Frjáls verslun - 01.07.1999, Side 27
NÆRMYNO
Stjórnar af festu og öryggi
Finnur hefur þótt reka fyrirtækið af festu og öryggi og beitt við það
hljóðlátum og stilltum stjórnunarstíl sem einkennist af
varkárni og stefnufestu. Með því að taka að sér formennsku í nýjum og afar
öflugum samtökum atvinnulífsins er hann óneitanlega að skipta um starfsvettvang
að vissu leyti.
fót til London þar sem hann lærði þjóðhag-
fræði við London School of Economics um
tveggja ára skeið. Sú fræðigrein féll hon-
um vel í geð og flaug hann vestur um haf
og hélt áffam námi við Florida State Uni-
versity. Hann lauk Ph. D. prófi í þjóðhag-
fræði þaðan áriðl984 og var stundakennari
í þjóðhagfræði við sama skóla tvo vetur
með námi.
Starfsferillinn: Finnur fékkst við ýmis
störf eftir að hann kom heim frá námi.
Hann var hagfræðingur Verslunarráðs ís-
lands 1983 til 1987, ritstjóri Vísbendingar
hjá Kaupþingi 1987 til 1990 og stundakenn-
ari við viðskipta- og hagfræðideild HI1987
til 1989. Auk þess að ritstýra Vísbendingu
ritaði hann fastan dálk um efnahagsmál í
News ffom Iceland 1984 til 1989.
Það má segja að þáttaskil hafi orðið á
starfsferli hans 1990 þegar hann tók við
starfi forstjóra Nóa-Síríus sælgætisgerðar-
innar af ífænda sínum Kristni Björnssyni,
sem nú stýrir Skeljungi. Kristinn og Finn-
ur eru bræðrasynir.
Nói-Síríus er tæplega 80 ára gamalt fjöl-
skyldufyrirtæki sem er 85% í eigu afkom-
enda Hallgríms Benediktssonar stórkaup-
manns, afa Finns. Ásamt því að gegna
starfi forstjóra þar hefur Finnur sinnt ýms-
um störfum í viðskiptalífinu, s.s. setið í
stjórn H. Benediktsson hf. frá 1990, í stjórn
Ræsis frá 1992, Áburðarverksmiðju ríksins
1994 til 1997, Útflutningsráðs íslands 1995
til 1998 og Verslunarráðs íslands frá 1995.
Hann hefur verið formaður Háskólaráðs
Viðskiptaháskólans í Reykjavík frá stofnun
hans í fyrra. Hann mun áfram gegna starfi
forstjóra Nóa-Síríus þótt hann taki að sér
formennsku hinna nýju samtaka.
Fjölskyldan: Sambýliskona Finns er
Steinunn Kristín Þorvaldsdóttir mennta-
skólakennari, f. 1953. Steinunn er dóttir
Þorvalds Agústssonar, féhirðis við emb-
ætti ríkisféhirðis, og konu hans, Elínar
Dungal.
Hann hefur ekki verid
árum.
Finnur og Steinunn búa við Strýtusel í
Breiðholti ásamt þremur börnum sínum,
þeim Elísabetu, Kára og Geir.
I tómstundum sínum er Finnur heima-
kær, sumir segja allt að því værukær. Þau
hjónin stunda bæði líkamsrækt og Finnur
er í ágætu formi. Hann stundaði mikið
körfubolta á sínum yngri árum og keppti
með meistaraflokki IR. Hann lagði körfu-
boltann á hilluna upp úr tvítugu, spilaði
talsvert tennis á námsárum sínum í Amer-
íku en í dag lætur hann duga að mæta í
World Class.
Vinirnir: Finnur er hluti af stórri fjöl-
skyldu sem er samheldin og margir vina
Finns eru jafnframt frændur hans. Hall-
grímur, bróðir hans, er lítið eldri og einnig
mætti nefna Kristinn Björnsson í Skelj-
ungi, Benedikt Jóhannesson í Talnakönn-
un ogfleiri.
