Frjáls verslun - 01.07.1999, Síða 21
FORSÍDUGREIN
milli Bjarna og Sigurðar Einarssonar, enda valdabarátta á milli
þeirra félaga.
Kaupsamningurinn hefur ekki verið gerður opinber og hefur
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Spron og stjórnarformað-
ur Scandinavian Holding, sagt í Ijölrniðlum að samningurinn sé
trúnaðarmál sem sé algengt í viðskiptum sem þessum. Fullyrt er
að ekki sé um málamyndarsamning að ræða, þ.e. leppun, heldur
sé búið að selja bréfin og að engin klásúla finnist um endurkaupa-
rétt Scandinavian Holding. Hins vegar sé samkomulag um að
vinna með Orcunni SA að myndun nýs meirihluta í FBA nái
sparisjóðirnir að kaupa stóran hluta til viðbótar af afgangnum, 51%
hlut rikisins, og sameina FBA og Kaupþing undir forystu Kaup-
þings, Sigurðar Einarssonar.
Lærdómsríkl Málið í heild er nokkuð lærdómsríkt fyrir íslensk-
an verðbréfamarkað. Sérstaklega er athyglisvert að Verðbréfa-
þingið hafi komið fram á sjónarsviðið og sagt að flöggunin 3. agúst
væri ófullnægjandi og gert kröfu um að eigendur Orcunnar SA
kæmu fram á sjónarsviðið. Til að undirstrika alvöruna í kröfu
sinni um að eigendurnir sýndu sig lokaði Verðbréfaþingið fýrir
viðskipti í FBA í heilan dag. En samt gerðist ekki neitt. Krafan var
hundsuð. Spyrja má sig að því hvort það sýni
ekki mikla vanvirðingu í garð Verðbréfa-
þingsins að hundsa kröfu þingsins um að eig-
endur Orcunnar SA kæmu fram — en Verð-
bréfaþingið reynir að reka skipulagaðan
verðbréfamarkað hér á landi. Menn spyija
ennfremur sem svo: Gæti þetta gerst á öðr-
um hlutabréfamörkuðum í nágrannaríkjum
okkar sem menn bera sig jafnan við? Og
skipta þessar upplýsingar máli? Hvers vegna
er þingið að biðja um þær? Því er til að svara
að það er grundvallaratriði í verðbréfavið-
skiptum að þess sé jafnan gætt að jafnræði sé
á þinginu á milli allra sem þar eiga viðskipti
— en í þessu tilviki vissi einn aðili þingsins,
seljandi bréfanna, hverjir væru hinir raun-
verulegu kaupendur á meðan aðrir þingaðil-
ar höfðu ekki þá vitneskju. Ennfremur hefur
verið bent á að viðskiptin hafi átt sér stað
tveimur dögum áður en sex mánaða milli-
uppgjör FBA var birt fimmtudaginn 5. ágúst
og að það sé spurning um prinsipp að selja
svona rétt fýrir milliuppgjör. Markaðurinn
vissi um þriggja mánaða uppgjörið og ætla
verði að fulltrúar Kaupþings í stjórn FBA
Sigurður Einarsson og Guðmundur Hauks-
son, hafi hinn 3. ágúst vitað meira um gang
mála hjá fyrirtækinu en markaðurinn —
hvort sem þeir vissu um sex mánaða upp-
gjörið eða ekki. Fleiri spurningar vakna. Var
það skynsamlegt af forstjóra Kaupþings og
sparisjóðsstjóra Spron, tveggja fyrirtækja í
harðri samkeppni við FBA, að setjast í stjórn
FBA á sínum tíma? Hefði ekki verið trúverð-
ugra — þótt ekki væri nema til málamynda
— að þeir settu fulltrúa sína í stjórn fyrirtæk-
isins og fengju nauðsynlegar upplýsingar úr
FBA ffá þeim? Svona spurningar hafa vakn-
að. Og sitt sýnist hveijum! Því má svo bæta við að á hluthafafund-
inum á Grand Hótel Reykjavíkur sl. þriðjudag, 31. ágúst, gengu
þeir Sigurður Einarsson og Guðmundur Hauksson út úr stjórn-
inni. Og öllum að óvörum voru fulltrúar Orcunnar, þeir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og Jón Ingvarsson, stjórnar-
maður í SH, kjörnir.
