Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 60

Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 60
Kjúklitigabúið á Ásmundarstöðum hefur verið í sviðsljósinu í allt sumar vegna svartrar skýrslu frá heilbrigðisyfirvöldum. svona af lífi án dóms og laga fyrir opnum tjöldum. Stundum hafa fyrirtæki samband við okkur til að fá aðstoð við að bregðast við slæmum tíðindum sem vitað er hver eru og hvenær verða opinber. Þá er hægt að undirbúa kynningar- og upplýsingahlið málanna en í kjúklingamálinu reið hol- skeflan fyrirvaralaust yfir Reykjagarð. Ég þekkti engan starfs- mann Reykjagarðs íyrir og hafði aldrei komið nálægt þessu fyrirtæki áður, nema auðvitað borðað íramleiðslu þess, Holtakjúklingana, margsinnis. Ég byrjaði því á því að kynnast fólkinu og því sem það er að fást við og það kynntist mér.“ Orð eru dýr Atli Rúnar segir afar mikilvægt að forsvars- menn fyrirtækja séu varkárir orðum fyrst eftir að áfall dynur yfir. Menn geti eðlilega verið í miklu uppnámi eftir t.d. alvar- legt slys sem varðar viðkomandi fyrirtæki eða reiðir og svekktir vegna ásak- ana sem að þeim og rekstri þeirra beinast. Orð á opinberum vettvangi geti verið ansi afdrifarík á slíkum stundum og auðvelt að gera slæma stöðu enn verri með ógætilegu orðavali. „Ég hef oft rekið mig á að aðeins það að fá að ræða við einhvern utanaðkomandi er mikils virði stjórnendum fyrirtækja sem verða fyrir áföllum. Margir þeirra hafa aldrei staðið framan við sjónvarpsvél og kvíða því að þurfa að svara spurningum fjölmiðla. Þá er mikilvægt að undirbúa við- komandi sem best, draga saman kjarna máls þess sem á að koma á framfæri og setja hann fram á skýran hátt. Um leið og menn vita nokkurn veginn hvað þeir ætia að segja og hvernig þeir ætla að haga orð- um sínum eykst sjálfstraustið og þeir af- greiða fjölmiðlaviðtölin auðveldlega!" Högg á atvinnugreinina En var ekki ver- ið að draga athyglina að boðbera hinna illu tíðinda? Var ekki allan tímann aðalatriði kjúklingamálsins að sýnin frá búinu voru ekki í lagi? „Ég ráðlegg engum sem lendir í áfalli að vísa frá sér ábyrgð og tilnefna einhverja aðra sem „sökudólga“, nema sannanir um slíkt liggi fyrir. Það nægir að lesa yfirlýs- ingu Reykjagarðs sem birt var einum sól- arhring eftir fyrstu fréttirnar um skýrslu heilbrigðisfulltrúanna að fyrirtækið tók málið alvarlega frá fyrstu stundu. Sama má segja um hagsmunasamtök kjúklingafram- leiðenda enda varð heil atvinnugrein í raun fyrir högginu en ekki bara eitt fyrirtæki. Þannig sögðu kaupmenn mér að sumir við- skiptavinir, sem á annað borð hikuðu við að kaupa kjúkling þegar fárið var í há- punkti, hafi lítt velt fyrir sér vörumerkjunum heldur fremur vörunni sjálfri. Eins og við mátti búast létu við- brögð markaðarins ekki á sér standa því það dró verulega úr sölu kjúklinga, einkum í til- teknum matvörumörkuð- um á höfuðborgarsvæð- inu. Það verður að gera ráð fyrir að langan tíma taki fyrir fyrirtæki sem í svona hremmingum lendir að ná fyrri stöðu og ímynd á markaði. Reykjagarðsmenn hafa farið í gegnum alla sína starfsemi og vinnslu- ferli og kallað til sér- fræðinga til ráðgjafar um hvernig gott innra heilbrigðiseftiriit með framleiðslunni geti orðið enn betra. Þessu þarf svo að koma til skila til neytenda til að vinna traust þeirra á ný.“ Mörg áföll undanfarin ár Þegar rætt er um fyrirtæki sem verða fyrir áföllum má ritja upp ýmis mál sem dregið hafa fyrir- tæki, samtök eða fólk fram fyrir augu al- mennings undir neikvæðum formerkjum. Nefna mætti salmonellumengun hjá Sam- sölubakaríum í rjómabollum fyrir rúmum þremur árum. Það má nefna biskupsmál þjóðkirkjunnar, deilurnar í Langholts- kirkju, uppnám vegna nýs leiðakerfis 60

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.