Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Qupperneq 22

Frjáls verslun - 01.07.1999, Qupperneq 22
Davíð Oddsson forsœtisráðherra. Engum dylst að Davíð hefur tekið þetta mál í sínar hendur. hafi ekki verið búin að samþykkja formlega söluna, en það gerði hún fimmtudagskvöldið 12. ágúst, og því hafi hópurinn ekki viljað gefa sig upp íyrr; beðið hafi verið eftir formlegu samþykki selj- anda. Raunar var Guðmundur Hauksson, stjórnarformaður Scandinavian Holding og Kaupþings, spurður að því á umræddum stjórnarfundi hvort ekki væri örugglega verið að taka hæsta til- boði og fullyrti hann að svo væri. Innan sparisjóðanna er það orð- að þannig að um kjaftagang sé að ræða úr FBA að munnlegt tilboð hafi borist frá hópi Sigurðar Gísla upp á 2,82, fimmtudaginn 29. júlí og að það hafi verið hærra en Orcunnar SA En eins og fyrr seg- ir þá stangast heimildir hér á og ágreiningurinn í málinu er raun- ar um það hvort þetta tilboð hafi borist eða ekki. Reiði DavíðS Eðlilega hafa menn velt vöngum yfir því hvers vegna forsætisráðherra, Davíð Oddsson, er svo heiftarlega reiður út í Kaupþing og sparisjóðina vegna sölunnar á hlut Scandinavian Holding til Orcunnar SA Það er trúlega algert einsdæmi að for- sætisráðherra fari slíkum hamförum gegn einu fyrirtæki vegna hlutabréfaviðskipta á frjálsum markaði, sem hann hefur gert gagnvart Kaupþingi að undanförnu. Hvers vegna er hann svo æva- reiður vegna málsins? Varla dylst nokkrum að þar vegur þyngst aðkoma Jóns Ólafssonar í Skifunni að Orcunni SA Sumir orða það þó þannig að Jón Ólafsson sé fremur kornið sem fyllti mælinn hjá Davið. Áhugi sparisjóðanna á FBA hefur ætíð verið mikill og áður en til útboðsins á 49% hlut ríkisins í bankanum í fyrra kom höfðu sparisjóðirnir rætt við stjórnvöld um að fá að kaupa bank- ann og viðrað mun lægri fjárhæðir en þeir greiddu síðan fyrir hann í kennitölustríðinu. Fullyrt er að kennitölustríðið, þar sem Kaupþing og Búnaðarbankinn verðbréf (í eigu ríkisins) voru at- kvæðamest, hafi farið mjög fyrir brjóstið á Davíð sem, eins og rik- isstjórnin, hefur lagt á það áherslu að FBA væri í eigu margra, að eignaraðild væri mjög dreifð. Erfitt er hins vegar að sjá hvað var að því kennitölustríði og telja verður hæpið af stjórnvöldum að streitast á móti og hafa horn í síðu þeirra frjálsu markaðsafla sem þar voru að verki! Ennfremur telur Davíð það ekki viðeigandi hjá Kaupþingi að skýra ekki kennitöluumbjóðendum sínum og öðr- um viðskiptavinum frá því markmiði að kaupin væru frá fyrstu tíð liður í þeirri hernaðaráætfun sparisjóðanna að ná yfirhöndinni í FBA og sameina bankann við Kaupþing síðar. I fréttum hefur Dav- íð sagt að ekkert væri i sjálfu sér athugavert við kennitölusöfnun ef fyrirtæki væru með þeim hætti að styrkja eigin sjóði fyrir opn- um tjöldum. Segja má að eftir að hlutur Búnaðarbankans verð- bréfa í FBA var seldur til sparisjóðanna tiltölulega fljótt eftir útboð- ið í FBA hafi þetta markmið í raun blasað við þótt það hafi aldrei verið tilkynnt opinberlega. Sala þeirra á hlut Scandinavian Hold- ing í FBAtil Orcunnar SA, Jóns Ólafssonar og félaga, með þeirri leikfléttu sem hér hefur verið útskýrð að framan, var hins vegar dropinn sem fyllti mælinn hjá Davíð og kom skriðu hans af stað gegn Kaupþingi. Davíð lítur á að salan til Orcunnar SA hafi allt að því eyðilagt bréf ríkisins í bankanum nema til björgunaraðgerða komi — og að mjög erfitt verði að selja afganginn í dreifðri eignaraðild þegar svo stór hluthafi er kominn til sögunnar, og hvað þá þegar hann heitir Jón Ólafsson og sem hefúr það orðspor á sér í viðskiptum sem löngu er þekkt — hvort sem það orðspor er að ósekju eða ekki. Menn bíða framhaldsins og þess hvort Davíð geti þakkað fyrir að fá tilboð í hlut ríkisins í bankanum — úr því sem komið er. Hllltur ríkísins eyðilagður? í fréttatíma Stöðvar 2 föstudags- kvöldið 27. ágúst sl. var Davíð spurður að því hveijir hefðu eyðilagt stefnu ríkisstjórnarinnar um dreifða eignaraðild: „Eg held þvi fram — og hef sagt það áður — að sú (kennnitölu) söfnun sem þarna átti sér stað og sú tilraun til að selja einum aðila öll þessi bréf frá spari- sjóðunum gekk þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar. Fram hjá því verður ekki gengið; það liggur fyrir.“ Og skömmu síðar í viðtalinu um það hvort hann hafi vitað af þreifingum Kaupþings við hóp Sig- urðar Gísla Pálmasonar: „Ég vissi ekki af þeim þreifingum. Hins vegar er það ekkert launungarmál að fjölcli manns hefur iðulega komið að máli við mig um það að þeir hefðu áhuga á að kaupa bréf í Fjárfestingarbankanum, því ég hef litið þannig á að það væru menn sem væru að undirbúa sig undir að kaupa þegar ríkið myndi selja. En þá áttu menn auðvitað ekki von á því að það væri búið að eyðileggja bréfin fyrir ríkinu að stærstum hluta. Auðvitað verður það ekki gert núna því ríkið mun bregðast við,“ sagði Davíð. Hreinn Loftsson Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingar- nefndar, sagði þetta um kennitölusöfhunina í sama fréttatíma: „Það er ekkert óeðlilegt við það þótt einhveijir aðilar, eins og þess- ir sjóðir, auglýsi eftir að fá að kaupa bréf af almenningi inn í sín söfn. Þegar horft er til þess gengis sem var á bréfunum á þessum tíma var það ekkert óeðlilegt miðað við það að um eðlilega söfnun væri að ræða inn í þessa sjóði. Síðan fór af stað þróun, sem enginn gerði sér grein fyrir að færi af stað með þeim hætti sem raunin var, þ.e. Kaupþing fór að safna í þessu skyni — og kaupa og sprengja upp verð bréfanna sem eingöngu getur skýrst af því að það standa fyrir dyrum áform um að sameina bankann Kaupþingi, þ.e. ná til sín ráðandi hlut í bankanum.“ Svar Kaupþings við ásökunum forsætisráðherra um óeðlilega viðskiptahætti í kennitölustríðinu var að óska eftir opinberri rann- sókn hjá Fjármálaeftirlitinu og hvort óeðlilega hefði verið staðið að málum. Telja verður þessa leið hjá Kaupþingi afar eðlilega en Fjármálaeftirlitið hyggst jafnvel láta rannsóknina ná til fleiri verð- bréfafyrirtækja. 22
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.