Frjáls verslun - 01.07.1999, Side 24
ORÐID HEFUR:
Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfastolunnar
Eignarhald útlendinga
Takmörkun á eignarhaldi útlend-
inga í sjávarútvegsfyrirtækjum
verdur aö linna. Þaö er verðugt
verkefni stjórnvalda að leggja
fram lagafrumvarp um þetta efni
við fyrsta tækifæri.
/
Jafet Olajsson, framkvœmdastjóri Verðbréfastofunn-
ar, er að þessu sinni gestapenni Frjálsrar verslunar
um verðbréfamarkaðinn.
Hann ræðirm.a. um FBA-málið!
Hlutabréfavilnun
Ég spái því að við eigum eftir að
sjá það færast í vöxt að íslensk
fyrirtæki fjárfesti í eigin hlutabréf-
um á markaðnum til að gefa
starfsfólki sínu kost á því að kaupa
þessi bréf.
Á móti takmörkunum
Fulltrúar verðbréfafyrirtækja eru
hins vegar undantekningarlaust á
móti takmörkunum á eignarhaldi.
Það var í sjálfu sér ekkert tilefni til
að gera veður út af sölu FBA hluta-
bréfanna, fram hefur komið að allt
að átta aðilar séu kaupendur að
þeim 26% hlut sem seldur var.
Það er dreifð eignaraðild.
□ að vekur að sjálfsögðu mikla at-
hygli þegar forsætisráðherra tjáir
sig um einstök mál er varða hluta-
bréfamarkaðinn á Islandi. Það gerði hann
nýlega og tilefniö var sala á hlutabréfum í
FBA. Mér fannst forsætisráðherra gera of
mikið mál úr þessari sölu hlutabréfa í FBA.
Ummæli hans geta haft mikil áhrif á þróun
verðbréfamarkaðar bæði til hækkunar og
lækkunar. Hann verður því að tjá sig af
gætni og fagmennsku.
Ríkisstjórnin lýsti því yfir í útboðslýs-
ingu á FBA að stefnt væri að því að selja
hlut ríkissjóðs í FBA „fyrir mitt ár 1999 ef
aðstæður leyfa. Við þá sölu verður áfram
steíht að dreifðri eignaraðild og sjálfstæði
FBA“, eins og segir orðrétt í útboðslýsing-
unni.
Forsætisráðherra er því ekki að segja
nýja hluti um æskilega dreifða eignaraðild
og verðbréfamarkaðurinn hefur fullan
skilning á sjónarmiðum hans. Hættan á
samþjöppun eignaraðildar er ætíð fyrir
hendi þar sem fijáls lögmál hlutabréfa-
markaðarins ráða. Þetta átti ríkisstjórnin
að vita og gera viðeigandi ráðstafnir áður
en farið var út í sölu hlutabréfa í FBA
Fulltrúar verðbréfafyrirtækja eru hins
vegar undantekningarlaust á móti tak-
mörkunum á eignarhaldi. Það var í sjálfu
sér ekkert tílefni til að gera veður út af sölu
FBA hlutabréfanna, fram hefur komið að
allt að átta aðilar séu kaupendur að þeim
26% hlut sem seldur var. Það er dreifð eign-
araðild.
Gengi á FBA bréfunum Milliuppgjör
FBA sýndi mjög góða afkomu. Bjarni Ar-
mannsson, forstjóri FBA, og hans lið hafa
skilað góðu starfi. Áhugi fjárfesta á FBA
hlutabréfum hefúr verið mikill og gengi
bréfanna hækkað um rösklega 100% frá út-
boði ríkissjóðs. Eg taldi það styrkleika-
merki fyrir fjárfesta að Sparisjóðirnir og
Kaupþing sæktust eftír hlutabréfum í FBA.
Fyrir þá er bankinn verðmeiri en fyrir ein-
hvern Jón út í bæ vegna hagræðingarinnar
sem hlýst af samruna FBA og Kaupþings,
eins og var yfirlýst markmið þeirra.
Kaup annarra aðila en þeirra, sem eru í
banka og/eða verðbréfastarfsemi, hefði átt
að leiða til lækkunar á gengi hlutabréfa í
FBA, vegna þess að það yfirverð sem fýlg-
ir möguleika á samruna er alla vega horf-
ið. Ef til vill eigum við eftír að sjá þennan
möguleika um samruna FBA og Kaup-
þings koma upp að nýju — jafnvel fyrr en
margan grunar.
Takmörkun á eignarhaldi Forsætisráð-
herra hefur lýst þeirri skoðun sinni að
hugsanlega ætti að takmarka eignarhald
einstakra aðila að fjármálafyrirtækjum. Af
hverju fjármálafyrirtækjum? Hvað með
samgöngufyrirtæki, orkufyrirtæki og
24