Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Side 38

Frjáls verslun - 01.07.1999, Side 38
FRÉTTASKÝRiNG Ný stjórn Básafells á sínum fyrsta fundi. Talið frá vinstri: Guðmundur Kristjánsson, stjórnar- formaður, Hjálmar Kristjánsson, Steinþór Kristjánsson, skrifstofustjóri Básafells, ritari stjórn- ar, Svanur Guðmundsson, framkvœmdastjóri Básafells, Pétur Sigurðsson, Gunnar Hjaltalín og Sigurbjörn Magnússon. komendur Jóns B. Jónssonar skip- stjóra sem hölðu verið hluthafar frá upphafi. Nýir menn koma í staðinn en Islandsbanki seldi tveimur aðil- um hlut í nýju fýrirtæki, hvorum um 10% eignarhlut í sameinuðu fýrirtæki. Annars vegar er um að ræða Þormóð ramma-Sæberg á Siglufirði og hins vegar Ránar- borg ehf. sem er eignarhaldsfélag Þorsteins Wilhelmssonar sem er stærsti eigandi Samheija á Akur- eyri. Um mánaðamót verður nýtt félag formlega stofnað og þá skýrast línur um framtíð fýrir- tækjanna. Islandsbanki á enn óseld 19% hlutaijár í nýja fyrir- tækinu og á Isafirði er það al- mennt álit manna að miklu máli skipti hver kaupir þau. Ef það yrði t.d. Sam- herji þá yrði ffamhaldið væntanlega líkt því sem það varð þegar Hrönn sameinaðist Samheija. Kristján Jóhannsson, núverandi frarn- kvæmdastjóri Gunnvarar, er ásamt Jó- hanni Júlíussyni, föður sínum, einn stærsti eigandi Gunnvarar en samanlagt eiga þeir feðgar um 30% í Gunnvöru sem er ígildi um 18% í nýju fyrirtæki. Ekki er talið lík- Tveir frœgustu menn Vestfíarðn hluthafafundi Básafells Tv h• ° main aö loknum Kristjánsson og roZrinZ *b3ar?™ttu™n“ Einar Oddur Kjartansson. °8 s>sluma**rinn ólafur Helgi legt að Kristján verði framkvæmdastjóri hins nýja fyrirtækis og er bent á að hann ætli sér annað hlutskipti en nýlega keypti Kristján fyrirtæki á ísafirði sem heitir Olíu- samlag útvegsmanna en það annast olíu- dreifingu til skipa og báta á Isafirði. Þetta telja menn staðfesta að Kristján reikni ekki með því að verða starfsmaður hins nýja fyr- irtækis þótt hann hafi verið meðal hlut- hafa. Guðmundur segir fátt Eins og kannski við má búast hefur Guðmundur verið orðfár við fjölmiðla um þær ráðstafanir sem hann hyggst grípa til og eiga að rétta rekstur Básafells af. Fyrirtækið tapaði um 350 milljónum á fyrstu sex mánuðum reikningsársins sem það telur jafnt fískveiðiárinu og eigið fé þess var komið niður í 20%. Þó sagði Guðmundur í samtali við RÚV að enga sérfræðinga þyrfti til þess að gera betur en nú er gert. Á undanförnum árum hafa miklar upp- stokkanir orðið í vestfirskum sjávarútvegs- fyrirtækjum. Hægt er að rekja talsvert mörg dæmi þess að eigendur hafi losað um hlut sinn í grónum fyrirtækjum. Fyrir tveimur árum var greiddur út hlutur nokk- urra aðila í Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal og áður hefur verið minnst á hluthafa i Gunn- vöru sem eru að draga sig í hlé. Aðalbjörn Jóakimsson seldi Þorbirni í Grindavík sinn hlut í Bakka fyrir nokkrum árum og út- gerðarfyrirtækið Hrönn, sem gerði út Guðbjörgu ÍS, sameinaðist Samheija. Hluti af eignum Bakka, s.s. rækjuverk- smiðjan í Bolungarvík, er nú í eigu Nasco hf. Hér mætti einnig rekja ris og hnig fyrir- tækja í eigu Ketils Helgasonar í Bolungar- vík sem kennd voru við „Rauða herinn“ og eru flest í gjaldþrotameðferð. Einnig mættí rekja úthlutun byggðakvóta og stofhun nýs fyrirtækis á Þingeyri um hann í samvinnu við Burðarás og Vísi í Grinda- vík. Það hefur ekkert lát verið á sviptingum í vest- firskum sjávarútvegi að undanförnu og eðlilegt að líta á eigendaskiptin á Básafelli sem hluta af þeirri þróun sem stöðugt er í gangi. Hver á leggja fé í atvinnulifið? Umtalsvert fjármagn hefur undanfarin ár losnað úr sjávarútvegi á Vestfjörðum og í flestum tíl- vikum runnið til aðila sem flestír eru heimamenn, bú- settir vestra. Enginn þeirra sem hér eru nefndir hefur enn sem komið er séð ástæðu til þess að fjárfesta í vestfirskum sjávarúlvegi. Af þvi mætti draga þá ályktun að ijárfestum í röð- um heimamanna þyki það ekki vænlegur kostur að styrkja atvinnulífið á heimavelli. Af þessum ástæðum finnst mörgum í hópi heimamanna það ekki trúverðugur málflutningur þegar nýir eigendur segjast ætla að byggja fýrirtækin upp á ný á heima- slóðum og spyrja sig hvers vegna þeir skyldu hafa meiri trú á framtíð sjávarút- vegs á Vestfjörðum en heimamenn. Kannski er einfaldasta svarið við þeirri spurningu jafnframt það sem fæstir vilja heyra, nefnilega það að í hópi heimamanna eru vandfundnir þeir sem eru í stakk bún- ir tíl að reka fyrirtæki í takt við kröfur nú- timans. 31] 38

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.