Eyjólfur seint í hópinn Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvernig hóp-
ur eins og Orcan SA hafi orðið til — enda á ferðinni menn sem
allir eru þekktir fyrir að vilja stjórna og ráða og eru aukin heldur
að fara inn í viðskiptageira sem þeir þekkja ekki. Það er samdóma
álit allra að Kaupþing hafi búið þennan hóp til sem og að FBA hafi
formað hópinn utan um Sigurð Gísla. Þetta séu einfaldlega vinnu-
brögðin á þessum markaði. Hins vegar er vitað til þess að þeim
Jóni Asgeiri og Jóni Ólafssyni hafi verið orðið vel til vina fýrir
nokkru. Meðal annars er fullyrt að Jón Ásgeir sé kominn inn í
Arnarneslandið með Jóni Ólafssyni. Þá má geta þess að Kaupþing
mun annast hlutfjárútboð Norðurljósa, lýrirtækis Jóns Ólafssonar
og Sigurjóns Sighvatssonar. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, hefur til þessa hvorki tengst Jónunum tveimur né
Eyjólfi Sveinssyni, Frjálsri fjölmiðlun. Þorsteinn Már hefur frekar
tengst fýrrum Sambandsfyrirtækjum og sit-
ur í stjórn Samskipa og Olís. Rætt er um að
Kaupþing hafi haft samband við Þorstein Má
snemma í ferlinu og hann hafi verið einn
þeirra sem var á óskalistanum í upphafi þeg-
ar leitað var að hugsanlegum kaupendum að
hlut Scandinavian Holding í FBA Sagt er að
ýmsir hafi reynt að telja Þorstein Má ofan af
þvi að vera með í Orcunni en það ekki tekist.
Fullyrt er hins vegar að Eyjólfur Sveinsson,
framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar,
sem rekur DV og Dag, hafi komið inn í
þennan hóp á allra síðustu metrunum —
jaínvel ekki fyrr en 12. ágúst, eða sólarhringi
áður en fjórmenningarnir, sem standa að
Orcunni SA, héldu blaðamannafund og
upplýstu um það hverjir stæðu að félaginu.
Raunar er það athyglisvert að bæði Jón Ás-
geir og Þorsteinn Már neituðu því í fýrstu í
fjölmiðlum að þeir væru í hópnum eftir að
fréttir um það spurðust út. Á vissan hátt hef-
ur það vakið athygli að þeir DV-fegðar,
Eyjólfur og faðir hans, Sveinn R. Eyjólfsson,
komi þarna inn og hefji samstarf við Jón
Ólafsson því vitað er að þeir lögðu mikið á
sig til að losna við Jón út úr Fijálsri ijölmiðl-
un. En íslenska útvarpsfélagið, Jón, keypti
sig þar inn í kjölfar þess að DV-feðgarnir
höfðu keypt Hörð Einarsson, sem stoíhaði
DV í lok ársins 1981 ásamt Sveini R. Eyjólfs-
syni, út úr DV. Þá má skjóta þvi hér inn að
Eyjólfur var áður aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar. Ef þessar fullyrðingar eru réttar
var Orcu-hópurinn ekki fullmótaður þriðju-
daginn 3. ágúst þegar Orcan S.A. keypti hlut-
inn í FBA—enn var verið að leita að hluthöf-
um. Rök Orcu-hópsins hafa á hinn bóginn
verið þau að stjórn Scandinavian Holding
Kári Stefánsson, Islenskri erfðagrein-
ingu.
Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarfor-
maður Hojs.
21