Frjáls verslun - 01.07.1999, Qupperneq 12
I
Héraðshöfðingi Vesturlands, Flosi Ólafsson, leikari ogstór-
bóndi í Borgarfirði, les afmœlisbarninu pistilinn.
Þessir þremenningar tókust oft hraustlega á hér fyrr á árum. Haraldur og
„Bíurnar“ á Akranesi, þær Herdís Ólafsdóttir og Bjarnfríður Leósdóttir,
verkalýðsleiðtogar til margra ára. Myndin segir allt um gagnkvœman vinskap
— enda segir Haraldur að þessar konur hafi gert sig að manni.
Sjávarútvegsráðherra, Arni
Mathiesen, hvatti lið sjávarútvegsins
afmiklu kapþi.
Ofir fimm hundruð manns
mættu í fimmtugsafmæli
Haraldar Sturlaugssonar,
forstjóra HB á Akranesi, á
afmælisdegi hans, hinn 24. júlí sl.
Haraldur hefur um áraraðir verið
einn kunnasti maður íslensks
athafnalífs. Veislan var haldin í 450
fermetra veislutjaldi sem reist var
í garðinum utan við heimili hans.
Afmælisdaginn bar upp á laugar-
dag og brá Haraldur á það ráð að
halda veisluna að degi til. Hún
hófst á hádegi og stóð fram eftir
degi. Stórvinur Haraldar og raf-
virkjameistari hjá HB, Sigursteinn
Hákonarson, (Steini í hljóm-
sveitinni Dúmbó og Steini), var
veislustjóri. Haraldur var kunnur
knattspyrnumaður með Skaga-
mönnum á árum áður og lands-
liðsmaður í íþróttinni. 33
Grillkeppni var haldin á milli sjávarútvegs og
landbúnaðar undir öruggri stjórn Sigga Hall. „It’s a man’s
job,“ segir Siggi hér við Isólf Gylfa Pálmason
alþingismann, lengst til vinstri, en samherji hans, Guðni
Agústsson landbúnaðarráðherra, glottir við tönn. Lið
sjávarútvegsins, Kristján Ragnarsson, formaður LIU, og
Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater í Bandaríkjunum,
fylgist með.
Fjölmenni hjá Haraldi
12