikleika fýrirtækja á und- an öðrum — eða hvað þau kunni að hafa á pijónunum í rekstri sínum. Þá hefur verið bent á að Eyjólfur Sveinsson sé stjórnar- formaður HB á Akranesi og að sömu rök gildi um veru hans þarna og Þorsteins Más. Imynd Jóns Ólafssonar hefúr um árabil verið afar veik innan atvinnulífsins. Versnandi ímynd hinna er hins vegar íhugunar- efni fyrir þá og þau fyrirtæki sem þeir leiða. Orðstír deyr aldrei! Jón G. Hauksson Stoftiuð 1939 1 fj L.f/j Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 61. ár Sjöfn I’áll Ásgeir Sigurgeirsdóttir Ásgeirsson auglýsingastjóri blaðamaður Geir Ólafsson Kristín Ágústa Ragnars- Ijósmyndari Bogadóttir dóttir grafískur Ijósmyndari hönnuður RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson IJÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir UMBROT: Ágústa Ragnarsdóttir ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greilt er með kreditkorti IAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- DREIFING: Talnakönnun, hf., sími 561 7575 FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafíkhf. LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSIA: Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 561 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is ISSN 1017-3544 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.