Frjáls verslun - 01.07.1999, Blaðsíða 61
Strætísvagna Reykjavíkur, fjöldauppsagnir ým-
issa fyrirtækja og fleira og fleira.
Við þetta má bæta nýjum fréttum af útgerð
hjólabáta í Vík í Mýrdal þar sem menn greinir
verulega á um hvort farþegar hafi verið í hættu
þegar vél báts bilaði. Hvað sem öðru líður má
fullyrða að ímynd þess fyrirtækis hefur beðið
verulegan hnekki enda hefur eigandinn sagst
vera hættur starfseminni og hefur talað um op-
inbera aftöku í þessu sambandi.
Áfallahjálp Atli Rúnar á að baki 19 ára starfs-
feril við fréttamennsku og tjögurra ára feril sem
starfsmaður almannatengslafyrirtækis. Hann
segir það nokkrum sinnum hafa orðið sitt hlut-
skipti að veita fyrirtækjum nokkurs konar
„áfallahjálp" af einu eða öðru tagi.
„Eg hef reyndar sérstakan áhuga á málum af
þessu tagi í seinni tíð og meðan ég dvaldi í
Bandaríkjunum síðastliðinn vetur fylgdist ég
hvað best með fréttum af áföllum af ýmsu tagi.
Eg reyndi að „lesa í“ opinber viðbrögð þeirra
sem fyrir áfallinu urðu og fylgjast með því
hvernig íjölmiðlarnir tóku á málinu og hvaða
afleiðingar áfallið hafði fyrir ímynd viðkomandi
fyrirtækis og starfsemi."
Það gerist æ oftar að fyrirtæki leití aðstoðar
Athygli tíl að bregðast við vandamálum af ýmsu
tagi. Atli Rúnar segir að eríiðasta áfallamálið
sem hann hafi komið nálægt sé tvímælalaust
mannskaðaslysið þegar Dísarfell fórst í mars
1997. Hann hafði áður unnið mikið fyrir Sam-
skip og þekkti vel fyrirtækið og stjórnendur
þess. Samskip ræstu Atla Rúnar út strax morg-
uninn eftir slysið tíl að annast fjölmiðlatengsl
fyrirtækisins og vera stjórnendum þess innan
handar um upplýsingamiðlunina út á við. Hann
var þannig fyrstu klukkustundirnar í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar og sendi fyrstu tilkynn-
ingarnar til Ijölmiðla þaðan í samráði við yfir-
menn Samskipa og Landhelgisgæslunnar.
Hvað er míkilvægt og hvað ekki? Þegar flett
er upp í því sem skrifað hefur verið um krísu-
stjórnun af því tagi sem beita þurfti í máli Ás-
mundarstaðabúsins standa fá en skýr atriði upp
úr.
1. Segja þarf allan sannleikann strax. Því meira
sem dregið er undan, því meiri líkur eru á
að fjölmiðlar komist á snoðir um það og
leggi í rúst trúverðugleika fyrirtækisins.
2. Það skiptír miklu máli að vera fljótur tíl og
stundum er betra að fyrirtækið hafi frum-
kvæði að því að skýra frá því sem aflaga fer.
Þarna er einnig mikilvægt að skýra ffá öll-
um atriðum málsins strax og draga þannig
úr líftíma þess í opinberri umræðu.
Atli Rúnar Halldórsson (t. v.) og Valþór Hlöðversson eiga og reka fjöhniðla- og kynning-
arfyrirtækið Athygli. Það kom í hlut Atla að ráðleggja Ásmundarstaðabœndum um rétt
viðbrögð í miðri orrahríðinni.
3. Þegar um er að ræða viðkvæma
neysluvöru, eins og kjúklinga, sem
getur haft áhrif á heilsu fólks, er
mikilvægt að neytendur séu fullviss-
aðir um að gripið sé tíl endurbóta og
eftirlit hert. Þannig getur verið
mögulegt að endurreisa ímynd fyrir-
tækisins. U]
61