Finnur er félagi í 7 manna klúbbi sem á
það sameiginlegt að hafa numið við LSE,
London School og Economics, og er kall-
aður LSE Luncheon Society og hiltist
vikulega á Oðinsvé yfir veturinn. Þarna
eru auk Finns, Ólafur Harðarson, dósent
við HI, Ólafur Isleifsson, ffamkvæmda-
stjóri alþjóðasviðs Seðlabanka, Yngvi Örn
Kristinsson, framkvæmdastjóri peninga-
sviðs Seðlabanka, Sigurður Snævarr, hag-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, Albert
Jónsson, deildarstjóri í forsætisráðuneyt-
inu, og Gunnar Helgi Kiistinsson, prófess-
or við HÍ.
Ætla má að í þessum hópi séu þjóðfé-
lagsmál og efnahagsmál oft krufin til
mergjar og í þessu félagi hefúr Finnur þá
sérstöðu að vera sá eini sem er ekki opin-
ber starfsmaður.
Hvert ætlar Finnur? Finnur hefur þótt
reka fyrirtækið af festu og öryggi og beitt
við það hljóðlátum og stilltum stjórnunar-
stíl sem einkennist af varkárni og stefnu-
festu. Með því að taka að sér formennsku í
nýjum og afar öflugum samtökum atvinnu-
lífsins er hann óneitanlega að skipta um
starfsvettvang að vissu leyti.
Stjórnun samtaka reynir á allt aðra
þætti stjórnunar en stjórnun fyrirtækis.
Formaður samtaka sem mikið eru í sviðs-
ljósi ljölmiðla og vitund almennings þarf að
beita aðferðum sem þekktar eru úr heimi
stjórnmála til þess að sætta ólík sjónarmið
og halda samtökunum saman sem einni
sterkri heild.
Þannig má segja að þetta sé hápólitískt
starf. Þótt Vinnuveitendasambandið sé
stærstí aðili hinna nýju samtaka og sam-
staða þess við LÍÚ sé trygg hefur löngum
verið lítið samstarf milli VSÍ og Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna. Þar er að
að finna andstæð öfl sem nýr formaður
þarf að sætta.
Það fer því ekki hjá þvi að menn velti
vöngum yfir því hvort þessi vistaskipti séu
vísbending um aukinn áhuga Finns á þátt-
töku í stjórnmálum. Benda má á að hann
er hluti stórrar ættar sem hefúr umtals-
verð ítök innan Sjálfstæðisflokksins. Faðir
hans, Geir Hallgrímsson, var foringi
flokksins og svipmikill stjórnmálamaður á
sínum tíma og Finnur hefur menntun og
reynslu sem mörgum hefúr reynst hald-
gott veganesti í stjórnmálum.
Dagleg framkoma Finnur er fáskiptinn
og ekld orðmargur í daglegri framgöngu
og það kom mörgum sem þekkja hann á
óvart þegar hann sóttist eftir starfi for-
stjóra Nóa-Sírusar.
Fram að því var hann talinn hafa meiri
áhuga á fræðimennsku á sviði hagfræði.
Hann kom síðan mönnum aftur á óvart
þegar hann tók að sér það starf sem hann
nú gegnir.
Þannig er það ef til vill smátt og smátt
að koma í Ijós að sá sem var álitinn feiminn
fræðimaður er í rauninni stefhufastur og
ákveðinn stjórnandi sem lumar á talsverð-
um pólitískum metnaði.
Aðrar raddir segja að Finnur hafi engan
pólitískan metnað og líti ekki á feril föður
síns sem fordæmi heldur líti hann fyrst og
fremst á formennsku samtakanna á fagleg-
um grunni og muni nálgast verkefnið með
þeim hætti. I hans augum sé þetta fyrst og
fremst áhugavert verkefni og ákveðin upp-
hefð sem feli í sér mikla traustsyfirlýsingu
en alls ekki pólitískur stökkpallur. S3
27