Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Blaðsíða 64

Frjáls verslun - 01.07.1999, Blaðsíða 64
FJÁRMÁL Hvenær? í samsvarandi reglugerð segir að starfsþáttur teljist hafa veruleg áhrif ef tekjur af honum nema a.m.k. 10% af heildar- tekjum, eða hagnaður af starfsþætti nemur a.m.k. 10% af heildarhagnaði fyrirtækis, eða eignir starfsþáttar nema a.m.k. 10% af heildareignum fyrirtækis. Nafngreina viðskiptavin Að auki er það krafa frá Verðbréfaeftirlitinu (SEC) í Bandaríkj- unum að nafngreina skuli viðskiptavin í ársreikningi fyrirtækis ef hann er ábyrgur fyrir meira en 10% af heildartekjum. Þegar um deildaskiptan rekstur er að ræða, þarf að finna skyn- samlega leið til þess að skipta annars vegar rekstrartekjum og rekstrargjöldum á einstakar deildir og hins vegar að skipta lang- tímaijármagni, þ.e. eigin fé og langtímaskuldum, á sömu deildir. Nú er nánast útilokað að skipta langtímafjármagni á einstakar deildir, enda iðulega ekki vitað hvort tiltekið lán rann til starfsemi deildar A eða B. En sannleikurinn er sá að slík skipting fjármagns er ekki aðeins ógerleg, heldur einnig óþarfi, því nýta má bókhalds- jöfnuna (eignir eru jafnháar skuldum og eigin fé) í þessu skyni og umstafla henni lítilega til að sjá að langvinnt fjármagn er sama stærðin og eignir í rekstri, sbr. eftirfarandi (hreint veltufé er mis- munur veltufjármuna og skammtímaskulda); Langtímaíjármagn = Eignir í rekstri Eigið fé + langtímaskuldir = Fastafjármunir + hreint veltufé Sá sem vill því fylgjast með rekstri einstakra deilda stendur nú frammi fyrir tveimur verkefnum. Annað er að skipta rekstrartekj- um og rekstrargjöldum á einstakar deildir. I því sambandi vakna alls kyns skiptingarvandamál, aðallega um kostnað, en þau má flest leysa. Bandariskar reglur um upplýsingakröfur um einstaka starfsþætti gera raunar ekki ráð fyrir að öllum kostnaði sé skipt, t.d. þarf ekki að skipta öllum sameiginlegum kostnaði. Hitt verk- ROI-kvarðinn Sú aðferð að fylgjast með arðsemi þess fjármagns sem bundið er í hinum ýmsu deildum fyrirtækja, þ.e. ROI-kvarðinn, er enn notuð í stórum stíl, þó að ýmsar aðrar aðferðir hafi komið til sögunnar. Verðmæti fyrirtækja í yfirliti um sjóðstreymi er samkvæmt nýjum reglum um gerð þess yfirlits að finna upplýsingar um sjóðsframiag rekstrar án vaxta og skatta. Þá fjárhæð má með einföldum hætti nota til þess að bregða grófu máli á verðmæti fyrirtækja, án þess að því máli séu gerð frekari skil hér. Árangur deilda Þá geta deildaskipt fyrirtæki einnig beitt þessari aðferð, án þess að upplýsingar um árangur deilda birtist í ársreikningi, heldur fremur til leiðbeiningar fyrir stjórnendur fyrirtækja. efnið er að skipta eignum í rekstri, þ.e. fastaíjármunum og hreinu veltufé, á einstakar deildir. Hið sama á við það verkefni; sumar eignir er einfalt að færa á einstakar deildir en öðrum er erfitt að skipta, en þó er það ekki óyfirstíganlegt vandamál. T.d. gæti ver- ið nokkrum erfiðleikum bundið að skipta viðskiptakröfum og við- skiptaskuldum á einstakar deildir — en skynsamlegan skiptigrundvöll má þó í ílestum tilvikum finna. Hér á eftir íylgir sundurgreining rekstrarhagnaðar og eigna í rekstri eftir deildum, sem getur verið afar fróðleg viðbót við heildartölur, eins og þær birtast í ársreikningi: Rekstrarreikningur 19x1 Samtals Deild A DeildB DeildC Rekstrartekjur 20.000 ... 10.000 ... 6.000 .. ... 4.000 Rekstrargjöld -18.000 .... -8.000 .. -6.500 . ... -3.500 Rekstrarhagnaður. 2.000 2.000 -500 . ... 500 Vextir af langtímalánum.. -1.000 Hagnaður fyrir skatta 1.000 Skattar -300 Hagnaður ársins 700 Efnahagsreikningur í ársbyrjun Samtals Deild A Deild B Deild C Fastafjármunir.......... 9.000 5.000 .... 2000 .... 2000 Hreint veltufé.......... 4.000 1.500 .... 500 .... 2000 13.000 ... 6.500 ... 2.500 ... 4.000 Eigiðfé................ 5.000 Langtímaskuldir........ 8.000 13.000 Arðsemi deilda................... 30,8% ... -20,0% .... 12,5% Skýringardæmið sýnir að deild B er rekin með neikvæðri arð- semi, deild C með sömu arðsemi og greitt er af langtímalánum en deild A með helmingi hærri arðsemi en reksturinn skilar í heild. Slík greining rekstrar gæti komið lesendum reikningsskila að verulegu gagni þegar um margskiptan rekstur er að ræða. Þá geta deildaskipt íýrirtæki einnig beitt þessari aðferð, án þess að upplýs- ingar um árangur deilda birtist í ársreikningi, heldur fremur til leiðbeiningar fyrir stjórnendur fyrirtækja. Loks má nefna að í yfir- liti um sjóðstreymi er samkvæmt nýjum reglum um gerð þess yf- irlits að finna upplýsingar um sjóðsframlag rekstrar án vaxta og skatta. Þá Ijárhæð má með einföldum hætti nota tíl þess að bregða grófu máli á verðmæti fyrirtækja, án þess að því máli séu gerð frekari skil hér. Útgerð og fiskvinnsla Eitt er það sem gerir ofangreinda útreikn- inga einkar áhugaverða fyrir íslensk fyrirtæki en það er að tölur í íslenskum ársreikningum hafa verið færðar til sama verðlags. Það þýðir að útreikningar á arðsemi endurspegla raunarðsemi fremur en nafnverðsarðsemi, eins og á við hjá erlendum fyrirtækjum. Flest fyrirtæki ættu að geta nýtt sér þessa einföldu greiningu á rekstri, enda á hún víðast hvar við. Vafalaust er t.d. að fyrirtæki í útgerð og fiskvinnslu ættu að fylgjast með rekstri sínum á þennan hátt og skýra frá í ársreikningi. Hið sama gildir um fyrirtæki sem að hluta til eru í samkeppnisrekstri og að hluta til í einkaréttarleg- um rekstri, en Landssíminn hf. er ágætt dæmi þar um. SD 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.